Fréttablaðið - 27.09.2007, Page 8

Fréttablaðið - 27.09.2007, Page 8
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og sendinefnd Íslands sátu setning- arfund 62. allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York í fyrradag. Ráðherra hefur átt tvíhliða fundi með utanríkisráðherrum auk óformlegra funda með ýmsu forystufólki á þinginu í þeim tilgangi meðal annars að kynna framboð Íslands til öryggisráðs SÞ. Í gær hélt Ingibjörg Sólrún erindi um utanríkisviðskipti Íslands og Bandaríkjanna á fundi íslensk-ameríska verslunarráðs- ins. Kynnir fram- boð Íslands Hvað heitir sjónvarpsþátta- röðin sem byggð er á bókinni Aftureldingu eftir Viktor Arnar Ingólfsson? Hver er framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna? Hvað heitir nýjasta hljóm- plata múm? RV U ni qu e 08 07 04 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Lotus Professional Heildarlausn fyrir snyrtinguna WC SmartOne statíf blátt WC SmartOne statíf hvítt 3.982 kr. 1.865 kr. Þú spar ar bæð i pappír og sápu með nýju Lo tus Pro fession al skömm turunu m Lotus enMotion blár snertifrír skammtari Lotus enMotion hvítur snertifrír skammtari Lotus sápuskammtari Foam blár Lotus sápuskammtari Foam hvítur 1.865 kr. PÍTUBAKKI 2.390 kr. ÁVAXTABAKKI 2.480 kr. Vínber, melónur, ananas, appelsínur, perur og fleiri gó›ir ávextir. N†TT PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING* *Frí heimsending gildir a›eins ef panta›ir eru 3 e›a fleiri bakkar. Tikka masala kjúklingur, jöklasalatog pítubrau›. Reykt skinka, eggjasalat, jöklasalat og pítubrau›. Nánari uppl‡singar á somi.is N†TT Stjórnarherinn í Búrma skaut í gær á hóp mótmælenda í Rangún eftir að mannfjöldinn varð ekki við skipunum hersins um að dreifa sér. Um tíu þúsund manns höfðu komið saman með fjölmennan hóp búddamunka í fararbroddi. Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin fordæmdu aðgerðir stjórnarinnar gegn mótmælend- um og öryggisráð Sameinuðu þjóðanna bjó sig undir að fjalla um málið strax í gærkvöld. Mótmæli gegn ofríki herstjórnar- innar hófust 19. ágúst og eru orðin þau mestu frá því stjórnin barði niður lýðræðishreyfingu í land- inu árið 1988. Herforingjastjórnin sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hún viðurkenndi að einn maður, þrítugur að aldri, hefði orðið fyrir byssuskoti og látist. Stjórnin segir enn fremur að þrír aðrir hafi særst, en ekki af völdum byssuskota heldur í átökum. Andófshópar fullyrtu hins vegar að fimm manns hafi látist af völdum byssuskota frá stjórn- arhernum. Aðrir töluðu um að fjöldi særða og fallinna hafi verið nokkuð meiri. Búddamunkar, sem njóta mik- illar virðingar í landinu, hafa verið í fararbroddi mótmælanna frá því í byrjun síðustu viku og hafa þeir daglega komið saman í Rangún og fleiri borgum í Búrma. Ástandið í Búrma hefur vakið heimsathygli og meðal annars verið til umræðu á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna, sem þessa dagana stendur yfir í New York. Gordon Brown, forsætisráð- herra Bretlands, hvatti leiðtoga herforingjastjórnarinnar til að halda aftur af sér og láta mót- mælendur í friði. „Allur heimur- inn fylgist með,“ sagði hann við blaðamenn í gær. Herstjórnin hefur bannað allar samkomur og sett á útgöngubann að næturlagi. Í gær söfnuðust engu að síður um tíu þúsund manns saman við Shwedagon- pagóðuna í Rangún og hugðust ganga sem leið liggur að Sule- pagóðunni, en herinn stöðvaði gönguna á miðri leið. Fleiri hópar mótmælenda komu saman víða um borgina, en her- menn reyndu jafnan að dreifa mannfjöldanum. Skemmdir voru unnar á bif- reiðum og byggingum, en ekki var ljóst hvort þar voru andófs- menn að verki eða stuðningsmenn stjórnarinnar. Herstjórnin beitir hörðu Búrmastjórn beitti bæði skotvopnum og táragasi á mótmælendur í gær. Harkaleg viðbrögð stjórnar- innar hafa verið fordæmd á alþjóðavettvangi. Allur heimurinn fylgist með. Einar Magnús Magnús- son, upplýsingafulltrúi Umferðar- stofu, vísar því á bug að hugmynd að sjónvarpsauglýsingu sem hvetur til bílbeltanotkunar sé stolin. Aldrei hafi verið neitt laun- ungarmál að Umferðarstofa studd- ist við auglýsinguna „Heaven can wait“, sem norska vegagerðin lét gera fyrir nokkrum árum, og fékk til þess leyfi. Í auglýsingunni, sem nefnist Notaðu bílbeltin, má sjá sálir stíga upp til himna eftir banaslys í umferðinni. Sál eins farþegans kemst ekki upp vegna þess að hann er með beltið spennt og því kemst hann lífs af. Handrit norsku auglýsingarinnar er hið sama, en útfærslan er önnur. „Það hefur sprottið upp umræða í bloggheimum um að við höfum stolið hugmyndinni að auglýsingunni, og gengið svo langt að saka auglýsingastofuna okkar um óheiðarleg vinnu- brögð,“ segir Einar. „Þeir sem skrifuðu þetta hefðu auðveldlega getað fundið það út, til dæmis á heimasíðu okkar, að við gerðum auglýsinguna eftir fyrirmynd frá norsku vegagerð- inni og fengum leyfi til að útfæra hana fyrir íslenskar aðstæður. Það er eins og menn haldi að það megi segja hvað sem er á net- inu.“ Rudy Giuliani, sem sækist eftir forsetatilnefningu repúblikanaflokksins, sætir gagnrýni vegna fjáröflunarsam- komu í gær þar sem fólk var beðið um að gefa 9,11 dollara til kosningabaráttu hans. Giuliani var borgarstjóri í New York þegar hryðjuverkaárás- irnar á tvíbura- turnana urðu þar árið 2001 og þykir sumum hann vera að nýta sér það. „Þetta er vanvirðing við arfleifð þeirra þúsunda borgara og 343 hugrökku slökkviliðs- manna sem létust í árásinni,“ sagði forseti samtaka slökkviliðs- manna, Harold Schaitberger. BBC greinir frá. Giuliani biður um 9,11 dollara

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.