Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 24
[Hlutabréf]
Framleiðniaukning á hvern starfs-
mann hefur verið talsvert meiri í
verslun en í öðrum greinum á tíma-
bilinu 2000 til 2006.
Velta í verslun á því tímabili jókst
um 36 prósent að nafnvirði á meðan
starfsfólki í verslun fjölgaði einungis
um átta prósent. Framleiðnin á
hvern starfsmann hefur vaxið um
6,8 prósent að meðaltali frá 1998 til
2005. Þetta kemur fram í Árbók
verslunarinnar fyrir árið 2007 sem
Rannsóknarsetur verslunarinnar og
Kaupmannasamtök Íslands gefa út.
Mestur mældist vöxtur framleiðni
fjármagns í verslun, eða um 10,9
prosent á ári, borið saman við 1,3
prósent meðalvöxt atvinnugreina.
Vöxtur í framleiðni vinnuafls var
heldur minni en þó einnig vel yfir
meðaltali.
Framleiðniaukning
langmest í verslun
Félög sem skráð eru í OMX Kaup-
höllina hér geta fyrir lok næsta
mánaðar fengið hlutabréf sín skráð
í evrum gangi eftir áætlanir OMX
Verðbréfaskráningar Íslands og
Seðlabanka Íslands.
Einar S. Sigurjónsson, forstjóri
OMX Verðbréfaskráningar Íslands,
segir að unnið hafi verið að lausn
mála frá því að athugasemdir bár-
ust frá Seðlabanka Íslands varð-
andi þá fyrirhugaða evruskráningu
hlutabréfa Straums fjárfestingar-
banka fyrr í þessum mánuði. „Við
gerum ráð fyrir að vera komin með
lausn ekki seinna en fyrir lok næsta
mánaðar,“ segir hann, en ekki þarf
að breyta lögum til þess að sú leið
sé fær sem stefnt er að. „Seðla-
bankinn mun veita ákveðna þjón-
ustu og komin er fram tillaga um
hvernig þessu verður fyrir
komið.“
Seðlabanki Íslands benti á að í
15. grein laga um rafræna eigna-
skráningu verðbréfa frá árinu 1997
væri gert ráð fyrir að Seðlabanka
Íslands væri falið peningalegt upp-
gjör með rafræn verðbréf. Ráðgert
hafði hins vegar verið að Lands-
banki Íslands annaðist þetta
uppgjör fyrst í stað, en Seðla-
banki Finnlands tæki svo við á
næsta ári. Boðað hafði verið að
Straumur yrði fyrstur til að
skipta um mynt fyrir bréf sín í
Kauphöllinni og átti það að gerast
20. þessa mánaðar. Þessum fyrir-
ætlunum var frestað vegna ábend-
ingar Seðlabankans frá því 14.
september.
Ekki er þó loku fyrir það skotið
að breyta þurfi samt lögum um raf-
ræna eignaskráningu, enda skiptar
skoðanir um hvort túlka beri 15.
grein laganna, sem vísað er til hér
að ofan, þannig að Seðlabankinn
einn megi hér annast uppgjör með
rafræn bréf. „Til þess að hafa meiri
sveigjanleika í framkvæmdinni í
framtíðinni þarf væntanlega að
eyða allri óvissu,“ segir Einar.
Evrur í Kauphöllina
fyrir lok október
Seðlabanki Íslands mun annast uppgjör vegna evruhlutabréfa í Kauphöll
Íslands. Einar Sigurjónsson, forstjóri OMX Verðbréfaskráningar Íslands, segir að
breyta þurfi lögum til að fara aðrar leiðir.
TIM LUCAS
FJÖLMIÐLUN OG MARKAÐUR
Fyrir auglýsingakaupendur
Fyrir markaðsstjóra
DAGSKRÁ
Birtíngur útgáfufélag
býður þér til fyrir-
lestrar hjá Tim Lucas
á Nordica Hotel
fimmtudaginn
4. október.
Tim Lucas stofnaði alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið
White Lodge árið 2002. White Lodge sérhæfir sig
í ráðgjöf á sviði útgáfu, birtingastefnu, vörumerkja-
stjórnunar og markaðsmála. White Lodge hefur
unnið með fyrirtækjum í Vestur- og Austur Evrópu,
Norðurlöndunum, Ástralíu og Suður Afríku. Tim
talar einnig reglulega á alþjóðlegum ráðstefnum
um birtinga- og auglýsingamál.
Skráning skuldabréfa á OMX Nordic Exchange Iceland
15.000.000.000 kr.
FL Group hf.
Nafnverð útgáfu: Heildarnafnverð bréfanna sem nú eru skráð
er 15.000.000.000 kr. og er nafnverð
hverrar einingar 5.000.000 kr.
Skilmálar skuldabréfa: Um að ræða skuldabréf til 1 árs. Skulda-
bréfin bera 3 mánaða REIBOR vexti með
195 punkta álagi. Höfuðstól þeirra ber að
endurgreiða í einni greiðslu á lokagjalddaga
20. mars 2008. Vexti ber að greiða á 3
mánaða fresti, fyrst 20. júní 2007, síðast
20. mars 2008. Auðkenni flokksins á OMX
Nordic Exchange Iceland er FL 080320 og
ISIN IS0000014546.
Skráningardagur: OMX Nordic Exchange Iceland mun taka
bréfin á skrá þann 28. september 2007.
Umsjónaraðili sölu skuldabréfanna og skráningar á OMX Nordic
Exchange Iceland er Glitnir banki hf., Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík.
Lýsing vegna skráningar bréfanna verður birt í dag, 27. september
2007. Lýsingarnar og önnur gögn sem vitnað er til í þeim er hægt að
nálgast hjá Glitni banka og á heimasíðu útgefanda www.flgroup.is.
Reykjavík, 27. september 2007
FL Group hf.
Skuldabréfa-
skráning
Peningaskápurinn ...