Fréttablaðið - 28.09.2007, Síða 2
Róbert, er Grímseyjarferjumál-
ið loks í höfn?
Ekki hefur komið til skoð-
unar í heilbrigðisráðuneytinu að
leyfa almenna sölu nikótínlyfja í
verslunum.
Sænska ríkisstjórnin ákvað í
vikunni að leyfa slíka sölu, á þeim
forsendum að erfitt væri að rök-
styðja að í landinu væri auðveld-
ara að ná í sígarettur en nikótín-
tyggjó.
„Við höfum ekki skoðað þetta
sérstaklega, en þessi mál eru í
stöðugri skoðun,“ segir Hanna
Katrín Friðriksdóttir, aðstoðar-
maður heilbrigðisráðherra.
Ráðherra hafi þó rætt fyrir-
komulag lyfsölu, almennt séð, við
fjölmarga síðustu vikurnar.
Nikótínsala
ekki skoðuð
í ráðuneyti
„Við vörum við
veiðileyfakaupum í Varmá uns
flóð réna,“ sagði á vef Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur í gær.
Mikil flóð hafa verið í Varmá í
Mosfellbæ eftir úrhellisrigningu
sem slegið hefur öll met á
svæðinu. „Sem dæmi eru
göngubrýr við golfvöllinn orðnar
ánni að bráð en á þeim slóðum
eru vinsælir veiðistaðir stanga-
veiðimanna,“ segir enn fremur á
vef Stangaveiðifélagsins. Þar er
þó bent á að vatnsmagn Varmár
sé fljótt að réna þegar styttir upp.
Veitt er í Varmá til og með 20.
október.
Varað við að
kaupa veiðileyfi
Íslenskur götumark-
aður fíkniefna hér á landi veltir
allt að 7,6 milljörðum króna á ári,
séu lagðir til grundvallar útreikn-
ingar um áætlað magn, svo og
fíkniefnaverðskrá SÁÁ.
Samkvæmt upplýsingum og
útreikningum sem Þórarinn Tyrf-
ingsson, yfirlæknir á Vogi, hefur
undir höndum má áætla að um 1,1
tonn af kannabisefnum hafi verið
á markaði hér á síðasta ári, um 400
kíló af amfetamíni, um 200 kíló af
af kókaíni og að minnsta kosti 20
kíló af e-töflum. Heildarsöluverð
er miðað við að ofangreint magn
seljist á götuverði.
Karl Steinar Valsson, afbrota-
fræðingur og yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, segir ekki liggja
fyrir neinar staðfestar tölur um
árlega veltu fíkniefnamarkaðar-
ins. Einungis sé hægt að áætla út
frá upplýsingum sem geti gefið
ákveðnar vísbendingar.
„Útilokað er að kortleggja hvað-
an það mikla fjármagn sem neyt-
endur fíknefna greiða fyrir þau á
götunni er komið,“ segir hann.
„Neytendurnir koma úr öllum
stéttum þjóðfélagsins. Greiðslur
fyrir fíkniefni geta verið með
einum eða öðrum hætti. Algengt
er að þeir sem eru í neyslu séu
einnig í dreifingu og fjármagni
þannig efnin sem þeir neyta. Þá er
hluti fíkniefnakaupa fjármagnað-
ur með innbrotum og þjófnaði.
Þekkt um allan heim að skýr tengsl
hafa verið á milli fíkniefnavið-
skipta og verslunar með annan
ólöglegan varning,“ segir Karl
Steinar enn fremur.
Spurður um hvert megi ætla að
andvirði milljarða fíkniefnasölu
renni segir Karl Steinar að gera
megi ráð fyrir að hluti af fjár-
magninu haldi áfram í fíkniefna-
veltunni.
„En það sem skiptir mestu máli
fyrir þá sem eru í þessum heimi er
að koma þeim fjármunum sem
þeir ná inn, umfram fíkniefnavið-
skiptin, í löglegt umhverfi. Menn
hafa notað ýmsar leiðir í þeim
efnum, svo sem að stofna til
rekstrar af ýmsu tagi, þar sem
þeir geta svo aukið veltuna með
afrakstri fíkniefnaviðskipta. Það
getur verið um að ræða umsýslu
með lausafjármuni, húsnæði eða
bifreiðar eða þá rekstur verslunar
eða veitingahúsa og svo mætti
áfram telja. Séu umsvifin nógu
mikil geta menn verið með allar
þessar leiðir opnar í einu. Með
þessu móti geta menn komið ólög-
lega fengnum fjármunum inn í
umgjörð sem lítur löglega út á
yfirborðinu þar til farið er að
rekja peningana til uppruna síns.“
Keyptu fíkniefni fyrir
sjö og hálfan milljarð
Veltan á götumarkaði fíkniefna hér á landi nam allt að 7,6 milljörðum króna
á síðasta ári, samkvæmt nýrri samantekt yfirlæknisins á Vogi. Yfirmaður
fíkniefnadeildar segir hluta fjármagns áfram í veltunni.
Karlmaður á fertugs-
aldri var í gær dæmdur í fjórtán
mánaða fangelsi fyrir að skalla
annan mann á gamlárskvöld 2005.
Maðurinn var dæmdur í tólf mán-
aða fangelsi í héraði en þar sem
hann rauf skilorð með broti sínu
þótti eðlilegt að tíu mánaða dómur
hans, frá árinu 2003, væri tekinn
með í reikninginn.
Maðurinn var hjá foreldrum
sínum í heimsókn á gamlárskvöld
en þar voru einnig bróðir hans og
sambýliskonur þeirra ásamt fleiri
gestum. Bræður rifust í fjöl-
skylduboðinu og enduðu leikar
með því að til átaka kom. Félagi
bróður árásarmannsins reyndi að
stía bræðrunum í sundur ásamt
föður þeirra, en það endaði með
því að hann var skallaður með því
afleiðingum að framtennur í
honum brotnuðu. Auk þess kom
stór skurður í neðri vörina á mann-
inum en sauma þurfti tólf spor til
að loka skurðinum.
Árásarmaðurinn viðurkenndi
hjá lögreglu, þegar skýrsla var
tekin af honum, að hafa skallað
manninn en hafði aðra sögu að
segja fyrir dómi.
Í dómi Hæstaréttar segir að
ekkert hafi komið fram sem rýrði
játningu hans hjá lögreglu og því
væri staðfest niðurstaða héraðs-
dóms um að maðurinn væri sekur
um brotið sem hann var ákærður
fyrir.
Skallaði mann og rauf skilorð
Níu mönnum á Vali IS-18 var
komið til bjargar í gær eftir að
báturinn varð vélarvana í um
einni og hálfri sjómílu frá landi.
Björgunarskipið Gunnar
Friðriksson og hafnsögubátur frá
Ísafirði voru kölluð út um
tvöleytið í gær en Valur, sem er
158 brúttólesta bátur, rak hratt í
norður í mjög slæmu veðri.
Sædísin, ferðaþjónustubátur úr
Bolungarvík, kom fyrst að Val um
klukkan hálfþrjú. Gunnar
Friðriksson kom á staðinn rétt
fyrir þrjú og gekk ferð þeirra til
hafnar áfallalaust.
Vélarvana
í Jökulfjörðum
Karlmaður á þrítugs-
aldri var í gær úrskurðaður í
áframhaldandi gæsluvarðhald til
18. október en fyrri gæsluvarðhal
dsúrskurðurinn rann út í gær.
Maðurinn var handtekin á
hafnarbakkanum á Fáskrúðsfirði
á sama tíma og Guðbjarni
Traustason og Alvar Óskarsson,
sem báðir eru 25 ára, voru
handteknir um borð í skútu með
rúmlega 60 kíló af fíkniefnum
innanborðs, þar af um 45 kíló af
amfetamíndufti.
Ranglega var frá því greint í
Fréttablaðinu á miðvikudag að
Bjarni Hrafnkelsson, sem
grunaður er um að hafa skipulagt
smyglið, hefði verið yfirheyrður
hjá lögreglunni fyrr í vikunni.
Það hefur ekki verið gert enn og
óvíst hvenær byrjað verður á því,
að sögn Sveins Andra Sveins-
sonar, lögmanns Bjarna.
Verður áfram í
gæsluvarðhaldi
Að minnsta kosti níu manns létust og
ellefu særðust þegar stjórnarherinn í Búrma greip
til vopna gegn tugum þúsunda andófsmanna í gær.
Til harðra átaka kom í Rangún, stærstu borg
landsins, og 31 af hermönnum stjórnarinnar
særðist.
Einn hinna látnu er fimmtugur japanskur
fréttamaður, Kenji Nagai, sem var að taka myndir
af atburðunum. Japönsk stjórnvöld hugðust senda
stjórnvöldum í Búrma harðorð mótmæli vegna
atviksins.
Fyrir dögun í gærmorgun réðst herinn inn í
nokkur klaustur þar sem hreyfing mótmælenda
hefur verið öflug. Munkur í einu klaustranna, Ngwe
Kyar Yan, segir að fjöldi munka hafi orðið fyrir
barsmíðum og milli 100 og 150 hafi verið handteknir.
„Hermennirnir lokuðu klausturhliðinu með
bifreið sinni, brutu upp lásinn og réðust inn í
klaustrið,“ segir munkurinn, sem vildi ekki láta
nafns síns getið. „Þeir brutu niður hurðir, og brutu
rúður og húsgögn. Þegar munkarnir sýndu
mótspyrnu skutu þeir á munkana og beittu táragasi,
börðu munkana og drógu þá út í bílana.“
Svipaðar sögur bárust frá fleiri klaustrum í
Rangún og víðar í Búrma. Hermenn handtóku
einnig Myint Thein, talsmann lýðræðishreyfingar-
innar sem Aung San Suu Kyi er í forystu fyrir.
Karlmaður er alvarlega
slasaður eftir að bíll sem hann
var farþegi í fór út af í beygju
austanmegin á Hellisheiði eystri
um klukkan þrjú í gærdag.
Maðurinn var fluttur með
sjúkraflugi á Landspítalann í
Fossvogi. Engar fréttir fengust
frá lækni í gærkvöldi um
líðan mannsins en hann var í
rannsóknum þegar blaðið fór í
prentun.
Þrír karlmenn voru í bílnum og
var hinn slasaði farþegi í aftursæti.
Ökumaðurinn slapp við meiðsli en
sá þriðji hlaut minniháttar meiðsl.
Engin hálka var á veginum en
mjög hvasst. Lögreglan rannsakar
tildrög slyssins.
Einn alvarlega
slasaður
Börn sem voru við
æfingar í karate og taekwondo
urðu skelkuð þegar eldur kom upp
í salerni í búningsklefa síðdegis í
gær í íþróttahúsi Fjölnis í
Grafarvogi. Eldurinn uppgötvaðist
er mikinn reyk lagði um kjallara
hússins. Engin börn voru þá í
klefanum en sum barnanna voru í
sal þar skammt undan. Eldur
reyndist hafa verið kveiktur í
nokkrum rúllum af salernispappír.
Börnin voru leidd út úr húsinu en
föt barnanna voru hins vegar
áfram í búningsklefanum og taldi
þjálfari sem rætt var við að fötin
væru ónýt af reyknum.
Eldur kveiktur í
salernisrúllum