Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 10
Héraðsdómur Reykja-
víkur hafnaði í fyrradag kröfu
Flugþjónustunnar á Keflavíkur-
flugvelli, IGS, um að að fella úr
gildi úrskurð áfrýjunarnefndar
samkeppnismála um misnotkun
fyrirtækisins á markaðsráðandi
stöðu. Nefndin hafði gert félag-
inu að greiða 60 milljónir í sekt
vegna samkeppnisbrota og hefur
héraðsdómur nú fallist á það.
Samkeppniseftirlitið komst að
því í mars í fyrra að IGS hefði
misnotað markaðsráðandi stöðu
sína og gerði þeim að greiða 80
milljóna króna sekt. Brot IGS
fólst í því að gerðir voru einka-
kaupsamningar við tíu flugfélög
sem lentu á Keflavíkurflugvelli
og flugfélaginu LTU var gert
samkeppnishamlandi tilboð. Fyrir-
tækið Vallarvinir, sem þá starfaði
á Keflavíkurflugvelli í samkeppni
við IGS, fór halloka úr þeim
viðskiptum.
Þeim úrskurði var áfrýjað til
áfrýjunarnefndar Samkeppnis-
eftirlitsins, sem staðfesti niður-
stöðuna en lækkaði sektina um
tuttugu milljónir. IGS fór þá með
málið fyrir dóm, sem nú hefur
staðfest úrskurð áfrýjunar-
nefndarinnar.
Gunnar Olsen, framkvæmda-
stjóri IGS, segir að ekki hafi verið
tekin ákvörðun um það hvort
dómnum verður áfrýjað til
Hæstaréttar. „En það gefur auga-
leið að menn eru ekki sammála
þessari niðurstöðu,“ segir hann.
Flugþjónustan sektuð um 60 milljónir
Hraðskreiðasti öku-
maður sem tekinn hefur verið fyrir
of hraðan akstur var í gær dæmdur
í tíu vikna fangelsi eftir að hann
mældist á 277 kílómetra hraða á
fyrirtækisbíl sem hann hafði tekið
án vitundar yfirmanns síns.
Tim Brady, sem er 33 ára, hafði
ítrekað verið neitað um að fá
Porsche-bifreið lánaða á bíla-
leigunni sem hann vann hjá áður
en hann laumaðist til að taka hana.
Fyrra metið átti bílasalinn Jason
McAllister sem var tekinn á 251
kílómetra hraða árið 2003.
Brady má ekki aka bifreið í þrjú
ár og þarf að taka bílprófið á ný að
þeim tíma liðnum.
Mesti ökuníð-
ingur Bretlands
Ég ætlaði bara að fá mér
fiðlu
Það skiptir máli að spara á rétt
um stað
Vegmúla 2 – 108 Reykjavík – 550 1310 – verdbref@spron.is – www.spronverdbref.is
*Nafnávöxtun miðast við 31. ágúst 2006 til 31. ágúst 2007, skv. sjodir.is. Peningamarkaðssjóður SPRON er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Rekstrarfélag SPRON. Útboðslýsingu má nálgast á heimasíðu SPRON Verðbréfa, www.spronverdbref.is.
„Maður heyrir stundum að
það sem innflytjendur sakna helst
er maturinn í heimalandi þeirra,“
segir Einar Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðahúss.
Einar segist þó sannfærður um
að námskeið sem Alþjóðahús ætlar
að bjóða upp á mánudaginn 8.
október, í samvinnu við Mennta-
skólann í Kópavogi, eigi strax eftir
að fyllast.
Á námskeiðinu verður kennd
sláturgerð og eiga þeir sem á það
fara að verða fullfærir í lifrar-
pylsu- og blóðmörsgerð. „Íslend-
ingar halda oft að slátur sé sérís-
lenskur matur en svipuð afbrigði
má reyndar finna í flestum löndum
þar sem mikið er um sauðfjárrækt,“
segir Einar um þetta þjóðlega en þó
alþjóðlega námskeið.
Leiðtogi sértrúar-
safnaðar í Utah í Bandaríkjunum
var í gær sakfelldur fyrir aðild að
nauðgun eftir að hafa neytt
fjórtán ára stúlku til að giftast
nítján ára frænda sínum.
Kviðdómur hafnaði rökum
verjanda um að málsóknin gegn
Warren Jeffs væri trúarlegar
ofsóknir. Stúlkan, sem er 21 árs í
dag, segir málið ekki hafa snúist
um trú heldur barnamisnotkun.
Meðlimir safnaðarins iðka
fjölkvæni og telja Jeffs spámann.
Söfnuðurinn klauf sig frá
mormónakirkjunni, sem hefur
bannað fjölkvæni.
Neydd til að
giftast 14 ára
„Það að þau hjón
geti ekki sætt sig við nýtt deili-
skipulag byggist að ég held ein-
göngu á því að þau fengu ekki
stækkun á sinni lóð, sem þau þó
vissulega gátu fengið, bara ekki án
greiðslu,“ segir Baldur Þór Bald-
vinsson, formaður stjórnar
Meistarafélags húsasmiða, eiganda
Kiðjabergs í Grímsnesi.
Eins og sagði í Fréttablaðinu í
gær hafa hjónin Þórdís Tómas-
dóttir og Þór Ingólfsson fengið
fellt úr gildi nýlegt deiliskipulag
fyrir frístundahús í Kiðjabergi. Að
auki voru byggingarleyfi tveggja
sumarhúsa næst sumarbústað
þeirra hjóna afturkölluð og
framkvæmdir við þau stöðvaðar.
Auk athugasemda við skipulagið
sögðust hjónin ósátt við að fá ekki
að stækka lóð sína.
Baldur Þór Baldvinsson segir
hjónin hafa leigt 6.150 fermetra lóð
og haft hana frá því 1990. Lóðirnar
hafi verið misstórar og verðlagðar
eftir stærð.
Baldur segir að í árslok 2001 hafi
verið ákveðið að stækka lóðirnar á
viðkomandi svæði þar sem illa hafi
gengið að koma þeim út. Að ósk
hjónanna hafi verið ákveðið að
stækka lóð þeirra verulega. For-
maður Meistarafélags húsasmiða
hafi heimsótt hjónin með uppdrátt
að breytingunni.
„Þau voru ánægð með að fá
stækkun á lóð sinni en létu jafn-
framt vita af því að þau væru ekki
tilbúin að greiða neitt fyrir þetta
viðbótarland, þetta yrði barasta
skógrækt og þar af leiðandi þeirra
framlag til að breyta landinu úr
auðn í skóglendi. Hjónin vildu sem
sagt stækkun á sínu landi, bara alls
ekki greiða fyrir landið eins og
allir aðrir,“ segir Baldur, sem
kveður að þar með hafi verið hætt
við að gera breytingar á lóðum sem
þegar voru í útleigu.
Einnig segir Baldur að Þór og
Þórdís hafi lagt undir sig 944 fer-
metra land utan lóðar sinnar og
gert þar kofa, þau hafi lagt akveg
sem náð hafi tíu metra inn á
óbyggða nágrannalóð og enn
fremur útbúið veglegt bílastæði.
Ívar Pálsson, lögmaður Þórs og
Þórdísar, segir rangt að hjónin hafi
ekki viljað greiða fyrir lóðastækk-
unina. Þeim hafi einfaldlega verið
neitað um stækkunina.
Neituðu að borga
fyrir stækkun lóðar