Fréttablaðið - 26.09.2007, Síða 17
Ilmandi kaffibolli á veröndinni. Útsýni yfir
gamalt spænskt fjallaþorp. Merlandi máni á
Miðjarðarhafinu. Hoppandi gleði yfir lágum
matarreikningi vikunnar. Sól, hvíld og friður; í
eigin húsi við ströndina.
Ekkert lát er á aðdráttarafli Spánar á íslenska sól-
dýrkendur.
„Ætli við séum ekki búin að fara tíu sinnum á
árinu, í samtals tíu vikur. Það er einfaldlega dásam-
legt að eiga sitt heimili á Spáni, fara út með morgun-
kaffið á veröndina, finna ilm af blómum og lifa
innan um sitt innbú þegar degi hallar. Það skemmti-
legasta sem við gerum er að versla til heimilisins
því það er svo yndislegt að opna budduna þegar
reikningurinn er lágur. Ég er með sumarföt tilbúin
úti og ekkert annað að gera en stökkva um borð í
flugvélina,“ segir Petrína Ólafsdóttir sem á sitt
annað heimili í Campoamor í tíu mínútna fjarlægð
frá Torrevieja.
„Æ fleiri láta drauma sína rætast í fallegri fast-
eign á Spáni. Nú er hægt að fara þangað á lágt verð
allan ársins hring og þeir eru margir sem vilja eiga
þar heimili að heiman. Á Spáni er ódýrt að lifa,
veðurfar yndislegt, eins og menning Spánverja og
þjóðin sjálf,“ segir Petrína sem ásamt Svanþóri
Þorbjörnssyni, eiginmanni sínum, rekur útibú
bSpain á Íslandi, en bSpain er með virtustu fast-
eignasölum Spánar og dótturfyrirtæki Grupo
Mahersol sem starfað hefur í byggingariðnaði á
Spáni við góðan orðstír frá 1966.
„Það skiptir miklu að rasa ekki um ráð fram þegar
maður kaupir sér fasteign á Spáni. Eignin verður að
vera þannig staðsett að hún mæti kröfum manns og
draumum. Fólk verður að vera meðvitað um hvar það
kaupir og möguleika á endursölu. Ef kaupandi ætlar
að flytjast búferlum finnum við stað þar sem fólk
hefur líka vetursetu í stað þess að selja eignir í bæjum
sem breytast í draugaþorp á vetrum,“ segir Petrína
og bætir við að íbúðir í skýjakljúfum Benidorm séu
vinsæll kostur fyrir þá sem vilja leigja út frá sér.
„Þetta eru milliliðalaus viðskipti sem þýðir að
engar tafir eru á afgreiðslu því sá sem byggir kapp-
kostar að þjónusta kaupendur sína sem best. Mest
seljum við af raðhúsum, en einnig mikið af nýjum
íbúðum og ávallt mjög fallegar eignir,“ segir Petr-
ína um framboð fasteigna bSpain á landsvæðinu
norðan við Benidorm og alla leið suður til Almería,
þar sem uppbygging er nýhafin við fallegar strend-
ur og mikla náttúrufegurð.
„bSpain hefur söluskrifstofur í sjö löndum og
selur fasteignir beint af byggingaraðila sem veitir
tíu ára ábyrgð á eignum. Bankar spá 17 prósenta
verðhækkun á þessum fasteignum næstu tvö árin
svo fjárfestingin er góð,“ segir Petrína, en Maher-
sol rekur einnig húsgagnaverslanir og sér um að
útvega öll húsgögn fyrir afhendingu.
Hægt að skoða söluskrá á www.bspain.com.
Draumarnir rætast
PUMA GERVIGRASBUXURVerð áður: 3.990
Stærðir: 116–164
Vesturlandsvegur
Reykjavík
Mosfellsbær
Húsasmiðj
an
Nóatún
Toppskórinn
Margt Smátt
Vínlandsleið
Sport Outlet
Vínlandsleið 2–4, efri hæð
Grafarholt
Er skiptinemadvöl eitthva› fyrir flig?
Fjölmörg lönd í bo›i. Ársdvöl, hálfsársdvöl,
3 mána›a dvöl og 4-6 vikna dvöl. Haf›u samband!