Fréttablaðið - 28.09.2007, Side 64
Tölvuteiknaðar myndir sem sýndust bara vera litamynstur. Munið
þið eftir þeim? Ef maður horfði rétt á þær birtist þrívíddarmynd af
fallegu landslagi, hesti eða einhverju.
Mér tókst aldrei að sjá neitt út úr þessu. Þess vegna hef ég vissa
samúð með fólki sem finnst nútímatónlist ekki vera annað en
myndlausar slettur á hljóðhimnunni. Ég hef ekki samúð með þeim
sem fyrirlíta hana fyrir það.
En er til einhver lykill að ósönghæfri tónlist?
1) Karlinn sem var að selja þrívíddarmyndina reyndi að hjálpa
mér: „Fá rétta fjarlægð,“ sagði hann. „Horfa ekki í fókus. Gleyma
sér.“ Þetta eru nokkuð holl ráð fyrir þann sem finnst einhver tónlist
torgripin. Óvant eyra nemur meiri upplýsingar en því tekst að henda
reiður á. Smáatriðin trufla. Á sama hátt trufluðu pensilförin augað á
fyrstu árum impressjónismans. Svo vandist augað og heildarmyndin
birtist. Smám saman hvarf fordómurinn um hvað ætti að vera á
myndinni.
2) Eins er með ljóðin: Sá sem les of smásmugulega og leitar að
röklegum, hlutlægum skilningi villist. Að skilja ljóð er ekkert annað
en að upplifa það á þess eigin forsendum, að leyfa því að kveikja
mynd eða ný hugsanatengsl. Til þess þarf enga sérstaka þekkingu,
bara það sem kalla mætti samhygð, innlifun, innsæi. Sá sem „fílar“
ljóðið skilur það. Uppskeran verður meiri og fyrirhöfnin minni en
margir halda.
3) Að skilja er ekki það sama og að unna. Við tengjumst ástvini allt
annars konar sambandi en því sem orðið „skilningur“ nær yfir. Það
sama á við um listaverk.
4) Ráðvilltur hlustandi gæti spurt hvar stefið sé, hvað sé aðalatriði,
hvar séu kaflaskil og hvað þetta tákni. Þetta mundi hann heyra ef
höfundurinn hefði ætlað sér það. Svo er eins og margir leiti bara að
„fegurð“, huggun og andakt í tónlist. Allt sýnir þetta fordóma. Jú,
músík getur verið ágætt geðlyf, en hún er líka óendanlega margt
annað: Víma, dans sársauki, háð, öskur, fjör, ljóð, ögrun og allt hitt. Í
stuttu máli: Líf. Og eins og lífið er tónlist hvorki heilög né göfug.
Hún er bara sönn.
5) Hlustum á karlinn með tölvumyndina. Það getur jafnvel borgað
sig að líta ekki á þetta sem tónlist. Er þetta ekki bara einhver
atburður sem á sér stað meðan vill svo til að við sitjum í nágrenninu?
Og hvað ef við gleymum okkur á meðan? Hver veit nema að verkinu
loknu sitji einhver ný mynd eftir í sálinni. Þá uppgötvum við kannski
að í því bjó meiri huggun en við héldum: Sú huggun að nokkurt vit sé
þrátt fyrir allt í því að sitja hér einmitt nú, að lifa í nútímanum en
ekki fortíðinni, að fylgjast með sköpun heimsins og taka þátt í henni.
Hljóðslettur
Ljóð Jónasar á dönsku
Kl. 17
Þórunn Eymundardóttir opnar
sýningu sína INRI kl. 17 í dag í
Gallerí Bláskjá á Egilsstöðum.
Á sýningunni má sjá skúlptúra,
innsetningar og tvívíð verk.
Galleríið er opið þriðjudaga,
miðvikudaga, fimmtudaga og
föstudaga frá 13-18 og laugar-
daga frá 12-16.
Hulda Stefánsdóttir mynd-
listarmaður opnar einka-
sýningu sína hlutlaus. á
hreyfingu í Gallerí Ágúst
laugardaginn 28. september.
„Hugmyndin að þessari sýningu
kviknaði út frá því að ég hafði
mikið unnið með hvíta litinn.
Mig langaði til þess að vinna með
enn meiri litleysu og fór því að
vinna með grátt og aðra daufa
liti. Í gegnum þessa vinnu upp-
götvaði ég þó að fullkomin
litleysa er ekki til og að allir litir
eru miklir litir, ef svo má segja.
Afraksturinn má svo sjá á sýn-
ingunni í Gallerí Ágúst,“ segir
Hulda.
Uppistaða sýningarinnar eru
málverk og ljósmyndir. „Ég vinn
út frá málverkinu þannig að
verkin á sýningunni líkjast mál-
verkum þótt þau séu það ekki.
Ljósmyndatæknin hefur verið
hálfgerð ögrun við málverkið
alveg frá því hún kom fyrst fram
og því er spennandi að vinna
með málverk og ljósmyndir og
sjá hvernig þessir miðlar kallast
á. Svo eru þrjú myndbandsverk
á sýningunni sem er varpað á
vegg. Þau vinna saman og
hreyfast og frjósa sitt á hvað og
draga því fram muninn á frosn-
um ramma málverksins og ljós-
myndarinnar annars vegar og
hreyfanleika myndbandsins hins
vegar.“
Enn fremur eru á sýningunni
verk unnin í aðra miðla. Vekur
athygli að Hulda vinnur með
ljósrit. „Ljósritið er vissulega
fremur óvenjulegur myndlistar-
miðill en hentar mér vel í þess-
ari sýningu. Ég hef tekið hálf-
gerðu ástfóstri við tiltekna
ljósritunarvél sem skilar öllu frá
sér rákóttu og illskiljanlegu.
Hún hentar mér vel,“ segir
Hulda og hlær.
Á sýningunni eru verk sem
áður voru á sýningu Huldu, The
Neutral: In Motion, í PLUG IN
Institute of Contemporary Art í
Winnipeg í Kanada.
„Þetta er að mestu leyti sama
sýning og ég setti upp í Winni-
peg, en þar sem galleríin tvö eru
afar ólík hef ég lagað hana að
þessum nýja vettvangi. Það er
afar spennandi ferli, enda finn-
ast mér verkin endurlífgast
þegar þau eru komin í nýtt rými.
Það veitir mér tækifæri til að sjá
þau í öðru ljósi en áður,“ segir
Hulda að lokum.
Hlutlaus. á hreyfingu opnar í
Galleríi Ágúst laugardaginn 29.
september kl. 16 og stendur sýn-
ingin til 10. nóvember.
Handverkshefð í hönnun
34 hönnuðir, lista- og handverkskfólk sýna verk sín
Boðið er upp á leiðsögn fyrir hópa
Leiðsögn á skandivanísku kl.14 á laugardag
Leiðsögn á íslensku kl.14 á sunnudag
Ertu með eitthvað NÝTT á prjónunum?
Prjónanámskeið fyrir byrjendur
fjögur mánudagskvöld 1. - 22. okt kl. 19:30 - 22:30.
Kennari: Ásta Kristín Siggadóttir.
Skráning á www.heimilisidnadur.is,
s. 551 7800 og 895 0780
Komdu að kveða í Gerðubergi!
Kvæðamannafélagið Iðunn
Dagskrá haustsins er að hefjast
félagsfundur fös 5. október kl.20. Sjá www.rimur.is
Úr ríki náttúrunnar
Guðmunda S. Gunnarsdóttir, alþýðulistakona,
sýnir málverk og myndverk úr rekaviði og steinum
Sýningar eru opnar virka daga frá 11-17
og um helgar frá 13-16. Sími 575 7700.
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Auglýsingasími
– Mest lesið