Fréttablaðið - 26.09.2007, Qupperneq 36
Hljómsveitin Burkina
Faso treður upp á fjórðu
tónleikum tónleikaraðar
Jazzklúbbsins Múlans á
þessu hausti. Múlinn er
samstarfsverkefni Félags
íslenskra hljómlistarmanna
og Jazzvakningar.
Klúbburinn heitir í höfuðið á
helsta djassgeggjara þjóðarinnar,
Jóni Múla Árnasyni, sem jafn-
framt var heiðursfélagi og vernd-
ari Múlans.
Hljómsveitin Burkina Faso leik-
ur fönkaðan djass úr smiðju
manna eins og Johns Scofield og
Joshua Redman. Meðlimir sveit-
arinnar eru þeir Ásgeir Ásgeirs-
son gítarleikari, Ólafur Hólm
trommuleikari, Róbert Þórhalls-
son bassaleikari og Vignir Þór
Stefánsson hljómborðsleikari.
Tónlistarmennirnir hafa allir leik-
ið saman áður í ýmsum verkefn-
um, en leiða hér saman hesta sína
í fyrsta sinn á þessum vettvangi.
Vignir Þór, hljómborðsleikari
sveitarinnar, segir sveitina vera
sprottna úr gömlum kunningskap.
„Við þekkjumst í raun frá fornu
fari og höfum spilað saman í gegn-
um tíðina í hinum ýmsu myndum.
Þar að auki lærðum við Ásgeir og
Róbert allir í Hollandi á sínum
tíma og varð það til að styrkja á
milli okkar böndin. Ólafur kemur
úr svolítið annarri átt, en hann
hefur verið í poppinu og spilað
með Ný Dönsk. Það voru Róbert
og Ólafur sem að vildu setja saman
þessa hljómsveit vegna þess að þá
langaði að spila fönkskotinn djass.
Við Ásgeir drógumst svo inn í
þetta með þeim enda skemmtilegt
verkefni.“
Nafn sveitarinnar vekur athygli,
en Vignir segir það tilkomið aðal-
lega vegna hugmyndaleysis hljóm-
sveitarmeðlima. „Þegar við vorum
að leita að nafni á sveitina stukk-
um við hálfpartinn á þetta landa-
fræðiheiti og veltum því ekki
mikið meira fyrir okkur. Burkina
Faso er land í Vestur-Afríku, en
nafnið hefur ekkert með tónlistina
sem við spilum að gera. Sumir
vilja reyndar gera tengingu á milli
djasstónlistar og Afríku, en við
vorum ekkert endilega að hugsa
út í það þegar við völdum nafnið.“
Hljómsveitin kemur fram opin-
berlega í fyrsta skipti á tónleikun-
um í kvöld. „Þetta eru okkar fyrstu
tónleikar, en fólk má gera ráð fyrir
að verða okkar vart í náinni fram-
tíð. Við hyggjum á frekara tón-
leikahald og ætlum þá að troða
upp með frumsamda tónlist. Það
er hugur í okkur,“ segir Vignir að
lokum.
Tónleikarnir fara fram á DOMO
bar og hefjast kl. 21.00. Aðgangs-
eyrir er 1.000 kr.
Sýningin Handverkshefð í hönn-
un opnaði í Norræna húsinu um
síðustu helgi. Á sýningunni má
líta hönnun og handverk nema á
öllum skólastigum. Í tengslum
við hana er starfrækt sérstakt
prjónakaffihús þar sem gestum
býðst að kynnast nýjum straum-
um og stefnum í prjónalistinni.
Ilmur Dögg Gísladóttir er
hugmyndasmiður prjónakaffi-
hússins. „Tilgangurinn með
prjónakaffihúsinu er að reyna
að virkja almenning í prjóna-
skap,“ segir Ilmur.
„Eitt af slagorðum sýningar-
innar er „Framtíðin er í okkar
höndum“ og endurspeglast þetta
viðhorf í kaffihúsinu. Hér getur
fólk kynnst nýjum straumum og
stefnum í prjónaskap, til dæmis
prjóna-graffíti sem hefur verið
að ryðja sér til rúms erlendis.
Kaffihúsið býður gestum þannig
upp á að sjá prjónaskap í nýju
samhengi og fá innblástur að
nýjum verkefnum.“
Ilmur er sjálf áhugasöm
prjónakona og hefur mikið velt
fyrir sér hannyrðamenningu.
„Hugmyndin að kaffihúsinu
kviknaði út frá grúski mínu á
netinu, en þar kynntist ég sér-
hæfðum prjónakaffihúsum þar
sem boðið er upp á garn og upp-
skriftir ásamt kaffi og meðlæti.
Þannig skapast rými fyrir
prjónafólk til þess að stunda sitt
áhugamál utan veggja heimilis-
ins, með öðrum sem hafa sama
áhugamál.“
Prjónakaffihúsið er starfrækt
í Norræna húsinu fram til 7. okt-
óber. Það er opið frá kl. 12-23
þriðjudaga til fimmtudaga og
frá kl. 12-17 föstudaga til sunnu-
daga. Þar er hægt að nálgast
kaffi, te og með því en einnig
prjóna, garn og uppskriftabæk-
ur. Þess má geta að húsgögnin á
kaffihúsinu eru öll frá Góða
hirðinum og eru til sölu.
Komdu út að prjóna
kl.12
Birgir Guðmundsson, lektor í
fjölmiðlafræði við Félagsvísinda- og
lagadeild Háskólans á Akureyri,
flytur erindi sem fjallar um
neikvæð áhrif markaðsvæðingar og
arðsemissjónarmiða á blaða-
mennsku. Erindið, sem er hluti af
fyrirlestraröðinni Félagsvísinda-
torg, fer fram í Sólborg við Norður-
slóð á Akureyri og hefst kl. 12.
Börn læra um vísindi
Hv
að
er
sv
on
a m
erk
ile
gt
að
v
er
a
ka
rl
m
að
ur
?
Þá
g
et
ur
ð
u
ko
m
ið
o
g
su
ng
ið
m
eð
s
ke
m
m
ti
le
g
um
kö
rl
um
í
g
ó
ð
um
k
ó
r!
Þe
ss
ir
s
va
ra
í
sí
m
an
n:
Ey
jó
lfu
r
8
6
3
-2
8
0
3
Ja
ko
b
8
4
0
-0
5
5
1
K
ol
li
8
9
3
-6
1
0
9
K
ri
st
já
n
8
4
0
-0
8
2
5
1
9
1
2
Þ
R
E
S
TI
R
Fla
ta
hr
au
ni
2
1
- H
af
na
rfi
rð
i