Fréttablaðið - 27.09.2007, Side 70
Ford-fyrirsætukeppnin fer
fram í Iðnó í kvöld. Keppnin
er nú í höndum Reykjavik
Casting og fer fram með
nýju sniði.
Tíu stúlkur koma fram í keppninni
og ein þeirra verður send sem full-
trúi Íslands í alþjóðlega Ford-
keppni sem haldin er í New York.
Sigurvegari þeirrar keppni hlýtur
starfssamning við Ford Model
Management að andvirði 250 þús-
und dollara.
Keppnin í ár er sú fyrsta síðan
Reykjavík Casting tók við fram-
kvæmd hennar. „Okkur langaði að
nota tækifærið og koma réttum
skilaboðum áleiðis til ungu kyn-
slóðarinnar sem er að vaxa úr
grasi og lítur upp til fyrirsætna,“
sagði Alexía Björg Jóhannesdóttir,
forstjóri Reykjavík Casting, sem
hafði því samband við Forma, sam-
tök átröskunarsjúklinga, um sam-
starf. „Þær hafa unnið með stelp-
unum í æfingaferlinu og voru líka
með í að sjá til þess að stelpurnar
sem við völdum í keppnina væru
heilbrigðar,“ bætti Alexía við.
Undanfarið ár hefur átt sér stað
mikil umræða um átröskunarsjúk-
dóma í tískuheiminum og segir
Alexía vitundarvakningu hafa átt
sér stað. „Fyrirsætur eiga ekki að
þurfa að vera veikar til að fá vinnu.
En það er líka mikilvægt að koma
því til skila að það eru líka til
grannar stelpur sem eru heil-
brigðar,“ bætti hún við.
Í dómnefnd keppninnar sitja að
þessu sinni Robert Knapp, frá
Ford Model Management í París,
Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, mark-
aðsstjóri Smáralindar, og Bern-
hard Ingimundarson ljósmyndari.
Ágóði af miðasölu á keppnina
mun renna til Forma, en Alexía
segir það áform framtíðarinnar að
styrkja mismunandi góðgerðasam-
tök eða málefni á ári hverju.
Fjölmargar minningarathafnir
um ítalska tenórinn Luciano
Pavarotti verða haldnar víðs
vegar um heiminn frá og með 6.
október. Þá verður liðinn mánuð-
ur síðan hann lést úr krabba-
meini.
Athafnirnar verða haldnar í
yfir níutíu ítölskum menningar-
setrum úti um allan heim, þar á
meðal í Nýju-Delí á Indlandi þar
sem frægar óperur sem Pavarotti
flutti verða á efnisskránni.
Utanríkisráðuneyti Ítalíu stend-
ur fyrir athöfnunum. Með því vill
það leyfa sem flestum heimsbú-
um að hlýða á merkustu augna-
blikin á ferli Pavarottis.
Tenórinn, sem varð 71 árs, var
þekktur fyrir að hafa fært óper-
una til almennings. Sérstaklega
þykir flutningur hans á laginu
Nessun Dorma, sem var einkenn-
islag heimsmeistarakeppninnar í
fótbolta árið 1990, hafa opnað
eyru fjöldans.
Pavarottis minnst víða
Nýjasta verk Ólafs Elíasson-
ar, vetnisknúinn bíll smíðað-
ur úr ís, er til sýnis í stórum
frystiklefa á Nýlistasafninu í
San Fransisco. Bíllinn er
hluti af sýningu listasafnsins
á verkum Ólafs undir nafninu
„Your Tempo: Olafur Elias-
son“.
Bíllinn er smíðað-
ur úr áli og ryðfríu
stáli og yfir því eru
nokkur lög af ís.
Með hönnuninni
vill Ólafur sýna
fram á tengslin
milli bílahönnun-
ar og aukinna
gróðurhúsaá-
hrifa í heiminum.
Þýski bílaframleiðandinn BMW
valdi Ólaf fyrir tveimur árum til
að hanna fyrir sig bíl í listbíla-
safnið sitt. Átti bíllinn að vera
knúinn vetni og þurfti Ólafur að
tengja listhönnunina við þennan
framtíðarorkjugjafa.
Bíll Ólafs er sá sextándi í list-
bílaröð BMW sem hefur verið til
síðan um miðjan áttunda áratug-
inn og hafa merkir listamenn
hannað hina fimmtán. Meðal
þeirra eru Andy Warhol, Roy
Lichtenstein og Frank Stella en
safnið á að endurspegla þróun
listarinnar á hverjum tíma í sam-
hljómi við iðnhönnun og tækni-
nýjungar.
Sýningunni á ísbíl Ólafs lýkur
þrettánda janúar á næsta ári.
Ísbíll Ólafs sýndur í frystiklefa
Enski dúettinn Prinzhorn Dance School, skoska
sveitin Theatre Fall og Roxy Cottontail frá New
York eru á meðal þeirra sem hafa bæst við dagskrá
Iceland Airwaves-hátíðarinnar.
Á meðal fleiri flytjenda eru Forgotten Lores,
Sverrir Bergman, Bootlegs, Valgeir Sigurðsson,
Elíza og Retron. Fjöldi norskra listsamanna verða á
Airwaves í ár. Þar á meðal verða ólótabelgirnir í
Ungdomskulen, sem hafa vakið mikla lukku fyrir
pönkskotna rokktónlist sína. Telja margir að þar sé á
ferðinni skemmtilegasta hljómsveit Norðmanna í
dag. Einnig koma fram norski teknóboltinn Mental
Overdrive og elektró-poppdúettinn Frost.
Áður höfðu flytjendur á borð við Bloc Party,
Deerhoof, Lali Puna, Of Montreal og múm tilkynnt
komu sína á Airwaves, sem verður með afar
fjölbreyttu sniði í ár.
Miðasala á hátíðina, sem hefst eftir þrjár vikur, er
í fullum gangi og kostar armbandið 7.900 krónur út
september. Eftir það hækkar verðið í 8.500 krónur.
Flytjendum fjölgar á Airwaves