Fréttablaðið - 28.09.2007, Page 46
BLS. 10 | sirkus | 28. SEPTEMBER 2007
F ræga og ríka fólkið í Hollywood skapar venjulega tískuna. Nú virðist sem áhugi stjarnanna hafi
beinst að Bugaboo-kerrum og -vögnum
svo nýbökuðu mæðurnar í Hollywood
sjást varla án þess að ýta þessum flottu
kerrum á undan sér. Eins og svo oft
áður virðist þessi bylgja hafa smitað
Íslendinga en sífellt fleiri Bugaboo-
kerrur sjást á götum Reykjavíkur. Á
meðal þeirra íslensku foreldra sem
tryggt hafa sér kerrurnar eru Finnur
Beck, fyrrum fréttamaður, Helga Ólafs-
dóttir, fatahönnuður í Danmörku,
Bjarni Benediktsson alþingismaður,
Nína Dögg Filippusdóttir leikkona og
Sigurður Bollason fjárfestir. Þau er því
komin í hóp með Hollywood-leikkon-
unum Juliu Roberts og Maggie Gyllen-
haal en þær ásamt tónlistarhjónunum
Gwen Stefani og Gavin Rossdale sjást
reglulega úti á labbinu með börnin sín í
þessum litskrúðugu flottu kerrum.
Fólk með Bugaboo heilsast
„Við fengum kerruna í gjöf þegar Bald-
vin litli fæddist fyrir tæpum tveimur
árum,“ segir Helga Ólafsdóttir fata-
hönnuður um Bugaboo-kerruna þeirra
sem keypt var í Ameríku en þar bjó fjöl-
skyldan fyrir tveimur árum. „Bugaboo
er góð kerra og svo er hún líka rosalega
flott. Við ferðumst mikið og hún hentar
einkar vel til ferðalaga vegna þess hve
létt og meðfærileg hún er. Hún er líka
ekta borgarkerra og þegar við fengum
hana bjuggum við rétt utan við Wash-
ington DC en núna búum við í Kaup-
mannahöfn,“ segir Helga og bætir við að
kerran sé ótrúlega vinsæl bæði í Evrópu
og í Bandaríkjunum. „Það fyndna er að
þegar maður mætir foreldrum með
Bugaboo þá heilsar maður,“ segir Helga
hlæjandi og bætir við að punkturinn
yfir i-ið hafi verið að velja litinn. „Eftir
miklar vangaveltur völdum við appels-
ínugula og svarta. Við vissum ekki kynið
á barninu en okkur fannst þessir litir
henta einkar vel.“
Dóttirin trendsetter á Íslandi
„Kerran var hugmynd konunnar
minnar en hún hafði legið yfir
þessu á netinu og skoðað allar
mögulegar útfærslur,“ segir Finn-
ur Beck, fyrrverandi fréttamað-
ur og núverandi laganemi.
María Hrund, eiginkona
hans, og Matthildur, sem
er tíu mánaða, eru alsæl-
ar með kerruna. „Buga-
boo-kerran hefur reynst
okkur mjög vel og fylgt
Matthildi frá upphafi, fyrst
sem vagn en núna kerra. Við
erum búin að fara með hana til
útlanda og Matthildur fór til
dæmis í henni um alla Washington-
borg,“ segir Finnur og bætir við að
María hafi líklega fallið fyrir kerrunni
því hún sé bæði flott og mjög sniðug.
„Ég vissi samt ekki að þessi kerra væri
sérstaklega vinsæl á meðal Hollywood-
stjarnanna. Það skyldi þá aldrei vera að
Matthildur yrði trendsetter á Íslandi.“
Ánægð með vagninn
„Við keyptum vagninn okkar í
London þar sem vinur okkar
hafði mælt með honum í
hástert,“ segir Nína Dögg Fil-
ippusdóttir leikkona en hún
og Gísli Örn Garðarsson
keyptu Bugaboo-vagn
handa Rakel Maríu dótt-
ur sinni. „Í búðinni
spurðum við tvær konur
sem áttu svona vagn hvern-
ig þeim líkaði við hann. Þær
sögðu okkur að við þyrftum
ekkert að hugsa málið frekar
heldur kaupa hann. Við slógum til
og höfum ekki séð eftir því,“ segir Nína
Dögg en fyrir valinu varð svartur og
rauður vagn með bláum poka. „Við viss-
um ekki hvort kynið við vorum með en
keyptum bláa pokann eftir að Rakel
María fæddist.“
indiana@frettabladid.is
NÝJASTA TÍSKUBÓLAN Í BARNAVÖRUM ER ÁN EFA BUGABOO-KERRUR OG -VAGNAR. EKKI ER NÓG
MEÐ AÐ HOLLYWOOD-STJÖRNURNAR KAUPI BUGABOO HANDA BÖRNUM SÍNUM HELDUR ERU ÍSLENSKAR
STJÖRNUR EINNIG FARNAR AÐ SJÁST Á GÖTUM ÚTI MEÐ ÞESSAR FLOTTU KERRUR.
TÓNLISTARFJÖLSKYLDA Söngkonan Gwen Stefani ásamt eiginmanni
sínum, tónlistarmanninum Gavin Rossdale, og Kingston James, barni
þeirra, sem situr í Bugaboo-kerrunni sinni. MYND/GETTY
FLOTT OG SNIÐUG KERRA „Ég vissi samt ekki að þessi kerra væri
sérstaklega vinsæl á meðal Hollywood-stjarnanna. Það skyldi þó
aldrei vera að Matthildur yrði trendsetter á Íslandi,“ segir Finnur.
MYND/HÖRÐUR
BLÁ BUGABOO Leikkonan Maggie
Gyllenhaal valdi þessa bláu Bugaboo-kerru
fyrir Ramonu dóttur sína. MYND/GETTY
HELGA OG SONURINN
BALDVIN
Myndin var tekin fyrir
utan uppáhaldsverslun
Helgu í Georgetown DC sem
heitir BCBG.
NÝJASTA ÆÐIÐ Á MEÐAL
BARNAFÓLKS
NÍNA BJÖRK „Við vissum ekki hvort kynið við vorum með en
keyptum bláa pokann eftir að Rakel María fæddist.“
MYND/ANTON
NÝTT ÆÐI
Kerrurnar koma í
alls kyns útfærslum
og litum en fást
ekki á Íslandi.