Fréttablaðið - 28.09.2007, Page 8
Hvað heitir yfirlæknirinn á
Vogi?
Í hvaða heimsálfu er
Búrma?
Hvaða starfsstétt hlýtur
viðbótargreiðslu vegna álags að
upphæð þrjátíu þúsund krónur
á mánuði?
Gunnar Stefán
Möller Wathne var handtekinn á
Indira Gandhi-alþjóðaflugvellinum
í Nýju-Delí á Indlandi síðastliðinn
föstudag. Hann er grunaður um
stórfellt peningaþvætti á fíkni-
efnagróða í Bandaríkjunum og
hefur verið eftirlýstur af þar-
lendum yfirvöldum undanfarin ár.
Þetta kemur fram á fréttavefnum
Indianexpress.com.
Samkvæmt heimildum ind-
verska miðilsins var gefin út
ákæra á hendur Gunnari Stefáni í
Bandaríkjunum snemma árs 2003
eftir að Willam nokkur Pikard var
sakfelldur fyrir framleiðslu og
sölu á LSD. Stefáni er gefið að sök
að hafa hjálpað Pikard við fjár-
festingar í Rússlandi fyrir allt að
200 milljónir íslenskra króna af
fíkniefnagróða hans.
Peningaþvættið er talið hafa
farið fram með þeim hætti að Pik-
ard hafi notað rannsóknastöðu við
háskóla í Los Angeles sem skálka-
skjól. Rannsóknir hans voru fjár-
magnaðar fyrir milligöngu rúss-
nesks starfsbróður hans við
háskólann en peningarnir voru í
raun í eigu Pikards og voru þvætt-
aðir í fyrirtækjum í eigu Gunnars
Stefáns.
Peningaþvætti er litið alvarleg-
um augum í Bandaríkjunum og er
hámarksrefsing fyrir slíkt brot
þar í landi tuttugu ára fangelsi.
Gunnar Stefán kemur fyrir
dómara á Indlandi í dag en hann
hefur farið fram á að vera sleppt
gegn tryggingu.
Tekinn eftir fjögurra ára flótta
Bandaríkin stilla
sér upp ásamt Kína, Indlandi og
fleiri stórum mengunarríkjum í
útblæstri gróðurhúsalofftegunda
í andstöðu sinni við að ríki
skuldbindi sig til að draga úr
útblæstri gróðurhúsalofttegunda
eins og Sameinuðu þjóðirnar og
Evrópuríki kalla eftir.
Fulltrúar sextán stærstu meng-
unarríkja heims í útblæstri gróð-
urhúsalofttegunda komu saman í
Washington, höfuðborg Band-
aríkjanna, í gær til að ræða hvern-
ig bregðast skuli við
loftslagsbreytingum í heiminum.
Bandaríkjastjórn stendur fyrir
þessari tveggja daga ráðstefnu
en henni ber upp þremur dögum
eftir að Sameinuðu þjóðirnar
stóðu fyrir sérlegu þingi
háttsettra leiðtoga um lofts-
lagsbreytingar sem fram fór í
New York.
Á þinginu sagði Ban Ki-Moon,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, að tími fyrir efasemdir
væri liðinn og hvatti til þess að
gripið yrði til skjótra aðgerða til
að bjarga komandi kynslóðum frá
skaðlegum áhrifum af hlýnun
jarðar.
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna sem stýrði
ráðstefnunni í gær, hvatti stærstu
mengunarríkin til að reiða sig
minna á jarðefnaeldsneyti með
því að skipta yfir í orkuauðlindir
sem að draga úr hlýnun jarðar –
án þess að það skaðaði efnahag
ríkjanna. Rice sagði ekki hægt að
takast á við loftslagsbreytingar
einungis sem umhverfismál.
Fulltrúar Evrópuríkja í
loftslagsmálum hafa margir lýst
áhyggjum yfir því að ráðstefna
Bandaríkjastjórnar geti afveg-
aleitt viðræður á vegum Samein-
uðu þjóðanna um loftslagsmál
sem hingað til hafa verið helsti
vettvangur slíkra viðræðna.
„Við getum ekki gert þetta á
þeim grundvelli að tala um að tala
eða að setja okkur markmið um
að setja okkur markmið,“ sagði
John Ashton, sérstakur fulltrúi
breska utanríkisráðuneytisins í
loftlagsmálum. „Við vitum að ef
ríkjum er í sjálfvald sett hvernig
þær bregðast við hlýnun jarðar
er það álíka árangursríkt og að ef
fólki væri í sjálfsvald sett hvern-
ig það brygðist við hraðatak-
mörkunum á vegum. Við þurfum
ekki bara úrræði sem virkar, við
þurfum úrræði sem virkar snar-
lega.“
Mengunarríki
funda í kjölfar
leiðtogaþings
Mestu mengunarríki heims eru sameinuð í and-
stöðu sinni við að ríki skuldbindi sig til að draga
úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda eins og
Sameinuðu þjóðirnar og Evrópuríkin kalla eftir.
Breskur maður var í
gær sakfelldur fyrir að hafa sært
átta manns með bréfasprengjum.
Miles Cooper, 27 ára, viðurkenndi
að hafa sent bréfasprengjurnar
en sagðist saklaus og ekki hafa
ætlað að meiða neinn. Kvaðst
hann hafa sent þær til að mót-
mæla gagnagrunnum með
erfðaefni, tillögu stjórnvalda um
auðkenniskort og að lögum gegn
hryðjuverkum sé beitt gegn
friðsömum mótmælendum.
Bréfasprengjurnar bárust á
þrjár rannsóknastofur rétt-
arlækna, ökuréttindastofnun, í
tölvufyrirtæki, endurskoðend-
afyrirtæki og á eitt heimili.
Bréfasprengju-
maður dæmdur
Hæstiréttur ómerkti í
gær sýknudóm í kynferðisbrota-
máli og vísaði málinu aftur í
hérað til meðferðar.
Karlmaður á þrítugsaldri var
sýknaður í Héraðsdómi Reykja-
víkur af ákæru um að hafa
nauðgað unglingsstúlku í bifreið
sumarið 2005 en maðurinn var
kærður í mars 2006.
Maðurinn neitaði því við yfir-
heyrslur fyrir dómi að hafa átt
kynmök við stúlkuna en dómarar
töldu vitnisburð stúlkunnar
sanna að þau hefðu haft mök inni
í bifreiðinni. Héraðsdómur taldi
framburð stúlkunnar óskýran og
að ekki væri gott að átta sig á því
hvort stúlkan hefði skynjað að
sér hefði verið nauðgað. Á þeim
forsendum, meðal annarra, var
ákærði sýknaður.
Ingibjörg Benediktsdóttir
hæstaréttardómari skilaði sér-
atkvæði í málinu þar sem hún
gagnrýndi héraðsdóm fyrir að
standa ekki nægilega vel að því
þegar skýrsla var tekin af
stúlkunni. Við skýrslutöku sem
fram fór fyrir dómi 3. september
2007 voru þrír héraðsdómarar en
Ingibjörg segir það hafa verið
óþarft og jafnvel íþyngjandi fyrir
stúlkuna.
„Í ljósi þess hversu íþyngjandi
yfirheyrsla í kynferðisbrota-
málum er fyrir barn hefði verið
nægilegt að dómsformaður hefði
annast yfirheyrsluna en með-
dómsmenn fylgst með henni í þar
til gerðu herbergi við hlið þess
fyrrnefnda, enda gátu þeir beint
því til dómsformanns að leggja
spurningar um sakarefnið fyrir
barnið hefðu þeir óskað þess,“
segir í sératkvæðinu.
Dómur ómerktur
og sendur í hérað
Herða þarf reglur
til að koma í veg fyrir leyniflug í
evrópskri lofthelgi. Þetta segir
Franco Frattini, sem fer með
dóms- og innanríkismál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins. Sýnt þykir að leyniþjónusta
Bandaríkjanna, CIA, hafi staðið
fyrir slíku flugi við flutning á
grunuðum hryðjuverkamönnum.
Samkvæmt skýrslu Evrópu-
þingsins hefur CIA staðið fyrir
yfir þúsund leyniflugum um
Evrópu frá 11. september 2001.
Sérstakar reglur verða settar
árið 2009 sem kveða á um að allar
flugvélar þurfi að leggja inn
flugáætlanir, að sögn Frattini.
Stöðva leyni-
flug um Evrópu