Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 34
27. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR2 fréttablaðið hafnarfjörður
Nafn Gunnars Björns Guð-
mundssonar er á allra vörum
eftir velgengni kvikmyndar-
innar Astrópíu. Færri vita að
þessi upprennandi leikstjóri
hefur um árabil verið viðloð-
andi leikhús og kvikmynda-
gerð, þar sem Hafnarfjörður
kemur talsvert við sögu.
Gunnar Björn Guðmundsson leik-
stjóri er í skýjunum þessa dagana
með viðtökurnar sem mynd hans
Astrópía hefur hlotið, þar sem
hún hefur laðað að 40.000 bíó-
gesti. Hann segir ætlunina hafa
verið að gera skemmtilega mynd
sem höfðaði til almennings og ekki
annað að sjá en ætlunarverkið hafi
heppnast.
Kvikmyndin þykir almennt séð
góð afþreying, bardagasenurnar
vel útfærðar og heildarútlit
myndarinnar til fyrirmyndar en
þar gegnir Hafnarfjörður stóru
hlutverki.
„Gamli byggingastíllinn er
svo flottur og tímalaus og fæstir
þekkja umhverfið vel nema þá
helst Hafnfirðingar,“ segir Gunnar
um þá ákvörðun að taka myndina
upp í bænum. „Svo er stutt yfir í
hraunið, sem er áberandi í mynd-
inni hvort sem það er í raunheim-
inum sem myndin gerist í eða
ævintýraheiminum.“
Gunnar valdi Hafnarfjörð þó
líka af þeirri einföldu ástæðu að
hann er sjálfur uppalinn þar og
þekkir því umhverfið af eigin
raun. „Ég vissi alveg hvaða hús
eða götur myndu henta í ákveðin
atriði,“ segir hann og bendir á að
myndin hafi meðal annars verið
tekin upp í kringum gömlu göngu-
leiðina hans í Lækjarskóla.
„Myndirnar mínar gerast oft að
einhverju leyti þar,“ segir hann og
nefnir sem dæmi að Hverfisgata
hafi verið sögusvið Karamellu-
myndarinnar, sem var valin stutt-
mynd ársins á Edduhátíðinni 2003.
Fyrir þann tíma hafði Gunnar
getið sér góðan orðstír fyrir stutt-
myndina Á blindflugi, auglýs-
ingagerð og störf sín með Leik-
félagi Hafnarfjarðar, sem hann
segir hafa verið góðan skóla.
„Upphaflega var ég áhugalaus um
leikhús, en fékk leikhúsbakteríu
eftir að hafa unnið með mörgum
af fremstu leikstjórum landsins.
Það kom sér síðan mjög vel við
kvikmyndagerð.“
Síðan þá hefur Gunnar unnið
jöfnum höndum við leikhús og
kvikmyndir og er um þessar
mundir að skoða ýmis verkefni.
„Ég er með nokkur járn í eldinum.
Er meðal annars að vinna að kvik-
myndahandriti upp úr bókinni
Gauragangur ásamt Ottó Geir
Borg. Hvort úr því verður á eftir
að koma í ljós. Þetta gæti orðið
frábær mynd.“ - rve
Hafnarfjörður er
minn heimavöllur
Gunnari Birni finnst Hafnarfjörður kjörinn tökustaður. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Jón Gnarr sem rannsóknarlögreglumaður í Karamellumyndinni. MYND/ÁRNI TORFASON
Hverfisgötu í Hafnarfirði var umbreytt í undraveröld Karamellumyndarinnar.
MYND/ÁRNI TORFASON
Hildur og félagar mæta alls kyns óskapnaði í Astrópíu, þar sem hraunið í Hafnarfirði er áberandi. MYND/BJARNI GRÍMSSON
Halldór Magnússon, sem hér sést við enda borðsins, leikur á móti bróður sínum Steini
Ármanni í myndinni en þeir eru báðir Hafnfirðingar. Tilviljun? MYND/BJARNI GRÍMSSON
Gísli Örn Garðarsson sem óður vísinda-
maður í Karamellumyndinni.
MYND/ÁRNI TORFASON