Fréttablaðið - 04.10.2007, Side 25
Brú II Venture Capital Fund til-
kynnti í gær um sjö milljóna
Bandaríkjadala fjárfestingu í
sprotafyrirtækinu FS-10 ehf.,
útgerðarfélagi með höfuðstöðvar í
Reykjavík. Fjárfestingin jafngild-
ir 449 milljónum króna.
FS-10 var stofnað í þeim tilgangi
að nýta íslenska sérfræðiþekk-
ingu við útgerð stórra fiskiskipa á
hafinu undan Máritaníu. Stofnend-
ur fyrirtækisins hafa víðtæka
reynslu af sjávarútvegi. Brú verð-
ur stærsti fjárfestirinn í FS-10
eftir kaupin. „Það eru mikil tæki-
færi í lögsögu Máritaníu og við
norð-vesturströnd Afríku vegna
mikilla ónýttra fiskistofna á þessu
hafsvæði,“ segir Herdís Fjeldsted,
sérfræðingur hjá Brú II.
Meðal stærstu hluthafa Brúar
eru helstu lífeyrissjóðir landsins,
Tryggingamiðstöðin, Saxhóll, fjár-
festingarbankinn Straumur og
Nýsköpunarsjóður.
Veðja á Máritaníu
SPRON býður nýja gerð lána til
fyrirtækja sem eru í eigu kvenna
eða rekin af konum. Þau standa
einnig konum sem eru að hefja
rekstur til boða. Lánin eru veitt í
samstarfi við Þróunarbanka Evrópu
og Norræna fjárfestingarbankann.
Lánunun er ætlað að efla
nýsköpun í fyrirtækjum þar sem
konur er í lykilhlutverki að því er
fram kemur í tilkynningu. Þá eiga
þau að auðvelda konum í rekstri
aðgang að fjármagni.
SPRON hefur haft jafnréttismál í
forgrunni í rekstri sínum. Það var
meðal annars fyrsta fjármálafyrir-
tækið til að hljóta jafnréttisverð-
laun Jafnréttisráðs.
Beina lánum að
athafnakonum
Sala á nýjum fólksbílum dróst
almennt saman um þrjú prósent í
Bandaríkjunum í síðasta mánuði.
Samdrátturinn var mestur hjá
Ford en sala á nýjum bílum undir
merkjum fyrirtækisins var 21
prósenti minni í september miðað
við sama tíma í fyrra. Þetta er
langtum meira en markaðsaðilar
höfðu gert ráð fyrir.
Salan jókst einungis hjá
bandaríska bílaframleiðandanum
General Motors og japönsku
fyrirtækjunum Nissan og Honda.
Fjármálaskýrendur segja
óróleika á fjármálamörkuðum í
kjölfar þrenginga á bandarískum
fasteignamarkaði og almennt
verra aðgengi að fjármagni nú en
áður hafa valdið því að neytendur
hafi haldið að sér höndum í
mánuðinum. Þeir benda hins
vegar á að bílasala í september í
fyrra hafi verið óvenju góð og því
skekki það samanburðinn nú.
Samdráttur í
bílasölu í BNA
Bandaríski fjárfestingabankinn
Morgan Stanley greindi frá því í
gær að hann ætli að segja upp allt
að 600 manns í hagræðingarskyni
vegna vandræða sem bankinn
hefur lent í á fasteignalánasviði
bankans vestanhafs. Fimm hundr-
uð manns verður sagt upp í
Bandaríkjunum en hundrað í Evr-
ópu. Keppinautar bankans, svo
sem Lehman Brothers, hafa grip-
ið til svipaðra ráðstafana vegna
samdráttar á bandarískum fast-
eignalánamarkaði.
Mikil vanskilaaukning á svo-
kölluðum undirmálslánamarkaði
í Bandaríkjunum sem einbeitir
sér að húsnæðislánaveitingum til
einstaklinga með litla greiðslu-
getu, hefur valdið skelli hjá
mörgum fjármálafyrirtækjum
víða um heim, svo sem hjá Morg-
an Stanley og Lehman Brothers,
sem hefur ákveðið að segja upp
allt að 2.500 manns í hagræðing-
arskyni og gera breytingar á
stjórnendateymi sínu.
Gera má ráð fyrir enn fleiri
uppsögnum í fjármálahverfinu
við Wall Street í New York í
Bandaríkjunum af þessu sökum,
að sögn viðskiptablaðsins Financ-
ial Times.
Uppsagnir hjá Morgan Stanley
Gengi breska fasteignalánafyrir-
tækisins Northern Rock rauk upp
um 10 prósent, í 151,8 pens á hlut, í
gær í kjölfar þess að bandaríska
fjárfestingafélagið JC Flowers
tryggði sér 15 milljarða punda,
jafnvirði 1.900 milljarða íslenskra
króna, fjármögnun til að yfirtaka
rekstur fyrirtækisins. Ekkert ligg-
ur fyrir um hugsanlegt kaupverð.
Gengi Northern Rock hefur hríð-
fallið frá því stjórnendur fyrirtæk-
isins greindu frá því fyrir nokkr-
um vikum að þeir hefðu tryggt sér
vilyrði fyrir neyðarláni frá Eng-
landsbanka sökum lausafjárþurrð-
ar og fór lægst í 132 pens á hlut.
Þetta olli taugatitringi í röðum
sparifjáreigenda sem mættu í hin
ýmsu útibú fyrirtækisins og tóku
út jafnvirði hundruð milljarða
króna af reikningum sínum.
Gengi Northern
Rock hækkar