Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 68

Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 68
Næst... ...þegar þú ætlar að baka blauta súkkulaðiköku fyrir matargesti, splæstu þá í gæða- súkkulaði. Eftirréttur- inn verður ógleyman- legur. Vinsældir vefsíðunnar hvaderimatinn.is hafa farið vaxandi síðan hún fór fyrst í loftið í febrúar síðastliðnum. Notendur hennar er nú orðnir rúmlega tvö þúsund, að sögn Felix Gylfasonar verkefna- stjóra. Hvaderimatinn.is þjónar hagsmunum þeirra ófáu Íslendinga sem vinna mikið og hafa lítinn tíma til að hugsa um hvað þeir eigi að bera á borð í kvöldmatn- um. „Fólk getur skráð sig hjá okkur. Það velur innihaldið í því sem það vill hafa yfir vikuna, hversu oft það vill hafa fisk eða kjúkling, til dæmis, og svo velur það erfiðleikastig á matseldinni. Þá setur síðan upp matseðil fyrir heilan mánuð fyrir fólk,“ útskýrir Felix. Innkaupalista dagsins er annaðhvort hægt að prenta út af netinu, eða fá sendan með SMS- skilaboðum, en hægt er að aðlaga uppskriftir að fjölda matargesta. „Fyrir meðlimi bendum við líka oft á vín sem henta vel með hverjum og einum rétti,“ bæir Felix við. Betrumbætt útgáfa af síðunni fer í loftið á næstu vikum, þar sem notendum bjóðast enn fleiri möguleikar. „Við ætlum að bæta við ítarlegri leitarmöguleikum og setja inn matseðla fyrir veislur, partí og saumaklúbba,“ segir Felix. „Það verður líka hægt að vista uppskriftir og búa til sína eigin uppskriftabók, gefa einkunnir og fleira,“ bendir hann á. Í framtíðinni verður notendum boðið upp á ýmiss konar tilboð og afslátt, enda vilja aðstandendur síðunnar hafa hana neytendavæna. „Hún á að vera lifandi og skemmtilegur vefur,“ segir Felix. Matseðill fyrir mánuðinn Döðlur eru hvað ferskastar á þess- um árstíma, svo nú er um að gera að gæða sér á þessu náttúrulega sælgæti. Döðlur hafa verið hluti af miðausturlenskri matargerð svo árþúsundum skiptir, og eru góðar bæði beint úr lófanum og sem hluti af matarréttum. Ferskar döðlur geymast í allt að tvær vikur í ísskáp, en þurrkaðar í allt að ár. Sætleiki þeirra gerir að verkum að þær geta auðveldlega hlaupið í skarðið fyrir súkkulaði, þegar sykurþörfin gerir vart við sig. Þær má einnig saxa og nota í brauð, eftirrétti eða hvað annað sem hugurinn girnist. Ferskar döðlur Öll góð matreiðsla hefst og endar á smjöri Ostakökur njóta mikilla vinsælda um heim allan. Þær eru ekki jafn erfiðar við að eiga og margir halda, að sögn Dómhildar Sigfús- dóttur. Ostakökur eiga ættir sínar að rekja til Bandaríkjanna. Þar eru þær til í óteljandi útgáfum, en rjómaost- urinn er bæði upphafið og endir- inn á ostakökunum. Dómhildi Sig- fúsdóttur má með réttu kalla ostakökusérfræðing, en hún starf- aði hjá Osta- og smjörsölunni í 28 ár. Nú rekur hún sitt eigið upp- skrifta- og tilraunaeldhús, sem býr til dæmis yfir ábendingum um ostakökur. „Ostakökur eru ýmist bakaðar, hleyptar eða þykktar með eggjum og rjóma,“ útskýrði Dómhildur. „Tegundirnar eru samt mjög ólík- ar, þær bökuðu eru til dæmis mun þyngri en hinar,“ benti Dómhildur á, en hún segir hina raunverulegu ostaköku vera bakaða. Dómhildur segir lítið mál að gera ostakökur, sama hvaða aðferð er notuð. „Það eina sem þarf að varast ef maður bakar kökuna er að þær þola ekki blástursofn,“ bendir hún á. Þá þarf að gefa kökunni tíma til að kólna áður en hún er tekin úr forminu. „Ostakökur geymast alveg í tvær vikur í ísskáp og eru bestar eftir svona tvo til fjóra daga. Ef þær eru notaðar nýjar er botninn oft svo þurr, sérstaklega á þeim hleyptu,“ bendir Dómhildur á. „Hins vegar má ekki geyma þær í forminu, því það er fljótt að ryðga,“ segir hún. Þeir eru margir sem á haustin íhuga að koma mataræði í nýtt og betra lag. Fyrir fólk í þeim hug- leiðingum er úr mörgu að velja, og ýmiss konar námskeið í boði. Maður lifandi stendur reglulega fyrir matreiðslunámskeiðum þar sem hollusta og heilnæmt hráefni er í fyrirrúmi. Undir yfirskrift- inni Heilsukostur eru matreiðslu- námskeið og námskeið um kökur og eftirrétti. Einnig bjóðast nám- skeið um hráfæði og um jurta- notkun fyrir börn. Í október stendur Ebba Guðný Guðmundsdóttir fyrir námskeiði um hvernig á að útbúa einfaldan en næringarríkan mat fyrir börn í Heilsuhúsinu í Lágmúla. Hún mun fara yfir á hvaða fæðutegundum er gott að byrja og hvenær, ásamt mörgum öðrum atriðum. Hildur Guðmundsdóttir hjá Yggdrasli mun halda námskeið um mataræði og holla næringu fyrir börn. Þau eru þegar hafin, en verða haldin reglulega. Hildur verður þar að auki með framhalds- námskeið í október. Áhugasamir geta nálgast frek- ari upplýsingar um námskeiðin á umræddum stöðum, eða á heima- síðum þeirra: madurlifandi.is, heilsa.is og yggdrasill.is. Kennt á mataræði LR HENNING VIRKAR!!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.