Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 74
Valsmenn þurfa allir sem einn að rísa upp
N1-deild kvenna í handbolta
Powerade-bikar kvenna
Enski deildarbikarinn
Norski bikarinn undanúrsl.
Meistaradeildin í handbolta
Þýska deildin í handbolta
Spænska 1. deildin
Ítalska A-deildin
Sænska B-deildin
Ólafur Stefánsson og
félagar komu til Flensburg
frekar seint í gærkvöldi eftir
frekar langt og illa skipulagt
ferðalag frá Madríd. Liðið fór
beint á æfingu í Campushalle,
heimavelli Flensburg, þar sem
Fréttablaðið hitti Ólaf að máli.
„Það er gott að vera kominn
hingað. Hér er venjulega mikil
stemning og gaman að keppa
hérna,“ sagði Ólafur en hann
bíður spenntur eftir því að mæta
félögum sínum í landsliðinu.
„Það verður mjög gaman og
þetta er skemmtilegur Íslendinga-
slagur. Það væri ekki verra að
vinna líka. Ég er líka feginn að
Alex sé hinum megin í vörninni
og verði því ekki á móti mér,“
sagði Ólafur léttur á brún.
Landsliðsfyrirliðinn hefur
glímt við mjög erfið axlarmeiðsli
síðustu mánuði en þau eru nú að
baki. „Öxlin er orðin fín og ég er
í toppstandi. Vonandi næ ég að
sýna fínan leik sem og liðið.“
Feginn að Alex spilar ekki
vörnina á móti mér í kvöld
B-deildarlið Coventry sló
í gær ensku meistarana í
Manchester United út úr enska
deildarbikarnum á sama tíma og
Chelsea vann sinn fyrsta sigur
undir stjórn Avram Grant.
Alex Ferguson tefldi fram
varaliði hjá United, sem varð að
sætta sig við 2-0 tap þökk sé
tveimur mörkum frá Möltu-
búanum Michael Mifsud. United
var ekki eina úrvalsdeildarliðið
sem tapaði óvænt því Leicester
sló út Aston Villa á útivelli.
Chelsea var í stórsókn frá
fyrstu mínútu gegn Hull og vann
að lokum öruggan 4-0 sigur.
Salomon Kalou skoraði tvö af
mörkunum og þeir Scott Sinclair,
með fyrsta mark sitt fyrir
Chelsea, og Steve Sidwell skoruðu
hin mörkin. Þetta var fyrsti sigur
Chelsea undir stjórn Grant en
hann var aðeins með fjóra menn
úr liðinu sem tapaði á móti United
um síðustu helgi. Dean Ashton
tryggði West Ham 1-0 sigur á
Plymouth á síðustu stundu en
Everton, Tottenham og Blackburn
komust einnig áfram.
Coventry sló út
Man. Utd
Ezerskis Ernestas,
tvítugur unglingalandsliðsmaður
frá Litháen, er kominn til reynslu
hjá Íslandsmeistaraliði KR.
Ernestas, sem er 195 cm hár
leikstjórnandi, er leikmaður
Lietuvos Rytas Vilnius en kominn í
Vesturbæinn þökk sé samböndum
Ágústar Björgvinssonar, sem var
um tíma aðstoðarmaður hjá Rytas-
liðinu. KR hefur ekki gert samning
við hann en ef marka má fyrstu
æfinguna er þarna snjall
leikmaður á ferðinni.
Lithái til
reynslu hjá KR
Fram vann 34-15 sigur
á Akureyri í N1-deild kvenna í
gærkvöld. Fram-liðið fer vel af
stað í deildinni og er til alls líklegt,
en áður hafði liðið unnið bikar-
meistara Hauka og gert jafntefli
við Íslandsmeistara Stjörnunnar
og er því taplaust eftir þrjá leiki.
Lið Akureyrar er sem fyrr á
botninum án stiga.
Sigur Fram var í raun aldrei í
hættu en liðið skoraði fimm fyrstu
mörk leiksins og leiddi 17-3 í hálf-
leik. Lið Akureyrar mætti þó betur
stemmt inn í seinni hálfleik og
veitti Fram-liðinu meiri mótspyrnu
og skoraði þá 12 mörk, en lokatölur
34-15 og yfirburðir Fram talsverðir
í leiknum.
HK vann sinn fyrsta leik á tíma-
bilinu með því að vinna FH 28-23 í
Kaplakrika og Valskonur eru
áfram með fullt hús eftir öruggan
27-18 sigur á Fylki í Vodafone-
höllinni á Hlíðarenda. -
Framstelpur sýndu klærnar
Tvö af sterkustu hand-
knattleiksliðum heims – Ciudad
Real og Flensburg – mætast í stór-
leik Meistaradeildarinnar í kvöld.
Með liðunum leika þrír Íslending-
ar og þeir eru þess utan allir örv-
hentir. Með spænska liðinu leikur
Ólafur Stefánsson en með því
þýska eru þeir Alexander Peters-
son og Einar Hólmgeirsson.
Tvímenningarnir fá það hlut-
verk að leysa Ólaf af hólmi með
landsliðinu á næstu árum og
verður áhugavert að sjá hvernig
þeim gengur að eiga við læriföður
sinn í kvöld.
„Það verður geysilega gaman að
mæta Óla. Ég er því miður mest að
spila niður í horni í vörninni en ef
við spilum 5-1 vörn þá fæ ég
vonandi aðeins að taka á honum,“
sagði Alexander Petersson kíminn
á svip er Fréttablaðið heimsótti
hann á heimili sínu í Handewitt
sem er rétt fyrir utan Flensburg.
„Leikurinn er ekkert upp á líf og
dauða enda lítum við þannig á
málið að við þurfum að vinna alla
aðra leiki en gegn Ciudad til þess
að komast áfram í keppninni, sem
er það sem skiptir mestu máli.“
Það er óhætt að segja að Flens-
burg sé að spila frábæran hand-
bolta þessa dagana en um síðustu
helgi lagði liðið sjálfa Evrópu- og
Þýskalandsmeistarana í Kiel á
heimavelli sínum, Campushalle.
Gríðarleg stemning var á þeim
leik og er ekki búist við mikið síðri
stemningu í kvöld.
„Það er eðlilega mikið sjálfs-
traust í liðinu eftir leikinn gegn
Kiel sem var frábær. Það verður
gaman að sjá hvar við stöndum
gegn spænska liðinu en að sjálf-
sögðu ætlum við okkur að leggja
þá að velli og við teljum okkur
geta það,“ sagði Alexander en
Ciudad Real vann þessa keppni
árið 2006 og er ógnarsterkt.
Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real sækja þýska liðið Flensburg heim í
kvöld en með Flensburg leika þeir Alexander Petersson og Einar Hólmgeirsson.