Fréttablaðið - 28.09.2007, Síða 71
Áhuginn á Iceland Airwaves-
hátíðinni verður sífellt meiri á
meðal útvarpsstöðva í Evrópu. Nú
þegar hafa bæði DR P3 og BBC
Radio 1 óskað eftir aðstoð frá
Ríkisútvarpinu við beinar
útsendingar frá Airwaves 2007
sem stendur yfir 17. til 20.
október.
Undanfarin ár hafa tíu til
fimmtán útvarpsstöðvar sótt efni
Rásar 2 frá Airwaves og notað í
sína dagskrá. Á síðustu hátíð
hljóðritaði Rás 2 næstum þrjátíu
hljómsveitir og valdi úr því brot
af því besta sem er tilbúið til
niðurhals hjá höfuðstöðvum EBU.
Á meðal þeirra hljómsveita sem
voru valdar eru Klaxons, The Go!
Team, Mugison og Jakobínarína.
Beint frá
Airwaves
Morðmál upptöku-
stjórans Phil Spector
hefur verið fellt niður
eftir að kviðdómur
gat ekki komist að
einróma niðurstöðu.
Tíu kviðdómendur af
tólf töldu að Spector
væri sekur en það
dugði ekki til.
Spector, sem hefur
verið látin laus, átti
yfir höfði sér allt frá
fimmtán ára- til lífs-
tíðarfangelsis hefði
hann verið fundinn
sekur um morðið á
leikkonunni Lönu
Clarkson á heimili
sínu í Kaliforníu árið 2003. Fannst
hún látin eftir að hafa verið
skotin í munninn.
Verjendur Spector
sögðu að um sjálfs-
morð hefði verið að
ræða. Saksóknarar í
málinu ætla aftur á
móti að áfrýja og
segjast ekki ætla að
hætta fyrr en rétt-
lætinu hafi verið
fullnægt.
Spector hefur
unnið með mörgum
af þekktustu nöfnum
tónlistarbransans,
þar á meðal Bítlunum.
Er hann frægur fyrir
að hafa skapað „hljóð-
múrinn“ með upptöku-
tækni sinni á sjöunda ára-
tugnum.
Spector látinn laus
Bjarna töframanni hefur verið boðið að skemmta á
uppistandsklúbbi í Miami og á tveimur stöðum í Los
Angeles. Annars vegar á Magic and Comedy Club þar
sem David Letterman og Jay Leno hafa komið fram
og hins vegar á töframanna- og veitingastaðnum The
Magic Castle.
„Ég var að sýna félaga mínum töfrabrögð og þá
vildi fólkið á næsta borði fá að sjá. Síðan kynnti það
sig og þetta voru þá eigendur staðarins. Þeim fannst
þetta mjög áhugavert því þessi töfrabrögð sem ég er
búinn að æfa heima eru öðruvísi en úti í hinum stóra
heimi. Þau vildu fá mig til að skemmta og halda
fyrirlestur um það hvernig er að vera töframaður á
hinu afskekkta Íslandi,“ segir Bjarni.
Bandaríski uppistandarinn Pablo Francisco treður
upp í Háskólabíói í kvöld. Bjarni var kynnir þegar
Pablo hélt þrjár sýningar á Hótel Nordica fyrir
þremur árum en var ekki beðinn um að endurtaka
leikinn í þetta sinn. Eftir samstarfið með Pablo stóð
Bjarna til boða að skemmta í Bandaríkjunum en
ekkert varð af því. „Ég hafði ekki tíma til þess og svo
gekk erfiðlega að hafa samband við umboðsmanninn
hans,“ segir Bjarni, sem veit ekki hvenær hann getur
þekkst boðið um að koma fram vestanhafs.
Boðið á þrjá bandaríska klúbba
Breska hljómsveitin The Magic
Numbers er væntanleg til
Íslands og heldur tónleika hér í
næsta mánuði. Tónleikarnir
verða í Fríkirkjunni sunnudags-
kvöldið 21. október. Samkvæmt
heimasíðunni Gigwise.com eru
tónleikarnir haldnir á vegum
Coca Cola í Evrópu. Athygli
vekur að tónleika The Magic
Numbers ber upp á sömu helgi
og tónlistarhátíðin Iceland
Airwaves er haldin. Fréttablaðið
hefur fyrir því heimildir að
tónleikarnir verði í raun hluti af
hátíðinni en aðstandendur
Airwaves vildu ekki staðfesta
það.
The Magic Numbers er skipuð
tvennum systkinum. Sveitin sló í
gegn með fyrstu plötu sinni,
samnefndri sveitinni, árið 2005.
Í fyrra kom svo út önnur plata
Magic Numbers, Those the
Brokes.
Magic
Numbers
til Íslands
DAGUR
ÆSKU
LÝÐSS
TARFS
MÁLÞING UM GILDI
ÆSKULÝÐSSTARFS,
29. SEPTEMBER KL. 14:00
Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR
DRÓTTSKÁTASVEITIN DÍMON
GYLFI JÓN GYLFASON
SÁLFRÆÐINGUR
KRISTÍN RÓS HÁKONARDÓTTIR
AFREKSÍÞRÓTTAKONA
BJARNI TÖFRAMAÐUR
STEFÁN EIRÍKSSON
LÖGREGLUSTJÓRI
ICESTEP DANSHÓPURINN
TORFI TÓMASSON
VITNISBURÐIR
FRÁ STARFI AÐILDARFÉLAGA
KLIFURVEGGUR, KASSAKLIFUR,
NÆLUGERÐ, BLÖÐRUR
OG MARGT FLEIRA
LEIKTÆKI ERU OPIN MILLIKL. 13 OG 17
Bandalag íslenskra skáta