Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 55
Samstarfsflokkarnir í borgarstjórnarmeiri-
hlutanum, Sjálfstæðis-
flokkur og Framsóknar-
flokkur eru ekki samstiga
í málum Gagnaveitu
Reykjavíkur. Allt frá því
fyrst var hafist handa við
ljósleiðaravæðingu fyrir
um áratug með stofnun Línu Net
hafa sjálfstæðismenn haft allt á
hornum sér varðandi verkefnið.
Spjót sjálfstæðismanna hafa í gegn-
um árin ekki hvað síst staðið á fyrr-
verandi borgarfulltrúa Framsókn-
arflokksins, Alfreð Þorsteinssyni. Í
gagnrýni Sjálfstæðisflokksins fór
jafnan fremstur í flokki Guðlaugur
Þór Þórðarson sem gekk mjög hart
fram og notaði þung orð
um að illa væri farið með
almannafé við ljósleiðara-
væðinguna.
Fyrir kaldhæðni
örlaganna er síðan verð-
mat á Gagnaveitur
Reykjavíkur lagt fram í
stjórn Orkuveitunnar
sama dag og birtar eru
fréttir að því að Guðlaug-
ur Þór Þórðarson, núver-
andi heilbrigðisráðherra,
hafi rekið Alfreð Þorsteinsson úr
byggingarnefnd Hátæknisjúkra-
húss. Það þarf ekki að undra að
nokkrum klukkustundum eftir að
fundi stjórnar lauk voru fréttir af
tugmilljarða verðmati á Gagna-
veitu Reykjavíkur búnar að leka út,
þrátt fyrir að stjórnarformaður
hafi lagt áherslu á að trúnaður yrði
um málið.
Ágreiningur samstarfsflokkanna
nær lengra, þar sem borgarstjóri,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, og
stjórnarformaður OR, Haukur Leó-
son, hafa báðir lýst áhuga á að selja
Gagnaveitu Reykjavíkur og hefur
borgarstjóri raunar lýst því yfir að
„Gagnaveita Reykjavíkur verði
seld ef sanngjarnt verð fáist fyrir
hana“, eins og fram kemur í Morg-
unblaðinu 17. júlí síðastliðinn.
Fulltrúar Framsóknarflokksins
hafa hins vegar ekki verið jafn
áhugasamir um söluna á Gagna-
veitu Reykjavíkur. Óskar Bergs-
son, annar helsti forystumaður
flokksins í borgarstjórn, aftók með
öllu að Orkuveitan yrði bútuð upp
og einkavædd í hlutum í umræðum
um fjárhagsáætlun borgarinnar sl.
vetur. Ekki hefur hingað til verið
hægt að greina nokkurn vilja í
röðum framsóknarmanna til að
selja Gagnaveituna og eftir fram-
komið verðmat er ekki líklegt að sá
áhugi hafi aukist.
Ekki liggur ljóst fyrir hvaða rök
liggja að baki því að trúnaður eigi
að vera um verðmatið. Ákvörðun
um einkavæðingu Gagnaveitunnar
myndi kalla á mikla þjóðfélagsum-
ræðu þar sem verðmat og verð-
matsþróun fyrirtækisins væri ein
af grunnforsendum umræðunnar.
Ef marka má fréttir, er það sem
eftir stendur, að verðmatið er vand-
ræðalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn
og sýnir glögglega þá tækifæris-
mennsku sem einkennt hefur þeirra
málflutning í áratug um ljósleið-
aravæðinguna. Talsmenn flokksins
hafa haft á röngu að standa og borið
fyrri meirihluta í borginni þungum
sökum. Er eðlilegt að krefjast trún-
aðar til að hylma yfir því?
Fulltrúar Samfylkingar í stjórn
og varastjórn hafa farið fram á að
leynd verði aflétt af niðurstöðu
verðmats svo að stjórnarmenn og
aðrir geti óhindrað tjáð sig um
málið. Þeirri beiðni hefur enn ekki
verið svarað þrátt fyrir að upplýs-
ingar um verðmatið hafi víða
verið.
Höfundur er borgarfulltrúi
Samfylkingar.
Hinn stríðandi meirihluti í Reykjavík
Sumir eru alltaf að skrifa greinar og senda fjöl-
miðlum og er ég ekki einn
þeirra. Ég er jafnvel ekki
svo viss um að þessi grein
verði birt þar sem hún fjall-
ar ekki um lyfjaskandal, eit-
urlyf eða annað sem gæti
hneykslað lesendur eða þá
sem stýra því sem birtist í
fjölmiðl-
um.
Bróðir
minn varð
Banda-
ríkja-
meistari í
sam-
kvæmis-
dönsum í
byrjun
septemb-
er og þar
sem mér og mörgum öðrum
fannst það vera fréttnæmt
þá setti ég saman smá pistil
og sendi á þá fjölmiðla sem
mér datt í hug að hefðu
áhuga, Morgunblaðið,
Fréttablaðið, Blaðið, Sjón-
varpið og Stöð 2. Samkvæmt
því sem ég best veit þá hefur
einungis Blaðið birt eitt-
hvað, Fréttablaðið hafði
samband við hann en eins og
ég sagði þá veit ég ekki til
þess að eitthvað hafi verið
birt. Hinir miðlarnir höfðu
ekki samband og hafa ekki
birt neitt.
Við erum að tala um að
Íslendingur hafi orðið
Bandaríkjameistari í sam-
kvæmisdönsum. Bandarík-
in eru ein af stærstu þjóðum
í heimi eins og flestir vita og
ef það er ekki fréttnæmt að
Íslendingur hafi orðið
Bandaríkjameistari í sam-
kvæmisdönsum, hvað er þá
fréttnæmt? Jú, ég skal segja
ykkur það. Um leið og ein-
hver misstígur sig, t.d. ef
dansari fellur á lyfjaprófi,
þá er komin frétt. Þá birta
allir fjölmiðlar eitthvað um
málið. Erum við virkilega
þannig að það sem er jákvætt
er ekki frétt og það sem er
neikvætt er frétt? Eða eru
fjölmiðlarnir bara þannig?
Það eru jú þeir sem vinna á
fjölmiðlunum sem stjórna
því sem birtist þar. Ég vona
að ég sé ekki sá eini sem vill
sjá meira af jákvæðum frétt-
um í fjölmiðlum.
Höfundur er danskennari.
Erum við
virkilega
svona? DAGUR
ÆSKU
LÝÐSS
TARFS
MÁLÞING UM GILDI
ÆSKULÝÐSSTARFS,
29. SEPTEMBER KL. 14:00
Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR
DRÓTTSKÁTASVEITIN DÍMON
GYLFI JÓN GYLFASON
SÁLFRÆÐINGUR
KRISTÍN RÓS HÁKONARDÓTTIR
AFREKSÍÞRÓTTAKONA
BJARNI TÖFRAMAÐUR
STEFÁN EIRÍKSSON
LÖGREGLUSTJÓRI
ICESTEP DANSHÓPURINN
TORFI TÓMASSON
VITNISBURÐIR
FRÁ STARFI AÐILDARFÉLAGA
KLIFURVEGGUR, KASSAKLIFUR,
NÆLUGERÐ, BLÖÐRUR
OG MARGT FLEIRA
LEIKTÆKI ERU OPIN MILLIKL. 13 OG 17
Bandalag íslenskra skáta