Fréttablaðið - 04.10.2007, Blaðsíða 29
Kynning á nýju línunni
í okkar Showroom
Fyrir nokkrum árum þótti ekki fínt að ganga í fötum frá ódýrum
búðum eins og Zöru, Gap og fleirum í svipuðum dúr. Á einu augna-
bliki breyttist þessi hugsun og aðalmálið varð að blanda saman
merkjavörum og öðrum. „Lúkkið“ gjarnan bætt með fínu Gucci-
belti, skóm frá YSL eða Prada-tösku. Nú er svo komið að fylgihlut-
irnir hjá ódýrari búðunum eru svo vel gerðir að varla sést hvaðan
þeir koma. Tvílitu herraskórnir frá Zöru í „tie-dye“ stíl Prada eru
gott dæmi um þetta, varla hægt að sjá mun á frummyndinni og eftir-
líkingunum. Auðvitað er meira gaman að eiga J-12 úr frá Chanel
sem kostar frá 3.000 upp í 150.000 evrur, frekar en gervilegar eftir-
líkingar af keramíkarmbandinu vinsæla en buddan leyfir það
kannski ekki hjá öllum, að minnsta kosti ef rétt er að íslensk heimili
skulda 108 milljarða erlendis samkvæmt nýlegum tölum.
Fyrir sumarið 2006 voru ballerínuskórnir góðu fréttirnar í tískunni,
svo einstaklega þægilegir fyrir allar konur. En það er ekki alltaf
hægt að segja góðar fréttir og fyrir þennan vetur eru vondu frétt-
irnar þær að nú eru það hælarnir sem gilda, því hærri, því betri.
Jafnvel upp í 10-12 cm fyrir þær sem vilja vera vissar um að vera í
tísku. Hælarnir eru þó enn nokkuð þykkir og því stöðugir. Skór eru
sömuleiðis oft háir að framan sem gerir hæðina þægilegri og fylltir
hælar sem hafa sömu kosti eru enn í tísku. Richelieux er önnur skó-
tegund ómissandi í vetur (Minelli, Morgan, Repetto) uppreimaðir
að framan, með háum hæl og mynstri í leðrinu.
Stundum skýtur upp kollinum nýjung í tískunni eins og til að krydda
hana en verður svo margfalt meira áberandi árið á eftir. Kannski
vegna þess að þeir sem að taka upp eftir stóru hönnuðunum eru allt-
af dáltítið á eftir eða þá að almenningur er lengi að taka við sér.
Þetta á við um lakkskóna (annað hvort úr vínyl eða lökkuðu leðri)
bæði í dömu- og herratísku sem sáust í fyrravetur. Þeir eru nú alls-
ráðandi nánast hjá öllum hönnuðum, stórum sem smáum. Til dæmis
eru hinir frægu íþróttaskór Prada í lökkuðu leðri
þennan veturinn. Lakkað leður er einnig mikið
notað í beltum og nú jafnt í herra- sem dömu-
tísku. Ekki má heldur gleyma töskunum. Marg-
ir ætla sér að „surfa“ á velgengi „Coco´s-
cabas“, stóru svörtu vínyl-töskunni frá
Chanel. Hún gerði konur frávita síðast-
liðinn vetur því allar vildu eiga eina
slíka en lítið var til. Sama má segja
um slönguskinn sem er áberandi í
skóm og töskum í vetur, hvort
sem er ekta slönguskinn eða
slönguskinnsáferð.
Krókódíls-
skinn er
enn betra
en hleyp-
ir auðvit-
að verð-
inu upp.
Breytingar hafa verið gerðar á verslunum Blend
og vöruúrval aukið.
Unnið hefur verið að því að stækka verslanir Blend
í Kringlunni og Smáralind ásamt því að auka vöru-
úrval með tilkomu nýrra vöurmerkja, þar á meðal
Psycho Cowboy og 4YOU.
Breytingarnar eru tilkomnar vegna kaupa Blend-
samsteypunnar í Danmörku á 4YOU, en í kjölfar
þeirra verður opnuð sérdeild með 4YOU herrafatn-
að í búðum Blend.
Psycho Cowboy-fatnaður verður að auki áberandi
í búðunum. Hann naut óhemju vinsælda um miðjan
síðasta tíunda áratug, áður en hann hvarf úr búðar-
hillum og hefur ekki sést um langt skeið.
Auk Psycho Cowboy og 4YOU mun Blend bjóða
upp á vörumerkin Blend og BlendShe en tilgangur-
inn með þessari aukningu er að bjóða upp á fjöl-
breyttari fatnað, fínni fatnað jafnt sem hversdags-
klæðnað.
Ýmis tilboð munu gilda fyrstu dagana eftir opnun.
Klikkaði kúrekinn aftur á stjá
COMB &CARE
Fæst í apótekum um land allt.
Sjampó og næring til varnar flóka
• Mild formúla sem svíður ekki undan.
• Sterkt flókavarnarefni fyrir sítt hár.
• Hárið verður hreint, mjúkt
og viðráðanlegt.
• Endingargóður ilmur.
Flókasprey
og flókahárkrem
• Verndar raka hársins
með B5 vítamíni.
• Fjarlægir flóka, auðveldar greiðslu
og verndar hreinlæti hársins.
• Endingargóður ilmur.
Auðvelt í notkun – frábær árangur
(Lúsaforvörn) Lúsin helst síður í vel hirtu hári. Inniheldur rósmarín sem fælir lúsina frá.