Fréttablaðið - 27.09.2007, Qupperneq 60
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Stysta seta á páfastóli
„Síðastliðin 32 ár hef ég ekki
gert neitt utan skemmtana-
iðnaðarins. Ég hef bæði átt
mjög góða og slæma tíma en
ég elska starfið svo mikið að
ég hef aldrei nokkurn tíma
hugsað um að hætta.“
„Ég er svo lánsamur að vera við ágæt-
is heilsu og líða vel svo það er ekki
hægt að kvarta. Hef aldrei verið á
betri aldri,“ segir Jón Steinar Gunn-
laugsson hæstaréttardómari, léttur í
sinni þegar hann er spurður hvernig
sjötugsaldurinn leggist í hann.
Veisluhöldum í tilefni afmælisins
gerir hann þó ekki mikið úr en kveðst
eiga von á nokkrum vinum til sín í
spjall.
Talið berst að líðandi sumri, sem
Jón Steinar er ánægður með fyrir
sína parta. „Ég er búinn að gera ým-
islegt skemmtilegt með minni fjöl-
skyldu í sumar, meðal annars erum
við töluvert í húsi sem við eigum aust-
ur í Landsveit. Svo er ég á seinni árum
farinn að spila golf, hef gert mikið af
því í sumar og haft gaman af en nú
eru haustlægðirnar farnar að skella
svolítið á okkur og setja strik í reikn-
inginn,“ segir hann.
Jón Steinar er borinn og barn-
fæddur Reykvíkingur. „Ég fæddist á
Hrísateigi en átti heima í Blönduhlíð
frá tveggja til ellefu ára aldurs. Þar
var ég í nábýli við knattspyrnufélag-
ið Val þó ég væri sjálfur Framari. Það
var í góðu lagi þó að félagar mínir og
vinir færu allir upp á Valsvöll. Ég fór
á Framvöllinn við Sjómannaskólann
og æfði þar minn fótbolta. Faðir minn
var nefnilega mikill Framari og hann
skráði mig inn í félagið 2. nóvember
1947, um leið og ég hafði verið skírð-
ur. Þannig voru mín örlög strax ráðin
í þeim efnum. Svo hef ég auðvitað
ekkert yfirgefið skútuna og mæti af
og til á völlinn að styðja mína menn.
Auðvitað erum við svolítið leiðir á
því Framararnir á haustin að þurfa
að fylgjast með okkar liði heyja fall-
baráttu. En við trúum því að bjartari
tímar séu fram undan.“
Skólaganga Jóns Steinars hófst í
Hlíðaskólanum sem þá var í Eski-
hlíð þar sem leikskólinn Hlíðaborg er
nú, svo lá leiðin í Austurbæjarskóla.
„Reyndar lauk ég barnaskólanum í
Langholtsskóla og tók gagnfræða-
stigið í Vogaskóla. Við fluttum svolít-
ið innanbæjar á þessum tíma,“ rifjar
hann upp.
Og það hefur teygst úr skólaárunum
hjá Jóni Steinari eins og hann lýsir.
„Ég fór í Menntaskólann í Reykjavík
og síðan Háskóla Íslands. Nú síðast
hef ég verið í Háskólanum í Reykja-
vík en þá reyndar sem kennari.“
Kveðst lengst af hafa kennt með sínu
lögmannsstarfi enda var hann próf-
essor í lögum við Háskólann í Reykja-
vík áður en hann gerðist hæstarétt-
ardómari og stundakennari eftir það.
„Kennsla á ágætlega við mig,“ segir
hann. „Aðalverkefni kennarans er að
vekja áhuga nemendanna á því sem
þeir eru að læra. Í því er fólgin áskor-
un og mér finnst það skemmtilegt.“
Í lokin er Jón Steinar inntur eftir
því hvað sé honum efst í huga á af-
mælinu. „Ekkert sérstakt annað en
að reyna áfram að vinna mín störf af
samviskusemi eins og ég hef reynt að
gera og vera þakklátur fyrir það sem
lífið hefur fært mér fram að þessu.“
Eldhúsval
Sóltúni 20 verður lokað
föstudaginn 28 sept.
vegna 30 ára afmælis fyrirtækisins.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður G. Halldórsson
rafmagnsverkfræðingur, áður til heimilis
að Mávanesi 11, Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð mánudaginn 24.
september. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju fimmtu-
daginn 4. október kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamleg-
ast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent
á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Magnús Sigurðsson Kristrún B. Jónsdóttir
Halldór Sigurðsson Helga Gunnarsdóttir
Sigrún Sigurðardóttir Þorvaldur Þorvaldsson
Svava Sigurðardóttir Þorsteinn Ragnarsson
Lilja Hreinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
Aðalsteinn Þórólfsson
Melateig 33, Akureyri,
lést á heimili sínu að morgni þriðjudagsins
25. september. Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda
Margrét Þorvaldsdóttir
MOSAIK
Ástkær eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Skarphéðinn Njálsson
frá Þingeyri
sem lést þriðjudaginn 18. september sl. á öldrunar-
deild Heilbrigðisstofnunar Ísafjarðarbæjar, verður
jarðsunginn frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 29.
september nk. kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Heilbrigðisstofnun Ísafjarðarbæjar eða Þingeyrarkirkju.
Guðrún Markúsdóttir
Gunnar Ólafur Skarphéðinsson
Sigríður Margrét Skarphéðinsdóttir Skarphéðinn Ólafsson
Njáll Arnar Skarphéðinsson Pálína Baldvinsdóttir
Guðbjörg Bergþóra Skarphéðinsdóttir Hilmar Pálsson
Bjarki Rúnar Skarphéðinsson Sigrún Lárusdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Karitas Sölvadóttir
frá Sléttu í Sléttuhreppi,
verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn
28. september kl. 13.00.
Sigríður G. Sigurjónsdóttir Gunnar Kristinsson
Sigrún Gunnarsdóttir
Sólveig K. Gunnarsdóttir
Sigurður K. Gunnarsson
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
María Unnur Sveinsdóttir
frá Ólafsvík
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík 18. september, verður
jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn 28. sept-
ember kl. 13. 00. Jarðsett verður í Ólafsvíkurkirkjugarði
laugardaginn 29. september kl. 12.00. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Slysavarnadeildina
Sumargjöf í Ólafsvík.
Aðalsteinn Guðbrandsson
Sigríður Aðalsteinsdóttir Ole Dangvard Jensen
Sjöfn Aðalsteinsdóttir
Guðrún Aðalsteinsdóttir Ævar Guðmundsson
Þórheiður Aðalsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.