Fréttablaðið - 04.10.2007, Síða 55

Fréttablaðið - 04.10.2007, Síða 55
Ian Curtis er ein af rómantísku hetjum rokksins, þekktur fyrir að semja lög eins og Love Will Tear Us Apart, flogaveiki sína og að fremja sjálfsmorð aðeins 23 ára gamall. Hann hefur haft mikil áhrif á hljóm- sveitir sem hafa komið síðan, svo sem U2 og ekki síður hina íslensku Þeysara. Því er í raun léttir að sjá hversu lítið rómantísk kvikmyndin er sem Anton Corbijn gerir um hann. Fátt er hryllilegra en að ganga í breskan almenningsskóla, eins og gagnrýnandi getur vottað um og fyrsti hluti myndarinnar kemur til skila. Curtis týnir sér í drauma- heimi með fyrirmyndir eins og David Bowie og William Words- worth, og þegar pönkbylgjan ríður yfir stofnar hann hljómsveit sem slær fljótlega í gegn. Í millitíðinni hefur hann hins vegar gert þau reginmistök að kvænast og eignast barn. Þegar svo óhjákvæmilega kemur að því að aðrar konur fara að sýna honum áhuga getur hann hvorki hafnað þeim né sagt skilið við frúna, togstreita sem í bland við flogaveikina tærir hann upp. Það er því áhugavert að bera Control saman við ævisögu Johnny Cash í Walk the Line, þar sem Cash er orð- inn margra barna faðir þegar frægðin bankar upp á, en yfirgefur loks eiginkonu sína fyrir hina meira spennandi June Carter. Cash virðist þrátt fyrir allt hafa tekið rétta ákvörðun, June hjálpaði honum að komast yfir eiturlyfjafíknina og hann hélt góðu sambandi við börn sín til æviloka. Óákveðni Curtis endar hins vegar á versta veg og að einhverju leyti er erfitt að hafa samúð með manni sem stendur á barmi þess að sigra Bandaríkin og þarf að velja á milli tveggja kvenna sem elska hann. Hvers vegna hann hengdi sig er enn umdeilt, en hér er áherslan lögð á ástarsamböndin. Og líklega er fallegasta atriði myndarinnar þegar hann segir konu sinni að hann elski hana ekki lengur og lagið Love Will Tear Us Apart byrjar að óma. Það er ef til vill lýsandi fyrir pönkárin hversu lítið er hér um glamúr, þrátt fyrir frægðina eru hér engar límúsínur eða kókaínpartí. Curtis vinnur lengi vel á atvinnu- miðlun, er síblankur og í bakgrunn- inum eru alltaf hin ömurlegu bresku múrsteinshús. Myndin er einnig tekin í svarthvítu til að leggja áherslu á hversdagsleikann og þung- lyndið, og er það viðeigandi. Control tekst kannski ekki alveg að ráða í ráðgátuna um Ian Curtis, en hún skipar sér strax í flokk með bestu kvikmyndum sem gerðar hafa verið um tónlistarmenn. Sá á kvölina sem á völina Tónlistarmaðurinn Prince hefur verið valinn vanmetnasti gítarleikari allra tíma af tímarit- inu Rolling Stone. Í öðru sæti varð Kurt Cobain, fyrrum forsprakki Nirvana. Lesendur voru beðnir um að kjósa gítarleikara sem komust ekki á lista tímaritsins yfir hundr- að bestu gítarleikara allra tíma sem hafði verið birtur í tímarit- inu. Í næstu sætum á eftir komu Neil Young, Bítillinn George Harrison og Ace Frehley úr Kiss. Vanmetinn gítarleikari Forget About Me, nýjasta smáskífulag Brynjars Más Valdimarssonar, eða BMV, er í nítjánda sæti á stærstu og vinsælustu útvarpsstöðinni í Makedóníu, 106,6 FM. Lagið fór í heimsdreifingu fyrir nokkrum vikum og er nú komið á topp tuttugu í Makedóníu. Þar er lagið einnig í A-spilun og því á meðal mest spiluðu laga stöðvar- innar. Á meðal fleiri flytjenda sem fóru nýir inn á vinsældalist- ann eru Madonna, Pharrel Williams, Babyshambles og Gabrielle. Síðasta smáskífulag Brynjars, In My Place, fór á toppinn í Grikklandi fyrir skömmu en situr nú í níunda sæti. Nítjándi í Makedóníu Trúbadorahátíð Íslands verður haldin á Austur- landi sjötta árið í röð um helgina. Á meðal þeirra sem koma fram á þrennum tónleik- um í Mjóafirði og í Neskaupstað eru Halli Reynis, Guðmundur Jónsson, Magnús Þór, Einar Ágúst og Guðmundur R. Gíslason, sem er einnig skipuleggj- andi hátíðarinnar. „Þetta hefur gengið mjög vel. Það má segja að allflestir trúbadorar sem eru þekktir og hafa komið fram á Íslandi hafi stigið á svið þarna,“ segir Guðmundur. „Þessi hátíð er orðin fastur liður í skemmtanalífi Austfirðinga enda er hún sú eina sinnar tegundar á landinu. Síðan auglýsum við alltaf eftir ungum og efnilegum trúbadorum, þannig að það eru fleiri sem koma þarna fram en hafa verið auglýstir.“ Guðmundur, sem er forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð og söngvari Súellen, kemur í fyrsta sinn fram á hátíðinni. Syngur hann lög af sinni fyrstu sólóplötu, Íslensk tónlist. „Maður er búinn að standa fyrir þessu öll þessi ár en aldrei komið fram þannig að ég hlakka rosalega til.“ Ungir og efnilegir trúbadorar sem vilja taka þátt þurfa að senda póst á bgbros@simnet.is til að skrá þátttöku eða hringja í síma 899-2321. Fastur liður í skemmtanalífinu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.