Fréttablaðið - 27.09.2007, Síða 4
Sími 591 3100 - www.atlantsolia.is
5 kr. afsláttur
þegar þú átt afmæli!
Þeir sem eru með dælulykil
Atlantsolíu fá 5 krónu afslátt af
lítraverði þegar þeir kaupa
eldsneyti á afmælisdaginn
sinn.
Allir starfandi lögreglu-
menn munu fá greiddar þrjátíu
þúsund krónur ofan á mánaðarlaun
sín frá og með 1. október til loka
samningstímabils.
Þetta er niðurstaða viðræðna
stjórnar Landssambands lögreglu-
manna og fjármálaráðuneytisins,
með aðkomu dómsmálaráðuneytis.
Í ljósi hennar hefur dómsmála-
ráðherra ákveðið að greiða öllum
starfandi lögreglumönnum ofan-
greint tímabundið álag út samnings-
tímann, sem er til 31. október 2008.
Þeir lögreglumenn sem eru í
hlutastarfi fá álagsgreiðslu í sam-
ræmi við starfshlutfall. „Greiðslur
þessar byggjast á auknu starfsálagi
lögreglumanna vegna brotthvarfs
félaga okkar úr starfi og aukningu
verkefna vegna sameiningar
lögregluliða um síðastliðin ára-
mót,“ segir Sveinn Ingiberg
Magnússon, formaður LL.
„Það er mat stjórnar LL, að
þetta sé ásættanleg niðurstaða og
verði vonandi til þess að stöðva þá
óheillaþróun sem hefur blasað við
undanfarið og verði jafnframt
hvatning til lögreglumanna til
áframhaldandi góðra verka.“
Steinar Adolfsson, fram-
kvæmdastjóri LL, sagði þegar
vera farin að berast viðbrögð til
sambandsins frá lögreglumönn-
um, sem væru í allflestum tilvikum
mjög jákvæð.
Viðbótargreiðsla vegna álags
Uppsetning
sendibúnaðar í möstur á varnar-
svæðinu í Grindavík á vegum
Flugstoða ohf. mætir mikilli
andspyrnu bæjarráðs Grinda-
víkur. Segist ráðið gagnrýna
harðlega að íslenskt hlutafélag í
eigu ríkisins fari framhjá
bæjaryfirvöldum í Grindavík
með því að setja upp fjarskipta-
senda í skjóli þess að um varnar-
svæði sé að ræða. Varnarsvæðið
hamli uppbyggingu í Grindavík.
„Bæjarráð bendir á að þetta
svæði er ákjósanlegt sem íbúða-
byggð og leggur áherslu á að
íslenska ríkið hlutist til um að
Bandaríkin skili þessu landsvæði.“
Varnarsvæðinu
verði skilað
„Fólk spyr mig til dæmis hvort ég sé heyrnar-
laus, hvort ég sé fáviti eða hvort ég skilji ekki
íslensku. Þetta kemur mjög oft fyrir,“ segir Ásta
Soffía Lúðvíksdóttir, starfsmaður í IKEA.
Ásta Soffía er tuttugu og sjö ára gömul. Hún er
heyrnarlaus en heyrir með hjálp tækja eftir kuðungs-
ígræðslu sem hún fór í árið 2003. Hún hefur unnið í
IKEA á afgreiðslukassa í þrjú ár en hefur nú beðið
um flutning innan búðarinnar. Ástæðan er dóna-
skapur sem hún verður fyrir af hálfu viðskiptavina
IKEA. „Ég heyri ekki nógu vel ef fólk talar lágt en ef
það talar hátt og skýrt þá heyri ég ágætlega.“
Ástu Soffíu segist líða mjög illa þegar hún fær
athugasemdir. Hún hefur þó stundum svarað fyrir
sig. „Fólk verður stundum slegið þegar ég segi því að
ég sé heyrnarskert og þá biðst það kannski afsökun-
ar.“ Hún segist verða fyrir dónaskap nokkrum
sinnum í viku og stundum nokkrum sinnum á dag.
„Þetta gerðist til dæmis tvisvar í gær. Í annað skiptið
kom kona til mín og bað mig um nótu. Ég heyrði ekki
í fyrstu og bað hana afsökunar og sagði henni að ég
væri heyrnarskert. Þá skellti hún því framan í mig að
ég hefði ekkert að gera á kassa.“
Ásta Soffía segir oft liggja illa á fólki og það geti
verið ástæða viðmótsins. „Þetta hefur mjög slæm
áhrif á mig og ég fer heim úr vinnunni miður mín
þegar þetta gerist.“
Hún telur að starfsmenn á afgreiðslukössum,
útlendingar og fatlað fólk verði helst fyrir barðinu á
hranalegu viðmóti viðskiptavina. „Það versta sem ég
hef fengið að heyra var hvort ég skildi ekki íslensku
og að ég ætti að koma mér aftur á þann stað sem ég
kæmi frá. Ég svaraði því til að ég væri frá Grindavík
og hvort ég ætti að fara aftur þangað. Ég er dökk-
hærð, með brún augu og er kannski útlendingsleg. Ég
get ekki ímyndað mér hvernig útlendingum líður sem
vinna á kassa og hvernig þeir fá að finna fyrir því.“
Ástu Soffíu finnst dónaleg framkoma viðskiptavina
fyrst og fremst sorgleg. „Ég hef ógrynni af þolin-
mæði. Ég hef alltaf komið vel fram við fólk og skil
þess vegna ekki hvernig fólk getur komið illa fram
við mig.“
Spurð hvort hún sé
fáviti eða heyrnarlaus
Ásta Soffía Lúðvíksdóttir heyrir ágætlega með hjálp tækja. Hún vinnur á
afgreiðslukassa í IKEA og lendir oft í harkalegu viðmóti viðskiptavina. Hún
segir það koma fyrir að hún sé miður sín eftir vinnudaginn.
Uppselt var í öll 1.949
sætin á tónleikum Garðars
Thors Cortes í listamiðstöðinni
Barbican Centre í London í
gærkvöldi. Hann er fyrsti
Íslendingurinn sem heldur
einsöngstónleika í húsinu, sem
er það stærsta af sinni tegund í
Evrópu.
Diddú kom einnig fram á
tónleikunum sem sérstakur
gestur og hljómsveitarstjórn var
í höndum Garðars Cortes, föður
Garðars Thors. Á tónleikunum
söng Garðar Thor lög af
nýútkominni plötu og annað efni,
en undir lék The National
Symphony Orchestra.
Söng fyrir fullu
húsi í London
Vonir um að ljóshærð
stúlka sem mynduð var í Mar-
okkó væri Madeleine McCann
urðu að engu í gær þegar breskir
blaðamenn fundu stúlkuna. Hún
heitir Bushra Binhisa og er dóttir
ólífubónda sem býr í þorpinu
Zinat. Að sögn Rashid Razaq,
blaðamanns hjá Evening Stand-
ard, líkist stúlkan Maddie, sem
hvarf af hóteli í Portúgal í maí
síðastliðnum.
Samkvæmt fréttavef Sky News
sagði Clarence Mitchell, tals-
maður foreldra Madeleine, það
miður ef rétt væri að stúlkan
væri ekki Maddie. Leitin myndi
halda áfram.
Ekki Maddie
heldur Bushra
Karlmaður um
fertugt, sem grunaður er um
innflutning á kókaíni í fljótandi
formi, var í gær úrskurðaður í
áframhaldandi gæsluvarðhald til
mánudagsins 1. október nk.
Annar karl sem einnig var
handtekinn í tengslum við
rannsókn málsins er laus út haldi.
Um 600 grömm af kókaíni
mældust í 1.800 millilítrum af
vökva úr flösku sem hald var lagt
á samkvæmt efnagreiningu
Háskóla Íslands.
Einn áfram í
gæsluvarðhaldi