Fréttablaðið

Date
  • previous monthOctober 2007next month
    MoTuWeThFrSaSu
    1234567
    891011121314
    15161718192021
    22232425262728
    2930311234
    567891011

Fréttablaðið - 04.10.2007, Page 6

Fréttablaðið - 04.10.2007, Page 6
Borgaryfirvöld í Reykjavík hyggjast greiða kostnað vegna vettvangsferða grunnskólanem- enda. Menntaráð Reykjavíkur hefur falið fræðslustjóra að gera ráð fyrir þessu í fjárhagsáætlun næsta árs. Eins og kom fram í Fréttablað- inu í gær tekur menntamálaráðu- neytið af öll tvímæli um að skyldu- nám eigi að vera nemendum að kostnaðarlausu. Það eigi einnig við um námstengdar vettvangsferðir á skólatíma. Berglind K. Þorsteinsdóttir sem á tvo drengi í áttunda og tíunda bekk í Ingunnarskóla í Grafarholti segist hafa greitt ýmsar ferðir í gegnum árin. Nú síðast hafi hún borgað fjögur þúsund krónur fyrir Þórsmerkurferð. Ferðalögin séu hins vegar ekki einu dæmin um gjaldtöku. Til dæmis taki skólinn 1.200 króna gjald fyrir skipulags- bækur þar sem nemendur færa inn námsframvindu. Í bókunum sé alls kyns efni tengt námsefninu. „Það á að vera óheimilt að taka gjald en menntasvið borgarinnar segir að það sé val hvers nemenda að kaupa dagbókina. Krakkarnir geti allt eins fært sínar áætlanir inn í öðruvísi dagbækur eða bara stílabækur. Fyrir yngstu börnin er ekkert gaman að vera með stílabók þegar hinir krakkarnir eru allir með flotta bók. Þetta er bara mis- munun sem mér finnst alvarleg á árinu 2007. Ég hélt að allir skólar ættu að fara að lögum,“ segir Berg- lind. Hanna Hjartardóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands og skóla- stjóri í Snælandsskóla í Kópavogi, segir að í ljósi niðurstöðu mennta- málaráðuneytins sé einboðið að vinsælar ferðir í skólabúðir eins og á Reyki í Hrútafirði og Laugar í Sælingsdal leggist af. Fyrir eina slíka fimm daga ferð síðasta vor hafi kostnaður skólans numið 450 þúsund krónum. Sjálfir hafi nem- endurnir greitt 650 þúsund krónur til viðbótar. Hanna segir skólann ekki hafa bolmagn til að standa undir því. Fræðslustjóri Kópavogs er nú að taka saman þann kostnað sem bærinn verður fyrir vegna túlkunar menntamálaráðuneytis- ins. Hanna segir þátttöku í vett- vangsferðum mjög góða. „Oftast er yfir níutíu prósenta þátttaka og stundum er hún hundrað prósent,“ segir Hanna sem aðspurð neitar því að einhverjir nemendur sleppi ferðunum eingöngu af fjárhags- ástæðum. „Ef við verðum þess áskynja er alltaf hægt að hlaupa undir bagga.“ Frí áfylling af rúðuhreinsi með afmæliskorti Olís U ni qu eR V 08 07 02 Unique örtrefjamoppusettið 1 stk. 2 stk. Dagleg þrif eru leikur einn Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Uniqu e 2.980 Kr. Uniqu e glerk lútur 557Kr. Skólaferðalög verða greidd úr borgarsjóði Menntaráð Reykjavíkur hefur falið fræðslustjóra að reikna með vettvangsferð- um grunnskólabarna í fjárhagsáætlun. Enginn sleppir ferð vegna fjárhagsstöðu segir formaður Skólastjórafélagsins. Foreldri segir mismunun í grunnskólum. „Það er ekki komin nein skýring á því hver sökudólgurinn er þannig að ég vil ekki tjá mig um þetta núna,“ segir Róbert Reynisson, fram- kvæmdastjóri bílaþvottastöðvarinnar Löðurs. Eigendur Löðurs ætla að byggja um átta hundruð fermetra bílaþvottastöð við Fiskislóð í Reykjavík. Sökklarnir hafa þegar verið steyptir en reyndust vera sjö og hálfum metra of nálægt götunni. Vegna þessa hefur Löður óskað eftir því við byggingarfull- trúann í Reykjavík að fá að færa húsið nær götunni miðað við upphaflegan byggingarreit svo ekki þurfi að rífa sökklana og byrja upp nýtt á byggingunni með tilheyrandi kostnaði. Byggingarfulltrúinn frestaði á þriðjudag að afgreiða bón Löðurs þar sem skýringar á mistökun- um fylgdu ekki með umsókninni. „Það er verið að vinna í þessu og þetta ætti allt að koma í ljós eftir helgi,“ segir Róbert Reynisson. Sökudólgur ekki fundinn enn Sautján árum eftir endursameiningu Þýskalands nýtur uppbygging austurhlutans, sem áður var hluti af austur- blokkinni, enn forgangs. Þessu lýsti Angela Merkel kanslari yfir í þjóðhátíðarávarpi í Schwerin í norðausturhluta landsins í gær. Merkel sagði enn margt ógert í austurhlutanum þar sem atvinnu- leysi er um tvöfalt meira en í vesturhlutanum og innviðir á borð við samgöngumannvirki eru enn ekki fullendurnýjaðir. Sú uppbygging hefur verið fjár- mögnuð með „samstöðuskatti“ á Vestur-Þjóðverja. Enn mikið ógert í austri Hagstjórnin á Íslandi er í molum og hagspár og áætlanagerð úti í hafsauga, sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, í utandagskrárumræðum um horfur í efnahagsmálum á Alþingi í gær. Steingrímur sagði alvarlegar horfur blasa við í efnahagsmálum, þó að stjórnvöld haldi því fram að hér sé góðæri og ástand gott. Steingrímur benti á að fyrir tveimur árum hafi verið talið að viðskipta- hallinn væri í hámarki. Síðar hafi hann nærfellt tvöfaldast, skuldasöfnun æði áfram með ávísun á verðbólgu, háa vexti og erlenda skuldasöfnun. Geir H. Haarde forsætisráðherra svaraði því til að skoða þurfi fleiri atriði, hagvöxtur hafi verið mikill undanfarin ár og mikil eftirspurn. Tekist hafi að komast í gegnum sveiflu undanfarinna ára án teljandi skakkafalla. Á meðan aðrar þjóðir berjist við atvinnuleysi þurfi að flytja inn vinnuafl hér. Geir gagnrýndi Steingrím fyrir að einblína aðeins á eitt atriði í heildarmyndinni, viðskipta- hallann. Hann sagðist ekki gera lítið úr því að 25,7 prósenta viðskiptahalli sé vandamál, en gert sé ráð fyrir því að hann lækki á næstu árum. Steingrímur svaraði því til að sömu aðilar og nú spái að dragi úr viðskiptahalla hafi spáð því sama fyrir tveimur árum, og sú spá hafi ekki ræst. Sömu aðilar gætu verið að gera sömu mistök. Áætlanagerð úti í hafsauga Eiga ráðherrar að sitja á þingi? Fylgdist þú með umræðum í upphafi þings? Stjórnendur Vinnumálastofnunar hafa þurft að fækka fólki vegna þess hversu lítið atvinnuleysi er í landinu. Atvinnu- leysið mælist aðeins tæp 0,9 pró- sent og hefur því orðið samdráttur í verkefnum stofnunarinnar. Starfsfólki hefur verið sagt upp undanfarin misseri og ekki hefur verið ráðið í stað þeirra sem hafa sagt störfum sínum lausum. Hugrún Jóhannesdóttir, for- stöðumaður hjá Vinnumálastofn- un, segir að aðeins 720 menn séu á atvinnuleysisskrá og því þurfi ekki sama mannafla og áður til að sýsla með málefni atvinnulausra. Fækkar starfsfólki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue: 269. tölublað (04.10.2007)
https://timarit.is/issue/277720

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

269. tölublað (04.10.2007)

Actions: