Fréttablaðið - 28.09.2007, Side 36
BLS. 8 | sirkus | 28. SEPTEMBER 2007
Heimili Addúar og Sindra er frum-legt og fallegt, það brakar í gólf-
unum og ekki laust við að það bóli á
marókkóskri stemningu. Miðbæjar-
heimilið er þó ansi ólíkt æskuheimili
Addúar, sem ólst upp í risastórri villu
í Árbænum.
„Ég er ótrúlega ánægð með að hafa
alist upp í Árbænum og er mjög stolt
af því. Árbær city er náttúrlega stór-
borg í úthverfi. Húsið í Lækjarásnum
var rosalegt hús sem faðir minn
byggði handa mömmu minni þegar
hann var 27 ára,“ segir Addú og hlær
sínum dillandi hlátri og bendir á að
sjálf eigi hún langt í land hvað varðar
Árbæjarvilluna.
„Þetta eru breyttir tímar, ég vil
hvergi annars staðar vera en í mið-
bænum, en ætli ég sé ekki enn þá
bara svo mikill unglingur í mér og
finnst miðbærinn vera það allra heit-
asta.“
Sjálf segist hún hafa verið draum-
ur hvers foreldris þegar hún var barn
en um leið og hún varð tólf ára breytt-
ist allt og ekki laust við að villingur-
inn Addú tæki völdin. Hún var þó
aldrei í neinu rugli, henni fannst bara
svo ógurlega gaman að vera til.
„Ég byrjaði að fikta við að reykja
þegar ég var 14 ára. Það kostaði pen-
inga svo ég fór að vinna á bensín-
stöðinni í Árbænum sem mamma
mín rak til að eiga fyrir rettunum.
Upp frá þessu varð ég háð því að eiga
alltaf peninga. Einn af kostunum við
að vera að vinna á bensínstöðinni
var að meðan skólafélagar mínir
voru í félagsmiðstöðinni Árseli að
borða kleinuhringi þá hékk ég úti á
bensínstöð í frímínútum og át Júm-
bósamlokur sem ég skrifaði á mig.“
En svo hættir þú í Júmbósamlok-
unum og fékkst hálfa Reykjavík til að
staupa sig á eplaediki í megrunar-
skyni?
„Já, drottinn minn, það var ótrú-
legt. Það átti að vera ægilegt heilsu-
trikk að drekka eplaedik. Ég var búin
að bæta aðeins á mig og vinkona mín
setti mig á vigtina og sagði að nú
þyrfti ég aðeins að tálga mig. Svo ég
keypti mér eplaediksflösku og drakk
heilmikið af því sem gerði það að
verkum að kílóin hrundu af mér. Eftir
smá tíma var ég orðin hasarpía og þá
vildi fólk fá að vita hvert leyndarmál-
ið væri. Þetta gerði það að verkum að
eplaedik hreinlega kláraðist í versl-
unum og á tímabili var það ófáan-
legt. Þá dauðsá ég eftir því að hafa
verið að segja fólki frá þessu.“
Ertu ennþá á eplaediki?
„Nei, með tímanum lærði ég inn á
líkamann og í dag veit ég að það er
mun skynsamlegra að borða hollan
mat og drekka vatn.“
Kynntust á Tom Selleck
Sumarið 2004 krækti Addú í dag-
skrár- og kvikmyndagerðarmanninn
Sindra Pál Kjartansson. Þau voru
búin að þekkjast í töluverðan tíma
en möguleikinn á sambandi hafði
einhvern veginn ekki hvarflað að
henni. Það var ekki fyrr en hann
reyndi að kyssa hana fyrir utan
SPRON á Skólavörðustíg um miðja
nótt að hún velti því fyrir sér hvort
hann væri ekki góður kostur. Stuttu
seinna var Tom Selleck-keppnin
haldin á Sirkus en í henni er keppt í
flottasta yfirvararskegginu.
„Sindri er einn af aðalhvatamönn-
unum í þessari keppni og því vissi ég
að hann yrði þarna. Það var liðinn
svolítill tími frá atvikinu fyrir utan
SPRON og ég var harðákveðin í að ná
í hann. Ég klæddi mig upp, mætti á
svæðið og nældi í kallinn. Síðan erum
við búin að vera saman.
Ég er ekkert smá heppin því ég
krækti í einn mesta snilling sem
Ísland hefur alið af sér. Sindri er besti
maður í heimi. Við erum ótrúlega
samstiga og löðum fram það besta í
hvort öðru. Það er mikil ást og gleði á
Vatnsstíg.“
Þegar Skjár einn hóf göngu sína
varð Addú mjög áberandi í skemmt-
analífi borgarinnar og þótt hún ynni
ekki beint á Skjá einum tilheyrði hún
engu að síður klíkunni.
„Besta vinkona mín vann á síman-
um á Skjá einum og þar sem við
vorum eins og samlokur fékk ég að
vera með í öllu. Þetta var hrikalega
skemmtilegur tími og ég hef aldrei,
fyrr eða síðar, upplifað jafn mikinn
kraft,“ segir hún og hlær. Síðan unnu
þær vinkonur sig upp í því að vera
með eigin sjónvarpsþætti. Sigga Lára
vinkona hennar með Mótor og Addú
með Nítró sem var þáttur um
íslenskar akstursíþróttir. „Þegar það
vantaði þáttastjórnanda í Nítró þá
var náttúrlega kallað í mig því ég
hafði unnið á bensínstöð og var með
bíladellu. Maður var ungur og hress
á þessum tíma og fannst hrikalega
töff að ferðast um landið þvert og
endilangt til að horfa á torfærukeppn-
ir og kvartmílur. Og ekki var félags-
skapurinn verri, ég kynnstist svo
ARNÞRÚÐUR DÖGG SIGURÐARDÓTTIR, EÐA ADDÚ EINS OG HÚN ER OFTAST KÖLLUÐ, ER EIN AF SKRAUTFJÖÐR-
UM BÆJARINS. HÚN HEFUR LIFAÐ VIÐBURÐARÍKU LÍFI OG ÞAÐ ER ALDREI LOGNMOLLA Í KRINGUM HANA.
ADDÚ BÝR Í MIÐBÆNUM MEÐ SINDRA KJARTANSSYNI, SEM HÚN KRÆKTI Í Á TOM SELLECK-MOTTUKEPPNINNI.
FATAFRÍK Addú segist spá mikið í tísku þótt hún fylgi henni ekki blindandi. MYNDIR/ARNÞÓR
BRJÁLÆÐINGUR Á PINNAHÆLUM!