Fréttablaðið - 28.09.2007, Side 23

Fréttablaðið - 28.09.2007, Side 23
Mið- og Suður-Ameríka munu þurfa 1.730 flugvélar fyrir sem nemur 120 milljörðum Bandaríkj- adala, eða yfir 7.300 milljörðum króna, næstu tvo áratugina. Í nýrri spá flugvélafram- leiðandans Boeing kemur fram að þetta sé annað mesta vaxt- arsvæði heims á sviði flugrekstr- ar. Í fyrsta sæti er Kína. Boeing kynnti spá sína í byrjun vikunnar á ráðstefnu flugiðnaðarins í Rio de Janeiro í Brasilíu. „Á tímabilinu mun flug aukast um 6,6 prósent í Mið- og Suður-Ameríku, vel yfir spáðri meðalaukningu í heiminum sem er 5,0 prósent. Aukningin er hvergi meiri nema í Kína þar sem spáð er 8,8 prósenta vaxtarhraða,“ segir í tilkynningu Boeing. Næstmest flogið Stjórn Alfesca hefur fengið heimild aðalfundar félagsins til að auka hlutafé um allt að 1,7 milljarða króna að nafnvirði. Heimildin er veitt með það fyrir augum að auka eigið fé félagsins til frekari vaxtar. Á fundinum, sem haldinn var á mánudag, var einnig samþykkt að greiða hluthöfum ekki arð fyrir síðasta rekstrarár. Hlutafjáraukningin er í tveimur hlutum, hvor um sig 850 milljónir króna að nafnvirði. Hluthafar hafa forkaupsrétt í annarri aukningunni. Alfesca stefnir að því að styrkja rekstrarstoðir félagsins á næstu misserum með kaupum á breska matvælaframleiðandanum Oscar Mayer. Xavier Govare, forstjóri Alfesca, sagði viðræður á byrjun- arstigi, en gengju kaupin eftir yrði til fimmta stoðin í starfsemi Alfesca. Hlutafjáraukn- ing heimiluð Stjórn HSBC, stærsta banka Evrópu, hefur ákveðið að loka fasteignalánadeild sinni í Bandaríkjunum. Deildin hefur fram til þessa einbeitt sér að lánveitingum til einstaklinga með litla greiðslugetu sem hafa ekki á kost á að fá hefðbundið fasteigna- lán. Stóraukin vanskil í þessum lánaflokki hafa valdið miklu tapi hjá bandarískum fjármála- og lánafyrirtækjum, sem leitt hefur til óróleika á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. HSBC skrúfar fyrir lán í BNA mannaudur.hr.is ÖLSKYLDAN ÞÍN JÓRÐUNGI? MANNAUÐUR er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík, Landsbankans, Deloitte, Morgunblaðsins og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Landsbankinn er meginstyrktaraðili verkefnisins.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.