Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.10.2007, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 04.10.2007, Qupperneq 2
Í KÓPAVOGI 29. SEPTEMBER - 7. OKTÓBER 2007 Þröstur, eru leigubílstjórar svona brjóstgóðir? „Viðbrögðin hafa verið mjög góð en við munum þurfa að biðla til almennings áfram næstu daga og vikur,“ segir Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans. Nokkuð hefur gengið á birgðir bankans undanfarið og hafa forsvarsmenn hans því brugðið á það ráð að minna á sig með því að senda skráðum blóðgjöfum sms-smáskilaboð og tölvupóst. Sveinn segir að á haustin reynist Blóðbankanum oft erfitt að hafa nægar birgðir. Ástæðan sé sú að margir blóðgjafar séu uppteknir en einnig sé mikið um aðgerðir á sjúkrahúsunum sem oft krefjast mikilla blóðgjafa. „Okkur vantar helst blóð í O-flokki. Við erum bjartsýn en finnum að sjúkrahúsin þurfa á miklu blóði að halda þessa dagana,“ segir Sveinn. Á þriðjudaginn komu hundrað blóðgjafar í bankann en um nóttina voru notaðar 120 einingar af blóði á sjúkrahúsunum. Í gær gáfu 200 blóðgjafar blóð. Þegar svona stendur á leitar bankinn til skráðra blóðgjafa sem eru um 10.000 talsins. Þeir sem hafa áhuga á að gerast blóðgjafar eru beðnir um að bíða um sinn og koma í bankann þegar mestu annirnar eru yfirstaðnar. Í dag verður opið til kl. 19 í Blóðbankanum við Snorrabraut auk þess sem blóðbíllinn tekur á móti blóðgjöfum við Fjarðarkaup í Hafnarfirði milli klukkan 13 og 17. Mest þörf á blóði í O-flokki Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað sjö Litháa í viku gæsluvarðhald vegna þjófnaðar úr verslunum á höfuð- borgarsvæðinu. Sjö til viðbótar eru einnig í haldi og í dag kemur í ljós hvort krafist verður gæsluvarð- haldsúrskurðar yfir þeim. Menn- irnir eru grunaðir um skipulagðan þjófnað úr verslunum og um að hafa ætlað að senda þýfið úr landi og selja það í heimalandi sínu. Einn mannanna átti pantað far heim til Litháen í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu hefur málið verið í rannsókn í nokkurn tíma en ýmsar upplýs- ingar, meðal annars frá fangaverði á Litla-Hrauni, leiddu lögreglu á slóð mannanna. Meðal þess sem er rannsakað er hvort þeir hafi áður flutt þýfi úr landi og hvort fleiri tengist málinu. Mennirnir eru á aldrinum 20 til 28 ára og þekkjast innbyrðis. Þeir bjuggu saman í tveimur íbúðum í Austurborginni, sjö á hvorum stað. Sjö voru handteknir á þriðjudags- kvöld og hald lagt á þýfi eftir hús- leit. Í gærmorgun var gerð húsleit hjá hinum sjö og þeir handteknir. Þar fannst einnig þýfi. „Það má segja að það sé óvenju- legt að finna svo mikið af varningi á einum stað,“ segir Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn. Hann segir að umfangið gefi verslunareigendum og verslunar- fólki tilefni til að huga betur að þjófavörnum. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins ætla einhverjir mannanna að áfrýja gæsluvarðhaldsúrskurð- inum. Grunaðir um að ætla með þýfið úr landi Fjórtán Litháar eru í haldi lögreglunnar í Reykjavík grunaðir um skipulagðan þjófnað í verslunum. Mikið þýfi fannst við húsleit á tveimur stöðum. Lögregla hefur verið á slóð mannanna um nokkurt skeið. Veitingamenn í miðborg Reykjavíkur hafa stofnað með sér samtök undir nafninu Félag kráareigenda. Markmið félagsins er að bæta bæjarbraginn og auðvelda samstarf allra hags- munaaðila í miðborginni. Baldvin Samúelsson, talsmaður félagsins, segir að umræðan að undanförnu hafi verið ósann- gjörn. „Við fögnum því að löggæslan sé orðin sýnilegri og við sjáum mikinn mun á því hve umgengni hefur batnað og skrílslæti minnkað,“ segir Baldvin. Félagsmenn hvetja til faglegrar umræðu um málefni miðborgarinnar. Vilja bæta bæjarbraginn Á fundi leikskólaráðs Reykjavíkur í gær kom fram að 150 starfsmenn vantar á leikskóla borgarinnar. Fulltrúar minnihlutans vilja beina þeim tilmælum til borgar- ráðs að í launaáætlun fyrir árið 2008 verði gert ráð fyrir svigrúmi til að nýta ákvæði gildandi kjarasamninga við starfsfólk leikskólanna. Bókun þess efnis var skráð á fundinum í gær. Fulltrúar minnihlutans vísuðu til skjótra viðbragða dómsmála- ráðherra við manneklu í röðum lögregluþjóna. Vantar 150 starfsmenn Nyhedsavisen, sem gefið er út af Íslendingum, er nú orðið þriðja vinsælasta dag- blað Danmerk- ur með 503.000 lesendur dag- lega. Það er aukning um níu- tíu þúsund les- endur frá síð- asta mánuði, eða um tæp 22 prósent. Einungis fríblöðin 24timer og MetroXpress slá Nyhedsavisen við, en Nyhedsavisen er nú vin- sælast í stærstu borgum landsins, Kaupmannahöfn, Árósum og Óðinsvéum. David Trads, ritstjóri Nyheds- avisen segist ánægð- ur með nýju tölurn- ar, en þær komi ekki á óvart. „Við höfum vaxið í hverjum mán- uði og höfum nú tvö- faldað lesendafjölda okkar frá áramótum. Miðað við gang mála held ég að við kom- umst á toppinn á næstu mánuðum.“ Hann segir þróunina sýna yfirburði fríblaða sem útgáfuforms. „Það sama er að gerast hér og gerðist á Íslandi. Eftir að Nyhedsavisen og Fréttablaðinu var hleypt af stokkunum lesa fleiri dagblöð bæði á hérlendis og á Íslandi. Það er aug- ljóst að sams konar blöð myndu slá í gegn hvarvetna á Vesturlöndum, enda koma fulltrú- ar erlendra fjöl- miðla reglulega í heimsókn til okkar til að kynna sér starfið.“ Strokufangarnir sem struku úr fangelsinu á Litla- Hrauni í fyrrakvöld voru handteknir í húsi í vesturbæ Reykjavíkur um hádegisleytið í gær. Bifreiðin sem þeir stálu er einnig fundin, sem og greiðslu- kort sem þeir hnupluðu. „Það er skárra að láta stela af sér bíl heldur en að brotist sé inn til manns,“ segir Guðmundur Karl Sigurdórsson, eigandi bílsins. Ekki komst upp um þjófnaðinn fyrr en kona Guð- mundar ætlaði að fara með unga dóttur þeirra í læknisskoðun um morguninn. Flóttinn tafði læknisskoðun Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitunnar, tók ekki afstöðu til samruna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy í gær, þar sem hún taldi sér ekki hafa gefist ráðrúm til að mynda sér skoðun. Hún gagnrýndi að einungis væru veittar þrjár klukkustundir til að taka ákvörðun um þetta mikil- væga mál. Boðað hafi verið til eigendafundarins með ólöglega skömmum fyrirvara og hyggst hún láta reyna á lögmæti hans. Hún lét bóka að kaup starfs- manna REI í hinu nýja fyrirtæki þyrftu sérstaka skoðun. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn vildu ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í gær. Efins um lög- mæti fundarins Stjórnarherinn í Búrma heldur áfram að beita fullri hörku gegn þeim sem tóku þátt í mótmælaaðgerðum nú í haust. Fólk hefur verið dregið út af heimili sínu að næturlagi og hermenn aka um á bifreiðum og kalla í hátalara: „Við erum með ljósmyndir. Við munum handtaka ykkur.“ Klaustrin í Rangún standa nú flest tóm, munkarnir hafa ýmist verið handteknir eða þeim skipað að fara heim til sín í sveitirnar. Beitir áfram fullri hörku
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.