Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 65
Sendiráð Japans og Japan
Foundation ásamt Alþjóðlegri
kvikmyndahátíð í Reykjavík
bjóða upp á viku af viðburðum
tengdum japönskum teiknimynd-
um og hefst hún í dag. Viðburð-
irnir verða haldnir á þremur
stöðum, í Norræna húsinu,
Háskóla Íslands og Listaháskóla
Íslands.
Kana Okubo skipuleggur
hátíðina. „Japanskar anime-
myndir eru afar vinsælar um
heim allan og ekki síst hér á
Íslandi. Því þótti okkur upplagt að
bjóða upp á dagskrá þar sem
Íslendingar geta fengið að
kynnast þessari list nánar,“
segir Kana.
Nobuyuki
Tsugata,
sérfræðingur
í japönskum
teiknimynd-
um, kemur
til landsins í
tengslum við
hátíðina.
Hann er
virtur
prófessor í
anime-
fræðum og
kennir meðal annars við háskól-
ann Gakshuin. Hann kemur til
með að halda þrjá fyrirlestra sem
fjalla um stöðu anime-mynda,
fortíð þeirra og framtíð.
Á hátíðinni verða enn fremur
sýndar tvær anime-kvikmyndir í
fullri lengd og ein stuttmynd.
„Tvær myndanna byggjast á
gömlum japönskum ævintýrum.
En það er ekki þar með sagt að
þær séu bara fyrir börn, þær búa
yfir meiri dýpt en svo. Ég held að
allir aldurshópar geti haft ánægju
af þessum myndum,“ segir Kana.
Meðan á vikunni stendur
verður haldin manga-teiknisam-
keppni og eru nemendur á öllum
skólastigum hvattir til að taka
þátt í henni. Teikningin getur
verið ein mynd eða lítil saga með
nokkrum myndum, teiknuð á eitt
A4 blað. Hægt er að skila
teikningum inn í keppnina í
Norræna húsinu dagana 1. og 2.
október sem og til Sendiráðs
Japans, Laugavegi 182, 105
Reykjavík. Skilafrestur er til 5.
október.
Japönsk
ævintýri
Kaffistjóri er Davíð Þór Jónsson, þýðandi Allir velk
omnir!
Glæpon eða góðmenni
– hvaða áhrif hafa samfélagslegar aðstæður á tíðni afbrota í þjóðfélaginu?
Dr. Jón Gunnar Bernburg hjá Félagsvísindadeild Háskóla Íslands
og Jón Óttar Ólafsson hjá ríkislögreglustjóra ræða málið.
Fjórða Vísindakaffið í KVÖLD 27.sept.
- vísindamenn segja frá rannsóknum sem koma öllum við – á mannamáli
Kaffistofa Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúsi frá kl. 20.00 – 21.30