Fréttablaðið - 28.09.2007, Blaðsíða 34
BLS. 6 | sirkus | 28. SEPTEMBER 2007
Fjölbreytt og persónuleg hártíska í vetur
„Mér finnst ekki beint að marka
frægu fyrirsæturnar þegar kemur að
hártísku því þær eru alltaf með sítt
hár vegna vinnunnar,“ segir Ásgeir
Hjartarson hárgreiðslumaður á
Supernova um hártískuna í haust en
Ásgeir opnaði nýlega nýja stofu í
Smáralindinni með eiginkonu sinni.
Ásgeir segir marga stíla í gangi í hár-
greiðslu í vetur. Tímarnir séu breyttir
frá því þegar allar konur vildu vera
með Meg Ryan-klippinguna. „Tískan
er fjölbreytt og hver og einn verður
að finna hvað hentar honum. Að
mínu mati eru þungir þvertoppar
rosalega flottir en þeir passa ekki við
alla alveg eins og bleikar gallabuxur
eru ekki heldur fyrir alla. Með haust-
inu finnst mér skemmtilegt að setja
smá liði í hárið og ég mæli með að
konur noti frekar sléttujárnið en
krullujárnið til að fá mýkri og rómantískari liði. Krullurnar eru mjög heitar núna eins og sést á stjörn-
unum í Hollywood og eins og bótox og sílikon yngja krullurnar og gefa mýkra yfirbragð.“ Ásgeir segist
reglulega spurður hvort strípur séu ekki örugglega dottnar út en það sé algjör fjarstæða. „Við verðum
bara að kunna að nota þær rétt og muna að djúpnæra. Djúpnæring er mjög mikilvæg til að halda hár-
inu heilbrigðu og það getur enginn litað sig ár eftir ár án þess að djúpnæra. Það væri eins og stunda
ljósabekkina án þess að nota rakakrem.“ Ljós litur og liturinn hennar Gisele Bündchen, djúpur í rót-
inni með ljósgylltum endum, séu einnig heitir sem og Christina Aguilera greiðslur. „Ég elska týpur
sem þora að taka hlutina alla leið og þessi 1920-30 greiðsla hennar Christinu er mjög flott ásamt eld-
rauðum varalit og háum hönskum. Annars er mikil tenging á milli hársins, litsins, förðunarinnar og
fatanna og við verðum að passa samræmið þar á milli.“
Grand rokkokó
vetrartíska
„Markmið mitt er að reyna að læða
einhverjum lit á hverjum vetri með
þessum svarta. Í ár held ég að rauð-
ur, dökk túrkís og vínrauður verði
flottir,“ segir Íris Eggertsdóttir fata-
hönnuður sem hannar undir merk-
inu Rokkmantík fyrir verslunina
KVK. Íris segist sjálf vera að vinna
mikið með peysur yfir peysur eða lag
yfir lag eins og hún kallar það. „Ég
held að það verði mikið um slár og
stóra trefla, langa hanska og griffl-
urnar halda áfram en verða hærri.
Háar legghlífar verða líka inni.“ Íris
segir margt leyfilegt. Mittið verði
áberandi en að í boði verði að hafa
beltið í mittinu eða uppi undir brjóst-
inu. „Það verður mikið af lausum
peysum sem eru teknar saman í
mittinum með beltum. Við erum að
færast svolítið nær rokkokó ívafi og
frá 9. og 10. áratugnum svo tískan
verður meira grand. Skartið verður í
einfaldari kantinum, púffið og píf-
urnar sjá um skrautið en hárskrautið
heldur áfram og verður bara meira
og stærra.“
indiana@frettabladid.is
Leggings, sokkabuxur og leður
„Í kventískunni í vetur munum
við sjá vandað efnisval. Silki,
kasmír, leður og merínóull
verða meira áberandi en áður,“
segir Hilmar Már Hálfdáns,
stílisti Vero Moda, Only, Vila,
Jack and Jones, Selected, Exit
og Outfitters Nations. Hilmar
segir að mikið verði um prjóna-
vörur og að lagt verði upp úr
þægilegum peysum. „Leggings
eru náttúrlega nauðsynlegar
bæði við kjóla, túlipanapils og
peysur auk þess sem kjólar,
peysur og kápur í blöðrusnið-
um verða algengar í vetur.
Sokkabuxurnar eru líka að
koma í stórum stíl og verða
þykkar með alls kyns
munstrum og það smartasta
er að velja sama lit á sokkabux-
unum og peysunni eða kjóln-
um. Og jafnvel skónum líka,“
segir Hilmar og bætir við að mittið verði áfram hátt uppi. „Meiri fókus verður á skemmtilegar skyrtur
auk þess sem við eigum eftir að sjá mikið af leðurkjólum, pilsum, jökkum og frökkum en þá er um
fínna leður að ræða. Í litunum verður dökkgrár algengur, svart, cream, en fyrir utan þessa aðalliti
verður einnig dökkfjólublár, silfur, dökkblátt og metallic.“
Þegar hann er spurður um hvernig honum lítist á hausttískuna segir Hilmar Már að honum finnist
hún æðisleg. „Þetta er góð tíska fyrir allar konur því það er margt í gangi og allar geta fundið eitthvað
fyrir sig. Konur eiga að njóta þess að vera kvenlegar og í dag er fókusinn á fallegustu líkamshlutana
auk þess sem efnin eru þægileg og henta íslenskum aðstæðum.“
SIRKUS LEITAÐI TIL MÁLSMETANDI AÐILA Í TÍSKUHEIMINUM TIL AÐ LEGGJA LÍNURNAR VARÐANDI HAUSTIÐ OG VETURINN.
KVENLEG EN ÞÆGILEG HAUST-
TÍSKA FYRIR ALLAR KONUR
ROKKMANTÍK „Skartið verður í einfaldari
kantinum, púffið og pífurnar sjá um
skrautið en hárskrautið heldur áfram og
verður bara meira og stærra,“ segir Íris
Eggertsdóttir fatahönnuður.
MYND/RÓSA
ELSKAR TÝPUR SEM ÞORA „Ég elska týpur sem þora að taka
hlutina alla leið og þessi 1920-30 greiðsla hennar Christinu er
mjög flott ásamt eldrauðum varalit og háum hönskum,“ segir
Ásgeir á Supernova. MYND/HÖRÐUR KVENLEG TÍSKA „Konur eiga að njóta þess að vera kvenlegar og í dag er
fókusinn á fallegustu líkamshlutana auk þess sem efnin eru þægileg og
henta íslenskum aðstæðum,“ segir Hilmar Már, stílisti Vero Moda og fleiri
verslana. MYND/RÓSA