Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.10.2007, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 04.10.2007, Qupperneq 10
Þingmaður Vinstri grænna (VG) setur mikinn fyrir- vara við tölur í nýju fjárlagafrum- varpi sem lagt var fram á mánu- dag. Það er gert í ljósi reynslunnar af áætlanagerð í fjárlagafrum- varpi ársins 2007, sem hafi engan veginn staðist. Umræður verða um fjárlagafrumvarp ársins 2008 á Alþingi í dag. Samkvæmt nýjum spám verður tekjuafgangur ríkissjóðs eftir árið 2007 um 66 milljarðar en á fjárlögum var gert ráð fyrir um 9 milljarða tekjuafgangi. „Það er ljóst að þessi mikli munur á spám og rauntölum segir okkur að eitthvað er að í áætlana- gerðinni. Það gengur varla að reka skipulagðan búskap með svo lélegum forsendum,“ segir Jón Bjarnason, fulltrúi VG í fjárlaga- nefnd. „Mín skoðun er sú að það verði margir fyrir miklum vonbrigðum með velferðar- og kjaramálakafl- ann í þessu frumvarpi,“ segir Jón. Til dæmis sé þar ekkert sem bendi til þess að persónuafsláttur hækki meira en ákveðið hafi verið á síð- astliðnum misserum. Það hafi þó verið eitt af kosningaloforðum Samfylkingarinnar. Jón segir fjárlagafrumvarpið bera þess merki að vera vinnu- plagg. Þar séu til að mynda mót- vægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar ekki sundurgreindar, né uppskipt- ing ráðuneyta sem hafi áhrif á marga liði. Auk þess séu á annan milljarð eyrnamerkt varnarmál- um og æfingum herja á íslenskri grundu, og þá peninga væri eflaust hægt að nota til annars, til dæmis uppbyggingar löggæslu. „Fjárlagafrumvarpið ber þess merki að mikil þensla er í samfé- laginu, tekjurnar eru miklar og ríkisstjórnin situr við veisluborð,“ segir Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, spurður um afstöðu sína til frumvarpsins. „Ég held að ríkisstjórnin verði að átta sig á því að það er mikill hiti í hagkerfinu og þenslan er alveg gríðarleg, svo það getur allt farið úr böndunum ef þeir stíga ekki á hemlana,“ segir Guðni. Guðni segir að þjóðarsátt þurfi um að stíga á bremsuna, fresta framkvæmdum og ná verð- bólgunni niður. Hann vildi þó ekki tiltaka hvaða framkvæmdum ætti að fresta. Í öllu falli yrði að hægja á ýmsum sviðum, til dæmis megi ekki fara offari í stóriðjufram- kvæmdum. „Það er ljóst að ríkisstjórnin og landsmenn allir njóta ennþá mik- illa tekna, en þetta eru þenslutekj- ur,“ segir Guðjón Arnar Kristj- ánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Hann segir að þrátt fyrir útgjaldaaukningu í fjárlaga- frumvarpinu verði ekki betur séð en að fé vanti bæði í menntamálin og heilbrigðis- og tryggingamál- in. Guðjón segir að skipta megi landinu í tvennt, þenslusvæði og svæði þar sem engin þensla hafi verið. Niðurskurður á aflaheim- ildum á þorski komi afar illa við sjávarbyggðir, og í fjárlagafrum- varpinu sé ekkert sem snúi slæmri stöðu sjávarbyggða til betri vegar. Eina raunhæfa lausnin sé að draga úr skerðingunni, og þingmenn Frjálslynda flokksins muni flytja frumvarp þess efnis á haustþingi. VG segja eitthvað að í áætlanagerð ríkisins Þingmaður Vinstri grænna setur fyrirvara við tölur í fjárlagafrumvarpi ársins 2008 í ljósi reynslunnar af frumvarpi ársins 2007. Stíga verður á bremsuna að mati formanns framsóknarmanna. Fjárlög ársins 2008 verða rædd á Alþingi í dag. Stjórnvöld í Norður- Kóreu hétu því í gær að taka fyrir árslok í sundur aðalkjarnorkumið- stöð sína, þar sem efni í kjarnorku- sprengjur hefur verið framleitt. Á sama tíma sneri Roh Moo-hyun, forseti Suður-Kóreu, til baka frá Pyongyang þar sem hann átti fund með Kim Jong-il, leiðtoga Norður- Kóreu. Þetta var fyrsti leiðtoga- fundur Kóreuríkjanna tveggja í sjö ár. Lítið hefur verið látið uppi um hvað leiðtogunum fór á milli á fjög- urra stunda löngum fundi sínum, en boðað hefur verið að í dag verði birt sameiginleg yfirlýsing frá þeim. Samkomulagið um kjarnorkumál Norður-Kóreu náðist í sex-velda- viðræðunum svonefndu, sem fram fara í Kína. Þar var í gær greint frá því að Norður-Kóreumenn hefðu fallist á að eftirlitssveit sérfræð- inga mætti undir bandarískri for- ystu koma innan hálfs mánaðar „til að undirbúa lokun“ kjarnorkumið- stöðvarinnar í Yongbyon. Slökkt var á eina kjarnakljúfinum í mið- stöðinni í júlí síðastliðnum, eftir að Bandaríkjastjórn vék frá hörku- stefnu sinni gegn Norður-Kóreu og hét ýmiss konar aðstoð í skiptum fyrir lokun kjarnorkumiðstöðvar- innar. Eitt ár er nú frá fyrstu til- raunakjarnorkusprengingu Norður- Kóreumanna og þrettán frá fyrstu sex-velda samningunum um kjarn- orkumál þeirra. Sveitarstjórn Gríms- og Grafningshrepps hefur ákveðið að auglýsa til kynningar nýtt deiliskipu- lag vegna sumarhúsabyggðar í landi Kiðjabergs. Nýja deiliskipulagstillagan er auglýst í andstöðu við Skipulagsstofnun. Andstaðan sé vegna þess að byggingar hafi þegar verið reistar í Kiðjabergi sem ekki séu í samræmi við gildandi deiliskipulag. Ekkert lát virðist vera á ágreiningi þar um og engin sátt í sjónmáli. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu var nýtt deiliskipulag fyrir Kiðjaberg samþykkt árið 2005 en fellt úr gildi í sumar af úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála þar sem ekki var rétt staðið að kynningu þess. Gefin höfðu verið út nokkur bygging- arleyfi á grundvelli þessa gallaða skipulags og hús reist. Úrskurðarnefndin felldi tvö byggingarleyfi úr gildi eftir kæru frá eigendum eins af eldri bústöðun- um í Kiðjabergi. Sá erfiði hnútur er í málinu að ef mannvirki hafa verið reist í trássi við skipulag má ekki breyta skipulagi til samræmis við mannvirkin nema fjarlægja þau fyrst. Samkvæmt ógilda skipulaginu frá 2005 var hámarksstærð húsa í Kiðjabergi 250 fermetrar og hámarkshæð 5,5 metrar. Í skipulaginu sem nú er auglýst segir hins vegar að hús geti orðið allt að 350 fermetrar og sex metrar að hæð. Núgildandi skipulag frá 1990 takmarkar stærð húsa við 60 fermetra. Mörg hús stærri en það hafa verið reist í Kiðjabergi. Óleystur hnútur í sumarparadís Borgartúni 29 + Höfðabakka 3 Smiðjuvegi 5 + Glerárgötu 34 Sími 515 5100 + www.a4.is F í t o n / S Í A F I 0 2 3 2 5 5 Borðyddari. Yddar tvær stærðir af blýöntum, 8 og 12 mm. 36% AFSLÁTTUR 35% AFSLÁTTUR 37% AFSLÁTTUR 1.699 kr.Verð áður 2.699 kr. Heftari. Heftir allt að 12 blöð í einu. Ýmsir litir. Pakki með 1.000 heftum fylgir. 299 kr.Verð áður 469 kr. Gatari. Vandaður gatari sem gatar allt að 25 blöð í einu. 779 kr.Verð áður 1.199 kr. Snyrta að framan? Festa í hliðunum eða má kannski bjóða þér göt?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.