Fréttablaðið - 28.09.2007, Page 65
Listasafn Reykjavíkur gengst
fyrir málþingi og listamannaspjalli
um málarann Eggert Pétursson
laugardaginn 29. september kl. 13 í
fundarsal Kjarvalsstaða. Þátttak-
endur eru auk listamannsins, Ólöf
K. Sigurðardóttir, sýningarstjóri
og deildarstjóri fræðsludeildar
safnsins, og myndlistarmaðurinn
Ingólfur Arnarson, en bæði rita í
hina veglegu bók um listamanninn
sem kom út í tilefni af sýningunni.
Sýningu Eggerts Péturssonar
hefur verið afar vel tekið af öllum
aldurshópum og aðsókn á hana
verið jöfn og þétt. Frá því sýningin
var opnuð, 8. september, hafa
daglegir gestir að jafnaði verið 450
eða alls um 8.500 gestir á tæplega
þremur vikum. Sýningin spannar
feril Eggerts frá upphafi til
dagsins í dag og eru þar rúmlega
fimmtíu verk til sýnis.
Málþing
um Eggert
Þjóðminjasafnið kveður sýninguna
Leiðina á milli nú um helgina. Á
sýningunni eiga verk listamenn-
irnir Guðrún Kristjánsdóttir,
Guðbjörg Lind og Kristín Jóns-
dóttir frá Munkaþverá. Við
sýningarlok sunnudaginn 30.
september klukkan 15 fá gestir
leiðsögn um Leiðina á milli hjá
Gísla Sigurðssyni íslenskufræðingi.
Gísli mun fjalla um sýninguna í
tengslum við varðveislu- og
miðlunarhlutverk safna á borð við
Þjóðminjasafnið. Slíkum söfnum
ber að varðveita hinn svokallaða
menningararf, tilteknar minjar
fortíðar sem tengjast þjóðum eða
öðrum hópum. Þessum minjum er
meðal annars miðlað til samtímans
gegnum fastasýningar safnanna en
þar er þó yfirleitt aðeins brot af
öllum safnkostinum. Þannig eru til
dæmis einungis um 2.000 munir til
sýnis á grunnsýningu Þjóðminja-
safnsins en í eigu safnsins eru
tugir þúsunda gripa.
Sýningarlok
Hamskiptin
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Takmarkaður sýningafjöldi!
Fimm stjörnur
The Guardian, Michael Billington
„85 mínútna meistaraverk.“
Daily Mail
Tilnefnd til Evening Standard
verðlaunanna árið 2006.
Leikgerð og leikstjórn: Gísli Örn Garðarsson og David Farr
Tónlist: Nick Cave og Warren Ellis
Leikarar: Elva Ósk Ólafsdóttir, Gísli Örn Garðarsson,
Ingvar E. Sigurðsson, Nína Dögg Filippusdóttir og
Ólafur Egill Egilsson
Ein vinsælasta sýning Lundúnaborgar 2006
Verkið Hálsfesti Helenu verður tekið
til sýninga í Þjóðleikhúsinu á ný í
haust, en verkið var frumsýnt á
Smíðaverkstæðinu í vor. Leikritið er
eftir eitt þekktasta nútímaleikskáld
Kanada, Carole Fréchette, en hún
skrifaði verkið eftir að hafa dvalið
um tíma í Líbanon árið 2000.
Leikstjóri sýningarinnar er María
Sigurðardóttir en leikarar í sýning-
unni eru Edda Arnljótsdóttir, Arnar
Jónsson og Guðrún Snæfríður Gísla-
dóttir.
Aðalpersóna leikritsins er Helena,
kona frá norðlægu landi, sem er á
heimleið af ráðstefnu í borg í Austur-
löndum nær, þar sem uppbygging er
hafin eftir langvarandi stríðshörm-
ungar. Hún ákveður að lengja dvöl
sína í landinu í von um að finna háls-
festi sem hún hefur tapað.
Leit Helenu um götur borgarinnar
leiðir hana á vit fólks sem hefur ekki
síður en hún glatað einhverju sem er
því dýrmætt. Hún öðlast nýjan skiln-
ing á samskiptum ólíkra menningar-
heima og verður ljóst að „við getum
ekki lifað svona lengur“. Hér er á
ferðinni einstaklega áleitið og óvenju-
legt verk um mannlega samkennd og
löngunina til að endurheimta hið
glataða. Þetta er einnig mikilvægt
verk á tímum stríðshörmunga í
Austurlöndum nær.
Líkt og í vor býður Þjóðleikhúsið
áhorfendum upp á stutt erindi og
umræður eftir nokkrar sýningar á
Hálsfesti Helenu. Fyrirlesarar koma
úr ýmsum áttum, en eiga það sam-
eiginlegt að hafa sérstaka þekkingu á
málefnum Austurlanda nær.
Sýningarnar hefjast að nýju í
kvöld en aðeins eru fimm sýningar
fyrirhugaðar. Á sunnudaginn mun
Viðar Þorsteinsson heimspekingur
flytja erindi að lokinni sýningu en
aðrir frummælendur verða Gréta
Gunnarsdóttir, lögfræðingur og
nýskipaður sviðsstjóri alþjóða- og
öryggissviðs utanríkisráðuneytisins,
og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra.
Samskipti menningarheima