Fréttablaðið - 04.10.2007, Síða 22
nám, fróðleikur og vísindi
Fjölmenningarlega kennslufræðin nýtist vel
Stúdentaráð Háskóla Íslands (HÍ)
stendur fyrir jafnréttisviku sem
hófst á þriðjudag og lýkur á morg-
un. Markmiðið með vikunni er að
vekja athygli á því hversu margir
ólíkir hópar með ólíka hagsmuni
þrífast innan háskólasamfélags-
ins, segir Elín Ósk Helgadóttir
jafnréttisfulltrúi.
„Við höfum áður haldið þema-
vikur, en þetta er fyrsta vikan sem
við höldum með þessu sniði,“ segir
hún. „Það hefur enn ekki verið
ákveðið hvort jafnréttisvikan
verður árlegur viðburður, en það
væri mjög ánægjulegt.“
Meðal viðburða eru kynningar
hagsmunafélaga innan HÍ, aðal-
fundur Femínistafélags HÍ og
matreiðslunámskeið þar sem
erlendir nemar við skólann kenna
matreiðslu frá sínu heimalandi.
Auk þess verða fyrirlestrar um
reynslu og aðgengi fatlaðra nem-
enda í HÍ, nýbúa í skólakerfinu,
geðheilbrigði og ýmislegt fleira.
Háskólanemar fá afslátt á valdar
sýningar á Alþjóðlega kvikmynda-
hátíð í Reykjavík vegna vikunnar.
„Það hefur verið ágætis mæting
á fyrirlestrana hingað til, og miða-
salan á kvikmyndasýningarnar
hefur gengið vel eftir því sem ég
best veit,“ segir Elín. „Svo lýkur
vikunni með rosalegu partíi á
Barnum á föstudagskvöld.“
Vekja athygli á ólíkum hópum
„Námið er nýmæli í
menntunarmálum fólks
með þroskahömlun og
stórt skref í réttindabar-
áttu þeirra,“ segir Vilborg
Jóhannsdóttir, forstöðu-
maður þroskaþjálfabrautar
Kennaraháskóla Íslands, en
þar er nýhafið starfstengt
diplómanám fyrir fólk með
þroskahömlun á þroska-
þjálfa- og tómstundabraut.
Ísland er fyrsta landið á Norður-
löndum til að bjóða upp starfs-
tengt diplómanám. Fram til þessa
hafa nemendur með þroskahöml-
un átt kost á framhaldsskólanámi
en engu starfsnámi eða samfelldu
háskólanámi og möguleikar þeirra
því verið fremur takmarkaðir til
áframhaldandi menntunar fram
til þessa.
Námið er samstarfsverkefni
Kennaraháskólans, Þroskahjálpar
og Fjölmenntar, símenntunar-
stöðvar fatlaðra og er það rann-
sóknartengt þróunarverkefni til
tveggja ára en að þeim tíma liðn-
um verður metið hvort forsendur
eru til að halda því áfram.
Markmið þess er að veita fólki
með þroskahömlun möguleika til
fullgildrar samfélagsþátttöku í
afmörkuðum störfum, til að mynda
inni á frístundaheimilum, félags-
miðstöðvum og leikskólum. Námið
verður að hluta verklegt inni á
þeim vettvangi.
Alls eru 23 nemendur skráðir í
námið. Meðal þeirra er Skúli
Steinar Pétursson, tvítugur Garð-
bæingur, sem vinnur á dvalar- og
hjúkrunarheimili aldraðra með-
fram náminu. „Ég er mjög ánægð-
ur með að það skuli vera boðið upp
á þetta nám. Ég hefði samt viljað
hafa það meira en bara tvisvar í
viku frá eitt til fjögur. Mér finnst
þetta ekki alveg orðið alvörunám,
en það á ábyggilega eftir að breyt-
ast, þetta er nú nýbyrjað,“ segir
Skúli. Sjálfur lagði hann mikið af
mörkum til að vekja athygli fólks
á stöðu þroskahamlaðra nemenda
og hafði meðal annars skrifað
greinar í blöð um málefnið. Að
loknu námi segist Skúli vilja vera
sundþjálfari enda hefur hann
keppt í landsliði þjóðarinnar í
þeirri grein. „Ég veit að það vant-
ar mikið af þjálfurum og sjálfur
hef ég verið að leiðbeina yngri
sundmönnum,“ segir hann.
Vilborg og Guðrún V. Stefáns-
dóttir, lektor í fötlunarfræðum,
munu sjá um rannsóknartengingu
námsins og samstarf á alþjóða-
vísu. Lögð verði rík áhersla á að
diplóman muni hafa gildi á starfs-
vettvangi.
Áfangi í réttindabaráttu
fólks með þroskahömlun