Fréttablaðið - 28.09.2007, Síða 62

Fréttablaðið - 28.09.2007, Síða 62
Þegar ég var lítil voru mér kenndir ýmsir góðir siðir, eins og almenn kurteisi og ábyrgðar- kennd gagnvart náunganum. Það að standa upp fyrir gömlu fólki og barnshafandi konum í strætó var því nokkuð sem ég vissi strax að ætti alltaf að gera. Í einfeldni minni hélt ég líka að það væri nokkuð sem allir gerðu en seinna komst ég að því að svo var ekki. Fyrir nokkrum árum síðan gekk ég nefnilega sjálf með barn og þar sem ég átti ekki bíl var ég mikið í strætó. Flesta daga tók ég strætó á sama stað á háannatíma og venju- lega kom gamall maður með staf inn í vagninn um leið og ég. Yfirleitt var allt yfirfullt og engin sæti laus, sem kom svo sem ekkert á óvart, en það sem kom meira á óvart var að aldrei stóð neinn upp. Sjálfri fannst mér reyndar ekkert mál að standa, þó að í sumum tilfellum geti það verið erfitt fyrir barnshafandi konur, en fætur gamla mannsins voru orðnir svo beygðir af mikilli notkun að oft furðaði ég mig á því hvernig þeir bæru hann. Allt þetta fólk sem aldrei stóð upp var, eins ótrúlega og það hljómar, ekki óalandi og óferjandi unglingar heldur bara venjulegt fullorðið fólk sem maður hefði haldið að kynni kurteisi. Reyndar var það svo að í eina skiptið sem einhver stóð upp var það svona tólf ár stelpa sem vék úr sætinu sínu fyrir gamla manninum og því greinilegt að hún ein hafði lært mannasiðina sína. Fyrstu ferðirnar velti ég því fyrir mér af hverju svona margir vissu ekki af þessari óskráðu reglu í strætó en fljótlega gerði ég mér grein fyrir því að allir sem sátu sem fastast vissu alveg að þeir hefðu átt að standa upp. Þegar við gamli maðurinn komum inn í litu nefnilega alltaf allir út um gluggann eins og þar væri eitthvað merkilegt að sjá. Það að stinga höfðinu í sandinn breytir því hins vegar aldrei að ennþá er maður á staðnum og ætti því að bera svolitla ábyrgð á náunga sínum og sýna honum kurteisi. Villidýr í verði

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.