Fréttablaðið - 28.09.2007, Síða 72
Lokaumferð Landsbanka-
deildar karla fer fram á morgun
og þar geta Valsmenn tryggt sér
titilinn í fyrsta sinn í 20 ár með því
að vinna HK á heimavelli sínum á
Laugardalsvelli. FH-ingar eiga
einnig möguleika á titlinum
misstígi Valsmenn sig en meistarar
síðustu þriggja ára sækja Víkinga
heima. Mótherjar toppliðanna eru
báðir að berjast fyrir lífi sínu í
deildinni.
Það er við hæfi að á síðasta
tímabilinu sem tíu lið eru í efstu
deild karla að úrslitin úr baráttunni
um Íslandsmeistaratitilinn skuli
ekki ráðast fyrr en í loka-
umferðinni, alveg eins og í 55
prósentum tilfella síðan deildin
varð fyrst tíu liða deild sumarið
1977.
Það hefur enn fremur aðeins
fjórum sinnum gerst að toppliðið
fyrir síðustu umferðina hefur
misst af titlinum í 18. umferð. Það
voru lið Vals (1979), FH (1989), KR
(1996) og Fylkis (2002) sem öll
höfðu málin í sínum höndum en
þurftu að horfa á eftir Íslands-
meistaratitlinum.
Haustið 1979 voru Valsmenn og
Eyjamenn jafnir að stigum fyrir
lokaumferðina, Valsliðið var með
betri markatölu en þá þurfti
aukaleik ef liðin yrðu jöfn. ÍBV
vann Víking 1-0 í 18. umferðinni
en Valsmenn sóttu falllið KA
heima daginn eftir og þurftu að
vinna til þess að tryggja sér
aukaleikinn. KA gerði hins vegar
út um meistaravonir Valsmanna
með því að ná 1-1 jafntefli. KA
komst í 1-0 eftir 28 mínútna leik,
Valsmenn náðu að jafna á 67.
mínútu en nær komust þeir ekki
og Eyjamenn urðu meistarar.
FH-ingar voru með aðra höndina
á titlinum 1989. Þeir voru með eins
stig forustu og þurftu „bara“ að
vinna botnlið Fylkis á sínum eigin
heimavelli til þess að vinna titilinn.
FH fékk draumabyrjum og komst
í 1-0 eftir aðeins 3 mínútur en
Fylkir jafnaði 13 mínútum síðar
og það var síðan hinn 17 ára gamli
Kristinn Tómasson sem tryggði
Fylki óvæntan 1-2 sigur með marki
11 mínútum fyrir leikslok. KA
vann á sama tíma 0-2 sigur í
Keflavík og tryggði sér Íslands-
meistaratitilinn.
KR-ingum nægði jafntefli gegn
ÍA í lokaleik 18. umferð 1996 til
þess að vinna Íslandsmeistara-
titilinn, liðin voru jöfn að stigum
fyrir lokaumferðina en KR var
með betri markatölu. Skagamenn
unnu hins vegar þennan óopinbera
úrslitaleik 4-1 og tryggðu sér
titilinn með sannfærandi hætti.
Fylkismenn áttu haustið 2002
alveg eins og FH-ingar 13 árum
áður möguleika á að tryggja sér
sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil
með því að vinna sinn leik í
lokaumferðinni. Fylkir var með
eins stig forskot á KR og sótti ÍA
heim en Skagamenn höfðu litlu að
keppa. Skagamenn skoruðu hins
vegar tvö mörk á þremur mínútum
í upphafi seinni hálfleiks og
tryggðu sér 2-0 sigur þar sem
Fylkismenn áttu sinn slakasta leik
á tímabilinu. Á sama tíma vann
KR 5-0 stórsigur á Þór og tryggði
sér Íslandsmeistaratitilinn.
Útlitið hefur líka oft verið svart
hjá nokkrum liðum sem var þó
aðeins til þess að auka dramatíkina
og spennuna á lokadegi mótsins.
Bestu dæmin um það eru Íslands-
mótin 1990, 1991 og 2000. Í öll
skiptin lentu verðandi meistarar
undir í sínum leikjum en náðu að
bjarga sér á lokamínútunum.
Framarar voru 2-0 undir á móti
Val í 18. umferð 1990 og allt benti
til þess að titilinn væri á leiðinni í
Vesturbæinn. Framarar skoruðu
hins vegar þrisvar á síðasta hálf-
tímanum og var það varnar-
maðurinn Viðar Þorkelsson sem
tryggði þeim sigur og þar með
Íslandsmeistaratitilinn með marki
á 83. mínútur. Ári síðar var það
Víkingurinn Björn Bjartmarz sem
var hetjan. Hann kom inn á sem
varamaður þegar Víkingar voru 0-
1 undir, skoraði tvö mörk og lagði
upp eitt og tryggði Víkingum
titilinn. Afrek KR-ingsins Andra
Sigþórssonar níu árum síðar var
ekki minna en hann skoraði fernu
á 19 mínútum, breytti stöðunni úr
0-1 fyrir Stjörnuna í 4-1 sigur og
færði um leið KR-ingum Íslands-
meistaratitilinn.
Nú er að sjá hvað gerist í
lokaumferðinni og það er öruggt
að margir bíða spenntir þegar það
verður flautað til leiks klukkan
14.00 á morgun.
Íslandsmeistaratitilinn vinnst nú í lokaumferðinni í 17. skipti á því 31 tímabili sem efsta deild karla hefur
innihaldið tíu lið. 27 sinnum hafa verðandi Íslandsmeistarar setið á toppnum eftir 17. umferðina.
Friðrik Stefánsson,
landsliðsmiðherji og fyrirliði
Njarðvíkur, lék ekki með liðinu í
undanúrslitum Powerade-bikars-
ins í gær samkvæmt læknisráði.
Friðrik þurfti að leggjast inn á
sjúkrahús eftir leik Njarðvíkur
og ÍR í átta liða úrslitunum
síðasta sunnudag og er á leiðinni
í hjartaþræðingu eftir helgi.
Frá þessu var fyrst sagt á
vefsíðu Víkurfrétta en Friðrik
sagði í samtali við hana að hann
hefði ekkert æft í þessari viku
og vissi lítið um framhaldið fyrr
en eftir hjartaþræðingu.
Friðrik spilaði í 33 mínútur í
leiknum á móti ÍR, skoraði 12
stig og tók 8 fráköst.
Það er ljóst að fjarvera
Friðriks mun hafa mikil áhrif á
leik Njarðvíkurliðsins enda
hefur hann verið miðpunkturinn
í leik liðsins undanfarin ár.
Friðrik var kosinn besti
leikmaður tímabilsins 2005-06
en Njarðvíkingar unnu þá
Íslandsmeistaratitilinn. Friðrik
lék sinn 100. landsleik í sumar
og spilaði stórt hlutverk í
frábærum árangri landsliðsins
sem vann 8 af 9 leikjum ársins.
Má ekki spila körfubolta
Undanúrslitaleikir
Powerade-bikars kvenna fara
fram í Laugardalshöllinni í
kvöld. Klukkan 19.00 taka
Íslands- og bikarmeistarar
Hauka á móti Val og tveimur
tímum síðar mætast nágrann-
arnir í Keflavík og Grindavík.
Haukaliðið hefur unnið þessa
keppni tvö síðustu ár og hefur
ekki tapað leik í henni síðan 4.
október 2005. Keflavík vann hins
vegar keppnina þrjú skipti þar á
undan.
Liðin í kvennakörfunni hafa
tekið þónokkrum breytingum frá
því í fyrra og því verður fróðlegt
að sjá hvernig fer í kvöld.
Undanúrslita-
leikirnir í kvöld
Kvennalið KR hefur
fengið til sín nýjan bandarískan
leikmann fyrir tímabilið en það er
Monique Martin sem er 24 ára og
180 cm bakvörður.
KR-ingar vonast til að Martin
finni sig betur á Íslandi en Aarica
Ray-Boyd sem kom til liðsins í
haust en var aðeins á landinu í
nokkra daga.
Martin var í æfingabúðum hjá
WNBA-liðinu Connecticut Sun í
vor og þótti standa sig vel þar.
Hún lék með Brewton Parker-
háskólanum í NAIA-deildinni
síðasta vetur þar sem hún var
með 29,5 stig, 9,7 fráköst og 3,7
stolna bolta í leik.
Monique spilar
með KR-konum
Guus Hiddink, þjálfari
Rússa, sagði í gær að eigandi
Chelsea hefði komið að máli við
sig um að taka við Chelsea-liðinu
af José Mourinho. „Roman
Abramovich spurði mig hvað
þyrfti til þess að fá mig til að taka
við Chelsea, en ég sagði honum að
ég væri að einbeita mér að
Rússum í augnablikinu.“
Uppljóstrun Hiddink kemur
aðeins degi eftir að Chelsea gaf út
yfirlýsingu þess efnis að
núverandi stjóri liðsins, Avram
Grant, hefði ekki verið fenginn til
bráðabirgða og liðið væri ekki að
leita að arftaka hans. -
Ég neitaði boði
Abramovich
Tjái mig bara á minni „frábæru“ ítölsku