Fréttablaðið - 04.10.2007, Blaðsíða 1
Á sérsaumaðan kjól í
anda Mischu Barton
SIMPLY CLEVER
Ást við fyrsta akstur
Hólmfríður Anna Baldursdóttir lét hanna
Mischu Barton-kjól á sig í Víetnam.Hólmfríður Anna Baldursdóttir upplýsi
Unicef á Íslandi sk llf
hún beið eftir fatnaði, þegar hún rak augun í silkikjól
sem hún bara varð að eignast Mkjólnum á
Falleg
fimmtugsveisla
64,5 prósent landsmanna
vilja að Ólafur Ragnar Grímsson
sækist eftir því að verða forseti
fjórða kjörtímabilið í röð. 35,5 pró-
sent vilja nýjan forseta, sam-
kvæmt niðurstöðum könnunar
Fréttablaðsins. Núverandi kjör-
tímabili lýkur á næsta ári.
Þegar Fréttablaðið kannaði
afstöðu landsmanna til framboðs
Ólafs fyrir fjórum árum mældist
stuðningur við það öllu meiri, eða
um 77 prósent.
Mestur er stuðningurinn við
áframhaldandi setu Ólafs meðal
fylgismanna Vinstri grænna, en
um 77 prósent þeirra vilja að hann
sitji lengur. 70,7 prósent þeirra
sem ekki gefa upp stjórnmála-
skoðun, 70,2 prósent Samfylking-
arfólks og 65 prósent Frjálslyndra
eru sömu skoðunar. Talsvert minni
áhugi er fyrir því meðal kjósenda
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks að Ólafur sitji lengur, eða
49 og 50 prósent.
Guðni Th. Jóhannesson sagn-
fræðingur segir hefð fyrir því að
forsetar á Íslandi sitji í fjögur
kjörtímabil og að allt bendi til þess
að Ólafur muni njóta víðtæks
stuðnings vilji hann halda áfram.
Einnig var spurt hvern fólk vildi
sjá gegna forsetaembættinu færi
svo að Ólafur byði sig ekki fram.
Fáir tóku afstöðu en þeir sem hvað
oftast voru nefndir voru formenn
stjórnmálaflokkanna auk Davíðs
Oddssonar, Bjarna Ármannssonar,
Þórólfs Árnasonar, Berglindar
Ásgeirsdóttur og Jóns Baldvins
Hannibalssonar.
Mikill meirihluti vill
Ólaf áfram í embætti
Um 65 prósent vilja að Ólafur Ragnar Grímsson sækist eftir forsetakjöri fjórða
kjörtímabilið í röð. Fyrir fjórum árum var stuðningur við hann 77 prósent.
Stefáni Karli Stefánssyni
hefur verið boðið að leika Grinch,
eða Trölla, á
Broadway á
næsta ári. Þetta
staðfestir
leikarinn í
samtali við
Fréttablaðið.
Leikstjóri
sýningarinnar
verður að öllum
líkindum Jack
O‘Brian sem er
þrefaldur Tony-verðlaunahafi.
„Þetta er náttúrulega fyrst og
fremst mikill heiður fyrir mig,“
segir Stefán en hann verður að
öllum líkindum fyrsti íslenski
leikarinn til að afreka þetta.
Stefáni var boðið að taka þátt í
svokölluðum vinnubúðum fyrir
nokkru og var þar í þrjár vikur
með leikstjóranum. Framleiðend-
um verksins leist svo vel á
hugmyndir Stefáns að þeir buðu
honum að velja sér borg til að
leika í, en reiknað er með að þetta
verði mikið fyrirtæki. „Og að
sjálfsögðu valdi ég New York og
Broadway,“ segir Stefán.
Verður Trölli á
Broadway
Íslendingur hreppti
fyrsta vinninginn í Víkingalottó-
inu í gær. Vinningsupphæðin
nemur 105 milljónum króna og
678.670 krónum betur. Þetta mun
vera langstærsti vinningur sem
Íslensk getspá hefur greitt út.
Vinningsmiðinn var keyptur í
Hagkaupum á Akureyri en að
sögn Evu Sifjar Heimisdóttur,
aðalbókara Íslenskrar getspár,
hafði vinningshafinn ekki gefið
sig fram þegar blaðið fór í
prentun. Íslenski vinningshafinn
var einn þátttakenda með allar
sex aðaltölurnar réttar, en til
gamans má geta að vinningstöl-
urnar voru 1, 3, 10, 27, 28 og 46.
105 milljónir í
skaut Íslendings
Sameinað félag Geysis
Green Energy og Reykjavik
Energy Invest á tæpan helming í
Hitaveitu Suðurnesja. Tilkynnt var
um sameininguna í gær. Einkaleyf-
isbundin starfsemi hitaveitunnar
verður hins vegar áfram í meiri-
hlutaeigu Reykjanesbæjar.
„Samkomulag er um að þeir
þættir sem snúa að sérleyfi Hita-
veitu Suðurnesja, en það eru veitu-
kerfi í sveitarfélögunum, verði að
meirihluta í eigu Reykjanesbæjar
og þar með í almannaeign,“ segir
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ.
Með þessu segir Árni að búið sé
að skilja á milli sveitarfélagsins og
samkeppnisreksturs sem það ætti
ekki að taka þátt í.
Haukur Leósson, stjórnarformað-
ur Orkuveitu Reykjavíkur, sem
kynnti samruna félaganna segir að
lagðar hafi verið til hliðar 130 millj-
ónir sem starfsmönnum Orkuveit-
unnar og REI bjóðist að kaupa í REI
á genginu 1,3. Hlutur hvers og eins
getur verið frá 100 og upp í 300 þús-
und að nafnverði. „En það hafa
engir kaupréttarsamningar verið
gerðir,“ segir hann. Stefnt er að
skráningu REI á markað innan
tveggja ára.
Einkaleyfisstarfsemi skilin frá