Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 60
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Stysta seta á páfastóli „Síðastliðin 32 ár hef ég ekki gert neitt utan skemmtana- iðnaðarins. Ég hef bæði átt mjög góða og slæma tíma en ég elska starfið svo mikið að ég hef aldrei nokkurn tíma hugsað um að hætta.“ „Ég er svo lánsamur að vera við ágæt- is heilsu og líða vel svo það er ekki hægt að kvarta. Hef aldrei verið á betri aldri,“ segir Jón Steinar Gunn- laugsson hæstaréttardómari, léttur í sinni þegar hann er spurður hvernig sjötugsaldurinn leggist í hann. Veisluhöldum í tilefni afmælisins gerir hann þó ekki mikið úr en kveðst eiga von á nokkrum vinum til sín í spjall. Talið berst að líðandi sumri, sem Jón Steinar er ánægður með fyrir sína parta. „Ég er búinn að gera ým- islegt skemmtilegt með minni fjöl- skyldu í sumar, meðal annars erum við töluvert í húsi sem við eigum aust- ur í Landsveit. Svo er ég á seinni árum farinn að spila golf, hef gert mikið af því í sumar og haft gaman af en nú eru haustlægðirnar farnar að skella svolítið á okkur og setja strik í reikn- inginn,“ segir hann. Jón Steinar er borinn og barn- fæddur Reykvíkingur. „Ég fæddist á Hrísateigi en átti heima í Blönduhlíð frá tveggja til ellefu ára aldurs. Þar var ég í nábýli við knattspyrnufélag- ið Val þó ég væri sjálfur Framari. Það var í góðu lagi þó að félagar mínir og vinir færu allir upp á Valsvöll. Ég fór á Framvöllinn við Sjómannaskólann og æfði þar minn fótbolta. Faðir minn var nefnilega mikill Framari og hann skráði mig inn í félagið 2. nóvember 1947, um leið og ég hafði verið skírð- ur. Þannig voru mín örlög strax ráðin í þeim efnum. Svo hef ég auðvitað ekkert yfirgefið skútuna og mæti af og til á völlinn að styðja mína menn. Auðvitað erum við svolítið leiðir á því Framararnir á haustin að þurfa að fylgjast með okkar liði heyja fall- baráttu. En við trúum því að bjartari tímar séu fram undan.“ Skólaganga Jóns Steinars hófst í Hlíðaskólanum sem þá var í Eski- hlíð þar sem leikskólinn Hlíðaborg er nú, svo lá leiðin í Austurbæjarskóla. „Reyndar lauk ég barnaskólanum í Langholtsskóla og tók gagnfræða- stigið í Vogaskóla. Við fluttum svolít- ið innanbæjar á þessum tíma,“ rifjar hann upp. Og það hefur teygst úr skólaárunum hjá Jóni Steinari eins og hann lýsir. „Ég fór í Menntaskólann í Reykjavík og síðan Háskóla Íslands. Nú síðast hef ég verið í Háskólanum í Reykja- vík en þá reyndar sem kennari.“ Kveðst lengst af hafa kennt með sínu lögmannsstarfi enda var hann próf- essor í lögum við Háskólann í Reykja- vík áður en hann gerðist hæstarétt- ardómari og stundakennari eftir það. „Kennsla á ágætlega við mig,“ segir hann. „Aðalverkefni kennarans er að vekja áhuga nemendanna á því sem þeir eru að læra. Í því er fólgin áskor- un og mér finnst það skemmtilegt.“ Í lokin er Jón Steinar inntur eftir því hvað sé honum efst í huga á af- mælinu. „Ekkert sérstakt annað en að reyna áfram að vinna mín störf af samviskusemi eins og ég hef reynt að gera og vera þakklátur fyrir það sem lífið hefur fært mér fram að þessu.“ Eldhúsval Sóltúni 20 verður lokað föstudaginn 28 sept. vegna 30 ára afmælis fyrirtækisins. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður G. Halldórsson rafmagnsverkfræðingur, áður til heimilis að Mávanesi 11, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð mánudaginn 24. september. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju fimmtu- daginn 4. október kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamleg- ast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Magnús Sigurðsson Kristrún B. Jónsdóttir Halldór Sigurðsson Helga Gunnarsdóttir Sigrún Sigurðardóttir Þorvaldur Þorvaldsson Svava Sigurðardóttir Þorsteinn Ragnarsson Lilja Hreinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, Aðalsteinn Þórólfsson Melateig 33, Akureyri, lést á heimili sínu að morgni þriðjudagsins 25. september. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda Margrét Þorvaldsdóttir MOSAIK Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Skarphéðinn Njálsson frá Þingeyri sem lést þriðjudaginn 18. september sl. á öldrunar- deild Heilbrigðisstofnunar Ísafjarðarbæjar, verður jarðsunginn frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 29. september nk. kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar eða Þingeyrarkirkju. Guðrún Markúsdóttir Gunnar Ólafur Skarphéðinsson Sigríður Margrét Skarphéðinsdóttir Skarphéðinn Ólafsson Njáll Arnar Skarphéðinsson Pálína Baldvinsdóttir Guðbjörg Bergþóra Skarphéðinsdóttir Hilmar Pálsson Bjarki Rúnar Skarphéðinsson Sigrún Lárusdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Karitas Sölvadóttir frá Sléttu í Sléttuhreppi, verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 28. september kl. 13.00. Sigríður G. Sigurjónsdóttir Gunnar Kristinsson Sigrún Gunnarsdóttir Sólveig K. Gunnarsdóttir Sigurður K. Gunnarsson og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, María Unnur Sveinsdóttir frá Ólafsvík sem lést á Hrafnistu í Reykjavík 18. september, verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn 28. sept- ember kl. 13. 00. Jarðsett verður í Ólafsvíkurkirkjugarði laugardaginn 29. september kl. 12.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Slysavarnadeildina Sumargjöf í Ólafsvík. Aðalsteinn Guðbrandsson Sigríður Aðalsteinsdóttir Ole Dangvard Jensen Sjöfn Aðalsteinsdóttir Guðrún Aðalsteinsdóttir Ævar Guðmundsson Þórheiður Aðalsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.