Fréttablaðið - 28.09.2007, Side 30
BLS. 2 | sirkus | 28. SEPTEMBER 2007
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Ritstjóri Marta María Jónasdóttir
martamaria@frettabladid.is
Blaðamenn
Snæfríður Ingadóttir
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@frettabladid.is
Forsíðumynd Arnþór
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir
kristina@frettabladid.is
Sirkusblaðið Skaftahlíð 24
105 Reykjavík, sími 512 5000
Auglýsingasími
512 5420
Ritstjórinn Jónas Kristjánsson og eiginkona
hans, Kristín Halldórsdóttir stjórnmála-
kona, hafa sett hús sitt á sölu en um
glæsilegt 255 fermetra einbýlishús á
Seltjarnarnesi er að ræða. Á fasteignavef
mbl.is sést að litlar 110 milljónir eru settar
á húsið sem er hannað
af arkitektunum
Helga og Vilhjálmi
Hjálmarssynum.
Kristín vildi
ekkert tjá sig um
söluna við Sirkus né
í hvaða hverfi þau
hjónin vildu helst flytja.
Heyrst hefur
Selur 110 milljóna villuna!
Rauðhærða blaðakonan Brynhildur
Björnsdóttir og Tómas Bolli Hafþórsson
umbrotsmaður hafa sett á laggirnar nýtt
tímarit um miðborgina. Tímaritið fjallar
aðallega um lífsstíl og tísku og er dreift
frítt. „Blaðið er hugsað sem kynningarrit
um miðbæinn og það sem er í boði þar.
Miðbærinn hefur mikla sérstöðu, þar eru
allar fallegu hönnunarverslanirnar og
þangað fer fólk til að fagna þjóðhátíðar-
deginum, menningarnótt og upplifa hjarta
borgarinnar,“ segir Brynhildur, sem einnig
stýrir barnaþættinum Leynifélagið, sem er
á dagskrá Rásar 1, ásamt Kristínu Evu
Þórhallsdóttur kvikmyndagerðarmanni.
Nýtt tímarit!
„Menn eru alltaf að skoða og pæla en
það verður ekkert af þessu,“ segir Jón
Arnar Guðbrandsson athafnamaður
um þær sögusagnir að hann og kona
hans, Ingibjörg Þorvaldsdóttir, ætl-
uðu sér að kaupa Húsgagnahöllina.
„Við höfum nóg að gera hér í Habitat
og haustið er afar spennandi. Við
erum hér allan sólarhringinn og
höfum því í nógu að snúast,“ segir Jón
Arnar en þau hjónin hafa selt Oasis-
verslanir sínar í Kaupmannahöfn til
fyrirtækis í eigu Baugs. Spurður hvort
um frekari útrás til Danmerkur sé að
ræða segir Jón Arnar aldrei að vita.
„Allavega ekki með Habitat, það eru
aðrir aðilar sem reka verslunina í
Skandinavíu með góðum árangri.
Okkar fókus er á Habitat hér heima og
við höfum bæði afskaplega gaman af
því sem við erum að gera. Við höfum
verið í fasteignaviðskiptum og höfum
gaman af að laga hús og gera þau fín.
Þetta á gríðarlega vel við okkur og við
erum stolt af þeim stað sem við höfum
komið versluninni á.“
indiana@frettabladid.is
JÓN ARNAR OG INGIBJÖRG SELDU OASIS-VERSLANIR SÍNAR Í KAUPMANNAHÖFN
Hugurinn er á Íslandi
E in af glæsilegustu íbúðum miðbæjarins er komin á sölu en hún stendur á horni Hverfis-
götu og Vatnsstígs. Íbúðin er á einni hæð og tæplega
200 fm á stærð. Á síðustu árum hefur íbúðin verið
endurnýjuð frá grunni á mjög smekklegan hátt og
ekkert hefur verið til sparað. Í íbúðinni er til dæmis
Boser-hljóðkerfi, Arne Jacobsen-blöndunartæki og
Küpperbusch-eldhústæki, Íbúðin minnir mjög á
svokölluð „loft“ og gæti allt eins verið staðsett í New
York eða London. Lofthæðin í íbúðinni er 2,8 metr-
ar og lítið er um óþarfa milliveggi. Íbúðin fæst alls
ekki gefins en hún kostar um 70 milljónir. Hingað til
hefur íbúðaverð verið hæst í Skuggahverfinu en nú
virðist það verðlag vera að skríða hægt og rólega
upp að Laugaveginum.
Stjörnukærustuparið Kristján Ra Kristjánsson
leikhúsframleiðandi og Halla Vilhjálmsdóttir búa í
íbúðinni, sem er í eigu föður Kristjáns. Kristján
starfar mikið erlendis og þá aðallega í Svíþjóð en
Halla er með annan fótinn í Lundúnum. Í nýjasta
hefti Ísafoldar er Halla Vilhjálmsdóttir í viðtali. Þar
segir hún að það sé allt of dýrt að borga af þremur
íbúðum. Hún og Kristján eru því greinilega að reyna
að einfalda lífið með því að flytja úr 70 milljóna
íbúðinni. Áhugasamir geta skoðað íbúðina nánar á
remax.is
martamaria@frettabladid.is
KRISTJÁN RA OG HALLA VILHJÁLMSDÓTTIR FLYTJA
LÚXUSINN Í FYRIRRÚMI Baðherbergið er sérlega glæsilegt með frístandandi baðkari, ljósum náttúruflísum og
70 MILLJÓNA ÍBÚÐIN
KOMIN Á SÖLU!
KJÓSA ÍSLAND
Ingibjörg Þorvaldsdóttir og Jón Arnar
Guðbrandsson eru búin að selja Oasis-
verslanir sínar í Kaupmannahöfn.