Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 18
Mjög misjafnt er hversu vel fólki gengur að selja notaða bíla og gjarnan er talað um að ákveðnar tegundir bíla séu betri en aðrar í endursölu. Toyotan hefur notið mikilla vin- sælda undanfarin ár og virðist enn vera auð- veldust í endursölu hér á landi. Axel Bergmann í Bílabankanum segir ekki nokkurn vafa á því að Toyotan sé best í endursölu. „Við erum með allar tegundir bíla í umboðssölu en það er mest leitað eftir Toyota-bílunum. Land Cruiser er til dæmis mjög góður sölubíll eins og aðrir frá Toyota,“ segir Axel. Hann bætir við að Subaru og Skoda Octavia séu líka fínir sölubílar ef hægt sé að tiltaka einhverjar tegundir á eftir Toyota-bílunum. „Auð- vitað fer það alltaf eftir því hvað bílar eru mikið keyrðir og annað slíkt hvort þeir seljast fljótt eða ekki.“ Axel segir bílakaup ekki sveiflast eins mikið eftir árstímum og áður var. „Sumarið er náttúrulega allt- af best, frá maí fram í ágústlok. Október er oft mjög góður mánuður, nóvember er rólegur en svo getur salan tekið aðeins við sér í desember aftur.“ Spurður hvort það sé áberandi að bílar á bílasöl- um séu að yngjast, segir Axel: „Já, það er rétt og bílasölurnar eru yfirleitt ekki með mjög gamla bíla til sölu. Bílar á verðbilinu 100-300 þúsund krónur fara mest í gegnum Fréttablaðið. Það er líklega út af sölulaununum því þau eru yfirleitt um 3,5 pró- sent af söluverði bílsins auk virðisaukaskatts en þó aldrei minna en 45.000 krónur.“ Hann bendir þó á að innifalið í sölulaununum sé tilkynningin, eigenda- skiptin, veðbókarvottorð og annað tilheyrandi. Toyota best í endursölu Hugmyndin að Toyota iQ, sem sýndur var á bílasýningunni í Frankfurt, hróflar við viðtekinni hönnun smábíla af því að bíll- inn er agnarsmár en rúmgóður og búinn viðurkenndum gæðum og eiginleikum. iQ er fram úr hófi fyrirferðarlítð ökutæki sem er fullkomlega hannað fyrir lífsstíl nútímamannsins sem lifir í þéttbýli, um leið og bíllinn mætir æ strangari kröfum um umhverfisvæn farartæki. Þessi lag- legi smábíll var hannaðar af ED2, hönnunarstúdíói Toyota í Suður- Frakklandi og fylgdi lögmálum Toy- ota í hvívetna; hann er kröftugur, skynsamlegur, nútímalegur og hefur skýran tilgang og hlutverk. iQ er heimsins minnsti fjögurra sæta bíll og vantar tvo sentimetrar í þrjá metra á lengd. Hann er 425mm styttri en Aygo, en sam- bærilegur Yaris í breidd og hæð. Vel fer um þrjá fullorðna í bílnum og eitt barn, en auk þess má nota fjórða sætið til að stækka farangurs- rýmið. Minnsti smábíll veraldar Hlekkurinn milli bíls og mótor- hjóls kallast Carver. Fyrir fjórum árum fór Jeremy Clarkson, þáttastjórnandi Top Gear á BBC, í það sem hann sór að hefði verið skemmtilegasta öku- ferð lífs síns. Ferðin var farin á undarlegu apparati, einhverju sem kalla má afkvæmi bifreiðar og mótorhjóls, en ökutækið heitir Carver. Eftir ferðina sagði Jer- emy orðrétt: „Ég verð að segja, tíu fingur upp til guðs, að ég hef aldrei skemmt mér svona vel í bíl, það er hverju orði sannara og ég held að ég muni aldrei fá nóg af honum.“ En hvað er það sem gerir þetta ökutæki svona skemmtilegt? Jú, Carverinn sameinar það besta úr báðum heimum. Lipurð mótor- hjólsins og þægindi bílsins ásamt öryggi sem kemur í kjölfar háþró- aðs jafnvægiskerfis sem er að öllu leyti sjálfvirkt. Allir sem hafa almenn ökuréttindi geta ekið þessum bíl en hæst kemst hann 185 kílómetra á klukkustund. Þetta segir okkur að hann er hægfara miðað við flest mótorhjól en sambærilegur miðl- ungsfjölskyldubíl, Toyota Camry hefur til dæmis svipað hraðahá- mark. Fyrsta útgáfa bílsins var sýnd hinn sjöunda mars síðastliðinn á bílasýningu í Genf, en hann er hannaður og markaðssettur af Carver Europe í Hollandi. Skemmtilegt skoffín Tjón sem rekja má til falsaðra varahluta nemur milljörðum Bandaríkjadala á ári hverju og er vaxandi vandamál um heim allan. Sala á fölsuðum varahlutum í bíla er vaxandi vandamál. Þetta eru aðal- lega ódýrar og lélegar eftirlíkingar frá Kína og oft er verið að búa til bremsuklossa og tímareimar. Tekju- tap viðurkenndra framleiðenda er mikið en er þó einungis talið vera hluti af því gríðarlega tjóni sem ónýtir varahlutir valda bifreiðaeig- endum. Að útliti til skera fölsuðu hlutirnir sig almennt ekki úr, hvorki hvað varðar vörumerki eða umbúðir en hins vegar kosta þeir yfirleitt ekki nema fjórðung til helming af því verði sem viðurkenndir hlutir fara á. Mikill munur er á gæðum og end- ingu og hafa prófanir leitt í ljós að fölsuðu varahlutirnir endast tvisvar til þrisvar sinnum skemur en hinir viðurkenndu. Öryggi bíla með fals- aða varahluti er auk þess mun minna. Varasamir varahlutir Japan/U.S.A. STÝRISENDAR, SPINDILKÚLUR OG FÓÐRINGAR í jeppa í miklu úrvali Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.