Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.09.2007, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 28.09.2007, Qupperneq 38
 28. SEPTEMBER 2007 FÖSTUDAGUR2 fréttablaðið í skólanum Knattspyrnumennirnir Bjarni Guðjónsson úr ÍA og Helgi Sigurðsson úr Val sitja saman á skólabekk í Háskólanum í Reykjavík þar sem þeir nema viðskiptafræði. „Við vorum bara að byrja í nám- inu og erum búnir með einn mánuð,“ segir Helgi og Bjarni er honum sammála um að námið gangi vel þótt það sé mjög erf- itt. Helgi bætir því við að námið sé alveg full vinna og eiginlega meira en það því þegar heim sé komið taki við verkefnavinna fram eftir kvöldi. „Ég þyrfti helst þrjá til fjóra tíma í viðbót í sólarhringinn til að sinna öllu því sem ég þarf að sinna,“ segir Bjarni og bætir því við að það sé mjög fínt að fara aftur í skóla eftir tíu ára hlé frá námi. „Við erum reyndar að læra þetta allt frá grunni sem hinir krakkarnir sem koma hingað beint eftir framhaldsskóla eru þegar með þannig að við þurfum að hafa aðeins meira fyrir þessu.“ Bjarni og Helgi vissu ekki hvor af öðrum þegar þeir skráðu sig í námið og segja það algjöra tilviljun að þeir séu saman í öllum tímum. Helgi segir þá auðvitað reyna að hjálpast að í náminu og hlýða hvor öðrum yfir. „Það er mikill stuðningur af því að hafa hvorn annan en við reynum auðvitað að sækja visku annars staðar líka til að leyfa öðrum að njóta þess með okkur,“ segir hann og hlær. Félagarnir segja lítið fara fyrir keppni á milli þeirra í náminu. „Það er frekar að við séum saman í liði hérna,“ segir Bjarni brosandi og bætir því við að nú hafi þeir skilning á því að þeir þurfi á því að halda að mennta sig en þeir eru báðir sannfærðir um að þeir séu frekar tilbúnir til þess núna en þegar þeir voru tvítugir. „Síðast þegar ég var í skóla var ég ekki að því fyrir sjálfan mig heldur var þetta bara eitthvað sem ég varð að gera,“ segir Bjarni, sem stefnir á að ljúka viðskiptafræðinni á þremur árum, eins og Helgi. Spurðir hvernig gangi að samræma fótboltann og námið segja þeir að þar sem þeir séu í dagskóla smelli þetta nokkuð vel. „Við erum í skólanum til klukkan fjögur og brunum þá beint á æfingu, þannig að það er fínt,“ segir Bjarni. Helgi bætir því við að fótboltinn sé auðvitað að syngja sitt síðasta í bili og ekki nema vika eftir. Helgi og Bjarni eru báðir fjölskyldumenn og viðurkenna að meðan fótboltinn sé enn í fullum gangi sé lítill tími fyrir fjölskylduna. „Nú er farinn að vera meiri hraði í náminu og þá minnkar tíminn enn meira fyrir fjölskylduna,“ segir Bjarni en Helgi skýtur því hlæjandi inn í að það sé kannski spurning hvort þeir eigi einhverja fjölskyldu eftir námið, en dregur svo í land og segir fjölskylduna að sjálfsögðu sýna mikinn skilning. Báðir hafa félagarnir verið atvinnumenn í knattspyrnu erlendis og svara því játandi að það fylgi því mjög ólíkur lífsstíll að vera í atvinnumennskunni annars vegar og hér heima hins vegar. „Þegar maður er úti í atvinnumennskunni er maður alla daga að reyna að finna sér eitthvað að gera yfir daginn en það er enginn skortur á verkefnum hér heima og jafnvel of mikið að gera á köflum,“ segir Bjarni. „Fótboltinn hefur tekið sinn tíma og auðvitað einbeitir maður sér að honum meðan maður er úti. Núna er forgangsröðin öðruvísi því það er skólinn sem er orðinn númer eitt því það verður að huga að framtíðinni,“ segir Helgi að lokum og félagarnir drífa sig beint í dæmatíma. sigridurh@frettabladid.is Í námi samhliða boltanum Skagamaðurinn Bjarni Guðjónsson og Valsarinn Helgi Sigurðsson eru báðir nýbyrjaðir í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík og hjálpast að við námið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Rannís stendur í þriðja sinn fyrir Vísindavöku – stefnumóti við vísindamenn, í kvöld, föstudaginn 28. september. Dagurinn er tileink- aður evrópskum vísindamönnum og haldinn hátíðlegur í helstu borgum Evrópu. Vísindavakan verður haldin í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi klukkan 17 til 21 en slíkar vökur eru haldnar í yfir þrjátíu borgum í Evrópu. Markmiðið með þessum atburðum er að kynna fyrir almenningi fólkið á bak við rannsóknirnar – vísindafólkið sjálft og verk þess, draga fram mikilvægi rannsókna og þróunar í nútímasamfélagi og beina sjónum ungs fólks að þeim möguleikum sem liggja í starfsframa í vísindum. Á Vísindavökunni mun vísinda- fólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum kynna yfir 50 rann- sóknarverkefni sem þeir vinna. Gestir fá að skoða og prófa ýmis tæki og tól sem notuð eru við rannsóknirnar, skoða hinar ýmsu afurðir rannsóknanna og spjalla við vísindafólkið um starfið í vís- indum og nýsköpun. Opið hús og allir velkomnir. Meðal þeirra sem taka þátt eru Háskóli Íslands í samstarfi við Kennaraháskóla Íslands. Menn- ing Japans og Kína, nýstárlegur hálkuvari, fræðsla um alnæmi í Malaví, nýjungar á Vísindavefn- um, þjóðtrú og menningararfur og jarðskjálftamælingar eru meðal verkefna sem Háskólinn kynnir. Börn eru sérstaklega velkom- in í Vísindaveröld Fjölskyldu- og húsdýragarðsins sem verður með útibú á Vísindavökunni. Stefnumót við vísindafólk Börn eru sérstaklega velkomin í Vísinda- veröld Fjölskyldu- og húsdýragarðsins sem verður með útibú á Vísindavökunni. DAGUR NAUTGRIPARÆKTARINNAR Landbúnaðarháskóli Íslands stendur fyrir opnu húsi í kennslu- og rannsóknafjósum og Bútæknihúsi skólans á Hvanneyri í Borgarfirði laugardaginn 6. október frá klukkan 12 til 18. Skapast hefur góð reynsla af því undanfarin ár að hafa opið hús í kennslu- og rannsóknarfjárhúsum LbhÍ að hausti og er vonast til að Dagur nautgriparæktarinnar muni festa sig í sessi sem árlegur viðburður. Ætlunin er að kynna rannsóknaverkefni í nautgripa- og jarðrækt á vegum LbhÍ og samstarfsaðila, auk fyrirhugaðra verkefna á komandi misserum. Þá er ráðgert að hafa nokkrar hressilegar uppákomur yfir daginn ætlaðar bæði börnum og fullorðnum. Nánar á www.lbhi.is Dagur nautgriparæktarinnar verður haldinn á Hvanneyri 6. október.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.