Fréttablaðið - 27.09.2007, Qupperneq 29
Unglingastjörnurnar skörtuðu sínu fegursta á verð-
launahátíðinni Teen Choice Awards.
Verðlaunahátíðin Teen Choice Awards hefur verið hald-
in árlega frá 1999. Þar eru tónlistarmenn, leikarar og
íþróttamenn heiðraðir og bestu sjón-
varpsþættirnir og kvik-
myndirnar valin. Aðeins
unglingar mega kjósa
en verðlaunagripirnir á
hverju ári eru brim-
bretti sem sérstak-
lega er hannað
fyrir hvert ár.
Justin Timber-
lake hefur oftast
unnið til verð-
launa og á nú 21
brimbretti
(reyndar tólf
þeirra með
hljómsveitinni N
Sync).
Stjörnurnar komu í sínu
fínasta pússi og voru
stuttir og nettir kjólar
áberandi.
Stutt er málið
Á mánudag lauk hér í París efnakaupstefnunni „première vision“.
Þessi kaupstefna er einn stærsti efnamarkaður heims. Hann er hald-
inn tvisvar á ári þar sem efnaframleiðendur sýna framleiðslu sína og
þeir sem hanna og framleiða föt kynna sér og kaupa það sem verður
ráðandi á komandi árstíðum.
Hönnuðir eru nefnilega nú þegar langt komnir með hönnun á tísku
næsta vetrar, 2008-9, enda strax í janúar sem herratískan verður
sýnd og svo kventískan í júlí á næsta ári. Meðan á þessari kaupstefnu
stendur koma saman í París allir þeir sem tengjast á einn eða annan
hátt tísku og hönnun frá öllum heimshornum. Gestirnir fara á sama
tíma um borgina í búðir sem eru þekktar fyrir að vera með puttann á
púlsinum á hverjum tíma líkt og Colette-búðin fræga, Kabuki eða
l´Eclaireur. Þessar búðir eru oft ófeimnar við að leita uppi nýja hönn-
uði eða velja aðeins það áhugaverðasta hjá hverju tískuhúsi og eru
því gott dæmi um helstu strauma og stefnur. Sumir láta sér duga að
snerta á öllu, skoða fóður, sauma og önnur smáatriði á hverri flík,
aðrir reyna laumulega að taka myndir og svo eru þeir sem einfald-
lega kaupa flíkina til að taka upp sniðið eða efnið og framleiða nánast
það sama þegar heim er komið. Oft eru það Japanar sem taka upp
eftir öðrum en Kínverjar framleiða svo fyrir þá. Oft má sjá einhverja
nýjung í tísku hverrar árstíðar sem verður svo meira áberandi í
þeirri sem á eftir fylgir. Til dæmis má nefna lakkskó sem sáust að
nýju í herratískunni í fyrravetur en eru í hverri einustu skóbúð þenn-
an veturinn.
Á efnakaupstefnunni eru auðvitað kynntar þær nýjungar sem fram
koma hverju sinni. Í þetta skiptið sjálfþurrkandi eða bakteríudrep-
andi efni, efni sem verja húðina fyrir útfjólubláum geislum og svo
auðvitað umhverfisvæn efni sem sífellt verða fjölbreyttari. Náttúru-
leg efni eru sömuleiðis í mikilli sókn, efni framleidd úr bananahýði,
kókoshnetu, korni, pappír eða mjólk svo eitthvað sé nefnt.
Á sama tíma kynna svokallaðar „bureau du style“, sem mætti kannski
þýða sem stílstofur, hefti sín. Þær framleiða einskonar tískuhefti
sem safna saman hugmyndum um strauma og stefnur næstu árstíða
og selja þau jafnt til fataframleiðenda sem og til þeirra sem vinna að
innanhússkreytingum eða iðnhönnun. Í þessum tískuheftum er til
dæmis hægt að sjá hvaða litir verða ríkjandi jafnt í fatnaði eða ann-
arri hönnun, hvaða munstur munu verða notuð og hvaða efni. Þannig
geta fjöldaframleiðslufyrirtækin sem sífellt reyna að fylgja eftir
stóru tískuhönnuðunum hitt á réttu litina eða rétta smáatriðið sem
mun öllu breyta í komandi tískulínum.
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Auglýsingasími
– Mest lesið
Fæst í apótekum um land allt
Ofnæmisprófuð og mild lína sem er sérstkalega þróuð fyrir
viðkvæma húð ungbarna
Ungbarna andlitskrem – Verndar húðina gegn óæskilegum áhrifum umhverfis og útfjólubláum geislum. Sólarvörn SPF 18, vítamín A&E.
Bossakrem – Mýkir og verndar bleyjusvæðið gegn ertingu, útbrotum og þurrki. Býr til verndandi lag á húðina. A&B5 vítamín. Mjög gott á bruna.
Bossablautklútar – Handhægir klútar í ferðapakkningu. Húðlæknisfræðilega prófaðir. Úr 100% trefjum. Alkóhól- og litefnalausir. Ph gildi 5,5.
Ungbarna baðsápa – Sérlega mild og rakagefandi kremsápa “sápulaus”. Innih. A&E vítamín.
Ungbarna sjampó – Milt sjampó (tearless). Hefur góðan ilm og gerir hárið silkimjúkt.
Ungbarna húðmjólk – Mild og rakagefandi húðmjólk. Inniheldur E&B5 vítamín. Ph gildi 5,5.
Ungbarna olía – Mild olía sem mýkir og hefur róandi áhrif á húðina. Inniheldur A&E vítamín.
Sensitive
ungbarnalína