Fréttablaðið - 28.09.2007, Page 18
taekni@frettabladid.is
Útgáfa skotleiksins Halo 3
fyrir Xbox 360 leikjatölv-
una á miðvikudag fór ekki
fram hjá neinum tölvu-
leikjaáhugamanni. Fjöldinn
allur af fólki mætti á mið-
næturopnun BT til að kaupa
leikinn á þriðjudagskvöld,
en tollurinn setti strik í
reikninginn fyrir suma.
Hátt í þrjú hundruð manns mættu
á miðnætursölu tölvuleiksins Halo
3 fyrir Xbox 360 leikjatölvuna í BT
Skeifunni á þriðjudagskvöld. Mið-
næturopnunin var haldin í sam-
vinnu við Íslenska Xbox samfélagið
(ÍXS). Framkvæmdastjóri Micro-
soft á Íslandi, Halldór Jörgensson,
mætti á svæðið, en Microsoft
framleiðir leikjatölvuna.
Örvar G. Friðriksson, forsprakki
ÍXS og aðalskipuleggjandi kvölds-
ins, segir mætinguna hafa verið
framar vonum. Hann hafi unnið
að þessu kvöldi undanfarnar þrjár
vikur, og í raun ákveðið að halda
það áður en hann talaði við
forsvarsmenn BT. „Ég neyddi
þetta eiginlega upp á þá, en þeir
eru mjög áhugasamir um sam-
starf núna.“
Hugmyndin með kvöldinu var
ekki eingöngu að fagna útgáfu
Halo 3, heldur einnig til að sýna
fram á að til sé markaður á Íslandi
fyrir Xbox 360. Til að spila fjöl-
spilunarleiki í leikjatölvunni þurfa
Íslendingar að skrá heimili sitt
erlendis enda þjónustan, sem
heitir Xbox Live, ekki í boði hér.
„Við tókum þetta allt upp á
myndband og ætlum að koma því
til forsvarsmanna Microsoft í
Lúxemborg, sem sjá um Xbox Live
í Evrópu. Þeir vita nákvæmlega
ekkert um Ísland, en þegar þeir sjá
þrjú hundruð manns bíða eftir að
Halo 3 komi út átta þeir sig vonandi
á að það er grundvöllur fyrir
þjónustunni hér,“ segir Örvar.
Sala Halo 3 fór vel af stað um
allan heim. Á fyrsta sólarhringn-
um seldust eintök fyrir sem sam-
svarar tæpum ellefu milljörðum
íslenskra króna.
Þrjú hundruð mættu á
miðnætursölu Halo 3
Eitt stærsta háskerpusjónvarp
heims, 103 tommu plasmaflat-
skjár frá Panasonic, er til sýnis í
verslun Sense í Kópavogi þessa
dagana. Sjónvarpið er í eigu
tækjaleigu Nýherja, en þrjú tæki
hafa verið pöntuð til landsins til
að setja í almenna sölu. Verðið er
ekki fyrir alla, 7.990.000 krónur.
„Með þessum skjá geturðu
loksins sýnt efni og haldið
kynningar í stóru rými þannig að
allir sjái vel á skjáinn,“ segir
Hrafnkell Pálmarsson verslunar-
stjóri. „Ég hef aldrei séð annað
eins.“
Risasjónvarp á
átta milljónir
Langflestir kaupa flugmiða í gegnum netið