Fréttablaðið - 04.10.2007, Page 42

Fréttablaðið - 04.10.2007, Page 42
Það er ótrúlegt að heyra um ósvífnina sem við Íslendingar sýnum inn- flytjendum í afgreiðslu- störfum bara af því að þeir tala litla íslensku. Ég er hjartanlega sam- mála því að það er bæði pirrandi og fáranlegt að eiga samskipti við þjón- ustuaðila sem ekki tala móðurmál landsmanna. Staðreyndin er hins vegar að sú ákvörðun liggur hjá eig- endum fyrirtækjanna og því varla við afgreiðslufólkið að sakast. Eigendurnir sverja af sér allar sakir og segjast ekki hafa um annað að velja en að ráða illskiljanlega útlendinga, þar sem velmegunin og atvinnuframboðið sé slíkt að inn- fæddir fúlsi við störfunum. En er ekki verið að gleyma ein- hverju? Til dæmis lélegu þjónust- unni sem hefur viðgengist á Íslandi um árabil, löngu áður en einhverj- ir sænskir eða rússneskir afgreiðslumenn ypptu öxlum skil- ingsvana úti í búð. Þá heyrðist hvorki talað um lélega þjónustu né velmegun, enda síðara orðið nán- ast óþekkt í íslensku máli. Í þá daga létu innfæddir sér lynda að vinna á lúsarlaunum enda atvinnuframboð minna en nú. Eig- endur þjónustufyrirtækja lifðu í þeirri blekkingu að svo yrði um ókomna tíð, meira að segja löngu eftir að framboðið jókst og fullorðið fólk hvarf til annarra og betur launaðra starfa. Afleiðingarnar urðu þær að við sátum uppi með unglinga og stund- um óaldarlýð sem hefur í verstu tilfellum engan áhuga á starfinu sem inna á af hendi. Það vill nefni- lega svo til að ekkert jöfnumerki er á milli íslenskugetu og þjónustu- lundar. Nei, er þá ekki betra að eiga samskipti við einhvern sem vill fyrir alla muni aðstoða mann, þótt íslenskukunnátta viðkomandi sé kannski ekki með besta móti? Það er mikið rætt um að senda blessaða innflytjendurna á íslenskunámskeið til að bæta ástandið. Ég ætla rétt að vona að við reynum að læra eitthvað af þeim í leiðinni. Til dæmis eins og í hverju þjónusta er raunverulega fólgin. – ódýrari valkostur Okkur vantar hlaupara! Pósthúsið leitar að kraftmiklu fólki til starfa sem hlauparar. Í boði eru góð laun fyrir duglegt fólk, hressandi útivera og sveigjanlegur vinnutími. Hlauparar eru þeir aðilar sem taka að sér íhlaupavinnu hjá Pósthúsinu og vinna við dreifingu Fréttablaðsins ásamt fylgiritum. Vinnan fer fram í breytilegum hverfum á höfuðborgasvæðinu milli kl. 2 og 9. Hlauparar þurfa að vera orðnir 18 ára og hafa bíl til umráða. Allar nánari upplýsingar veitir dreifingardeild Pósthússins í síma 585 8330. Einnig er hægt að sækja um á www.posthusid.is. Pósthúsið ehf | Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 585 8300 | posthusid.is Pósthúsið er ungt og öflugt dreifingarfyrirtæki á sviði blaða- og vörudreifingar. Hjá Pósthúsinu starfa um sjöhundruð manns að uppbyggingu á fjölbreyttum og skemmtilegum vettvangi. H im in n o g h af / S ÍA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.