Fréttablaðið - 28.09.2007, Page 30

Fréttablaðið - 28.09.2007, Page 30
BLS. 2 | sirkus | 28. SEPTEMBER 2007 Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@frettabladid.is Blaðamenn Snæfríður Ingadóttir Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@frettabladid.is Forsíðumynd Arnþór Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is Sirkusblaðið Skaftahlíð 24 105 Reykjavík, sími 512 5000 Auglýsingasími 512 5420 Ritstjórinn Jónas Kristjánsson og eiginkona hans, Kristín Halldórsdóttir stjórnmála- kona, hafa sett hús sitt á sölu en um glæsilegt 255 fermetra einbýlishús á Seltjarnarnesi er að ræða. Á fasteignavef mbl.is sést að litlar 110 milljónir eru settar á húsið sem er hannað af arkitektunum Helga og Vilhjálmi Hjálmarssynum. Kristín vildi ekkert tjá sig um söluna við Sirkus né í hvaða hverfi þau hjónin vildu helst flytja. Heyrst hefur Selur 110 milljóna villuna! Rauðhærða blaðakonan Brynhildur Björnsdóttir og Tómas Bolli Hafþórsson umbrotsmaður hafa sett á laggirnar nýtt tímarit um miðborgina. Tímaritið fjallar aðallega um lífsstíl og tísku og er dreift frítt. „Blaðið er hugsað sem kynningarrit um miðbæinn og það sem er í boði þar. Miðbærinn hefur mikla sérstöðu, þar eru allar fallegu hönnunarverslanirnar og þangað fer fólk til að fagna þjóðhátíðar- deginum, menningarnótt og upplifa hjarta borgarinnar,“ segir Brynhildur, sem einnig stýrir barnaþættinum Leynifélagið, sem er á dagskrá Rásar 1, ásamt Kristínu Evu Þórhallsdóttur kvikmyndagerðarmanni. Nýtt tímarit! „Menn eru alltaf að skoða og pæla en það verður ekkert af þessu,“ segir Jón Arnar Guðbrandsson athafnamaður um þær sögusagnir að hann og kona hans, Ingibjörg Þorvaldsdóttir, ætl- uðu sér að kaupa Húsgagnahöllina. „Við höfum nóg að gera hér í Habitat og haustið er afar spennandi. Við erum hér allan sólarhringinn og höfum því í nógu að snúast,“ segir Jón Arnar en þau hjónin hafa selt Oasis- verslanir sínar í Kaupmannahöfn til fyrirtækis í eigu Baugs. Spurður hvort um frekari útrás til Danmerkur sé að ræða segir Jón Arnar aldrei að vita. „Allavega ekki með Habitat, það eru aðrir aðilar sem reka verslunina í Skandinavíu með góðum árangri. Okkar fókus er á Habitat hér heima og við höfum bæði afskaplega gaman af því sem við erum að gera. Við höfum verið í fasteignaviðskiptum og höfum gaman af að laga hús og gera þau fín. Þetta á gríðarlega vel við okkur og við erum stolt af þeim stað sem við höfum komið versluninni á.“ indiana@frettabladid.is JÓN ARNAR OG INGIBJÖRG SELDU OASIS-VERSLANIR SÍNAR Í KAUPMANNAHÖFN Hugurinn er á Íslandi E in af glæsilegustu íbúðum miðbæjarins er komin á sölu en hún stendur á horni Hverfis- götu og Vatnsstígs. Íbúðin er á einni hæð og tæplega 200 fm á stærð. Á síðustu árum hefur íbúðin verið endurnýjuð frá grunni á mjög smekklegan hátt og ekkert hefur verið til sparað. Í íbúðinni er til dæmis Boser-hljóðkerfi, Arne Jacobsen-blöndunartæki og Küpperbusch-eldhústæki, Íbúðin minnir mjög á svokölluð „loft“ og gæti allt eins verið staðsett í New York eða London. Lofthæðin í íbúðinni er 2,8 metr- ar og lítið er um óþarfa milliveggi. Íbúðin fæst alls ekki gefins en hún kostar um 70 milljónir. Hingað til hefur íbúðaverð verið hæst í Skuggahverfinu en nú virðist það verðlag vera að skríða hægt og rólega upp að Laugaveginum. Stjörnukærustuparið Kristján Ra Kristjánsson leikhúsframleiðandi og Halla Vilhjálmsdóttir búa í íbúðinni, sem er í eigu föður Kristjáns. Kristján starfar mikið erlendis og þá aðallega í Svíþjóð en Halla er með annan fótinn í Lundúnum. Í nýjasta hefti Ísafoldar er Halla Vilhjálmsdóttir í viðtali. Þar segir hún að það sé allt of dýrt að borga af þremur íbúðum. Hún og Kristján eru því greinilega að reyna að einfalda lífið með því að flytja úr 70 milljóna íbúðinni. Áhugasamir geta skoðað íbúðina nánar á remax.is martamaria@frettabladid.is KRISTJÁN RA OG HALLA VILHJÁLMSDÓTTIR FLYTJA LÚXUSINN Í FYRIRRÚMI Baðherbergið er sérlega glæsilegt með frístandandi baðkari, ljósum náttúruflísum og 70 MILLJÓNA ÍBÚÐIN KOMIN Á SÖLU! KJÓSA ÍSLAND Ingibjörg Þorvaldsdóttir og Jón Arnar Guðbrandsson eru búin að selja Oasis- verslanir sínar í Kaupmannahöfn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.