Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 64
Prjónakaffihús og sýningin
Handverkshefð í hönnun
í kjallara
Norræna hússins
22.9. - 7.10. 2007
Opnunartímar:
þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga kl. 12 – 23
föstudaga, laugardaga, sunnudaga kl. 12 – 17
Lokað á mánudögum
Norræna húsið, Sturlugötu 5, 101 Reykjavík, sími 551 7030, www.nordice.is
Auglýsingasími
– Mest lesið
kl. 20
Dúó Stemma heldur tónleika í
Hafnarborg í Hafnarfirði í kvöld.
Dúóið samanstendur af Herdísi
Önnu Jónsdóttur víóluleikara og
Steef van Oosterhout slag-
verksleikara. Á efnisskránni hjá
þeim er meðal annars tónlist eftir
íslensk tónskáld og þjóðlagatón-
list. Ókeypis er inn á tónleikana
og eru allir velkomnir.
Hnerrað aftur á Selfossi
Aðalheiður Eysteinsdóttir
sýnir um þessar mundir
tréskúlptúra í listasafninu
Hafnarborg í Hafnarfirði.
Viðfangsefni sýningarinnar
er fólk að bíða.
Hugmyndin að sýningunni kvikn-
aði út frá annarri sýningu sem Aðal-
heiður setti upp í fyrra. „Þar var ég
með skúlptúr sem sýndi mann sem
sat og beið á löngum bekk. Það
skapaðist afar skemmtileg stemn-
ing í kringum þennan skúlptúr; fólk
fékk sér sæti á bekknum og spjall-
aði hvað við annað. Ég tók myndir
af gestum sem sátu á bekknum og
urðu þær myndir mér innblástur til
þess að halda áfram að vinna með
það sem gerist þegar fólk bíður,“
segir Aðalheiður.
Hún segir biðina áhugavert fyr-
irbæri þegar maður veltir henni
fyrir sér. „Margir segja að það að
bíða sé það leiðinlegasta sem þeir
gera. En biðin getur líka verið
skemmtileg og uppfull af eftir-
væntingu, til dæmis þegar maður
bíður eftir jólunum eða fæðingu
barns. Því fór ég að líta á biðina
sem dýrmæta. Fólk kvartar yfir
tímaskorti og stressi en undir slík-
um kringumstæðum er hægt að
nýta biðina sem tíma til þess að
hugsa. Raunverulegt fólk sem kann
að nota biðtíma á skapandi hátt var
þannig útgangspunktur margra
verkanna á sýningunni.“
Aðalheiður leikur sér með
afgangsefni og fundna hluti og end-
urgerir úr þeim eftirminnileg
augnablik úr eigin lífi; fólk á förn-
um vegi, vinir eða hlutirnir sjálfir
geta orðið kveikjan að verkum
hennar. Hún vann skúlptúrana á
sýningunni aðallega í timbur. „Ég
vinn með afgangstimbur sem fellur
til hér og þar. Enn fremur þykir
mér gaman að nota ýmsa aðra hluti
sem á einhvern hátt passa inn í
formið sem ég er að skapa. Endur-
vinnsla efna er á margan hátt eins
og fjársjóðsleit; það er fátt skemmti-
legra en að búa til eitthvað fallegt
úr einhverju sem virðist ekki vera
til neins nýtt.“
Á sýningunni má einnig finna
póstkort sem Aðalheiður hefur
unnið úr ýmsum tilfallandi efnum.
„Það er hægt að nota biðtíma í ýmis-
legt, til að mynda í að skrifa póst-
kort til vina og vandamanna. Ég
hvet alla sýningargesti til þess að
setjast niður og skrifa á póstkort.
Svo er hægt að kaupa frímerki í
afgreiðslunni á Hafnarborg,“ segir
Aðalheiður að lokum.
Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og
fimmtudaga til kl. 21.00.
Síðasti sýningardagur er 7. okt-
óber.