Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 16
fréttir og fróðleikur Dæmin alveg jafn alvarleg Mörg verðlaun í ýmsum flokkum Stærð svæðanna sem íslensk stjórnvöld gera landgrunnskröfur til utan 200 sjómílna er á við tífalda stærð Íslands. Nú standa yfir viðræður í Reykjavík um eina umdeilda svæðið, Hatton Rockall-svæðið, og ljóst er að talsvert greinir á milli krafna ríkjanna. Fjögur ríki deila um hafsbotninn suður af Íslandi á svokölluðu Hatton Rockall-svæði; Ísland, Bret- land, Írland og Danmörk, fyrir hönd Færeyja. Fulltrúar Íslands sitja nú viðræðufund um land- grunnsréttindi ríkjanna fjögurra á svæðinu. Landgrunnsréttindi felast í yfirráðum yfir auðlindum á og undir hafsbotninum, en ekki í hafinu sjálfu. Haft var eftir utanríkisráðherra í Fréttablaðinu á mánudag að mikil- vægt væri að ná samkomulagi um skiptingu svæðisins, því annars sitji auðlindir ónýttar og umfangs- mikil gagnaöflun væri unnin fyrir gýg. Lýsir það afstöðu íslenskra stjórnvalda í viðræðunum, sem lagt hafa áherslu á að ríkin komist að samkomulagi um skiptingu svæðis- ins. Kröfur ríkjanna skarast þó verulega. Formaður samninganefndar Íslands í viðræðunum um Hatton Rockall er Tómas H. Heiðar, þjóð- réttarfræðingur utanríkisráðu- neytisins. Að hans sögn er nú unnið að greinargerð til land- grunnsnefndar Sameinuðu þjóð- anna sem nær til til landgrunns- krafna Íslands á Reykjaneshrygg og í Síldarsmugunni. Tómas segir íslensk stjórnvöld fyrst vilja ná samkomulagi við aðila Hatton Rockall-málsins um skiptingu þess svæðis og í framhaldi af því skila sameiginlegri greinargerð um ytri mörk svæðisins til land- grunnsnefndarinnar. Frestur Íslands til þess að skila greinargerð til landgrunns- nefndarinnar rennur út í maí árið 2009, en gildir ekki um umdeild svæði á borð við Hatton Rockall- svæðið. Landgrunnsnefndin er ekki bær til að fjalla um umdeild svæði nema allir deiluaðilar fallist á það. Skýrir það áherslu íslenskra stjórnvalda á að samkomulag náist sem fyrst. Deilan um svæðið hefur staðið yfir frá því árið 1985, eða rétt áður en Íslendingar ákváðu að staðfesta hafréttarsamning Sam- einuðu þjóðanna og freista þess að ná yfirráðum yfir víðáttu- meira hafsbotnssvæði. Fjórhliða viðræður við deilu- aðila um Hatton Rockall-svæðið, hófust árið 2001. Að frumkvæði íslenskra stjórnvalda fóru fram óformlegar viðræður í Reykjavík það ár og hefur þeim verið haldið áfram með reglubundnum hætti síðan. Þagnargildi hefur legið yfir viðræðunum, þar sem ekki þótti ljóst hvenær eða hvort niður- staða fengist í málið, en utanríkis- ráðherra segist nú vilja opna fyrir umræður um landgrunns- kröfur Íslands á Hatton Rockall- svæðinu. Ísland á efnahagslögsögu að 200 sjómílum, en getur gert tilkall til víðáttumeira landgrunns ef nátt- úrulegar aðstæður leyfa. Skila þarf inn greinargerð til land- grunnsnefndarinnar sem leggur tæknilegt mat á hana. Landgrunnsnefndin gerir aðeins tillögu að ytri mörkum landgrunnsins, en Ísland getur ákvarðað landgrunnsmörkin á endanlegan og bindandi hátt á grundvelli tillagna nefndarinn- ar. Hagsmunir Íslands eru fólgnir í ýmsum auðlindum sem er að finna á og undir hafsbotninum, svo sem olíu og gasi, en taldar eru nokkrar líkur á að olíu og gas sé að finna á Hatton Rockall- svæðinu. Aðrar algengar auð- lindir á landgrunni eru málmar og botnsetutegundir líkt og ostr- ur og skelfiskur. Í vaxandi mæli beinist athygli manna að öðrum auðlindum, til dæmis erfða- auðlindum, og með tækni- framförum eykst bæði vitneskja um slíkar auðlindir og möguleikar á nýtingu þeirra. Hatton Rockall er ekki eina hafs- botnssvæðið sem Íslendingar gera kröfu til. Önnur svæði eru Reykjaneshryggur, sem Ísland gerir eitt tilkall til, og suðurhluti Síldarsmugunnar. Samtals eru landgrunnssvæðin utan 200 sjó- mílna sem Ísland gerir tilkall til milljón ferkílómetrar á stærð, sem er rúmlega tífalt landsvæði Íslands. Samningaviðræður stóðu yfir í nokkra mánuði um Síldar- smuguna og tókust samningar við Norðmenn og Dani, fyrir hönd Færeyinga, í september á síðasta ári. Samningurinn felur í sér við- urkenningu á landgrunnsréttind- um Íslands yfir 29.000 ferkíló- metra svæði í framhaldi af efnahagslögsögunni norðaustur af landinu. Ríkin munu leggja fram hvert sína greinargerð til landgrunnsnefndarinnar og þegar tillögur hennar berast munu þau ganga frá þremur tví- hliðasamningum um endanlega afmörkun landgrunnsins. Niðurstaða samningsins þótti hagstæð fyrir Ísland að mati stjórnvalda, þar sem hún þótti auka trúverðugleika Íslands í deilunni um landgrunnsréttindi og hafa mikilvægt fordæmisgildi fyrir Hatton Rockall-málið. Ríkir hagsmunir á Hatton Rockall
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.