Fréttablaðið - 04.10.2007, Page 58
VERTU VIRKUR STUÐNINGSMAÐUR STRÁKANNA OKKAR
Í ÍSLENSKA LANDSLIÐINU Í HANDKNATTLEIK
VIÐ STYÐJUM HANDBOLTALANDSLIÐIÐ
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
93
69
1
0/
07
Hvatning og stuðningur eru mikils virði þegar menn heyja harða keppni
á alþjóðavettvangi. Icelandair og Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn taka nú höndum
saman og bjóða handboltaáhugamönnum einstakt ferðatilboð
í beinu flugi til Þrándheims í Noregi á EM 2008.
Tryggðu þér strax sæti! Hvetjum strákana til dáða á EM 2008!
ÁFRAM ÍSLAND, ALLTAF!
* Innifalið: Flug, skattar, gisting í 4 nætur með morgunverði,
flugvallarakstur erlendis og miðar á alla leiki íslenska liðsins í riðli eða milliriðli.
FLJÚGÐU Á EM Í HANDBOLTA 2008
BEINT FLUG TIL ÞRÁNDHEIMS
94.500*KR.
Á MANN Í TVÍBÝLI
RIÐLAKEPPNIN 17.–21. JANÚAR
EÐA MILLIRIÐLAR 21.–25. JANÚAR
+ Nánari upplýsingar og bókanir
á www.uu.is/ithrottir eða í síma 585 4000
Meistaradeild Evrópu:
Þýski handboltinn:
Eins og fram kemur á
fyrri íþróttasíðunni náðist ekki í
stjórnarmenn Fram vegna
þjálfaramála félagsins í gær en
Fréttablaðið hafði heimildir fyrir
því að ekki væri einhugur um að
halda Ólafi Þórðarsyni í starfi.
Sjálfur sagðist Ólafur hafa
fullan hug á því að þjálfa Fram
áfram. Seint í gærkvöldi, og eftir
að fyrri íþróttasíðan var farin í
prentun, kom tilkynning frá Fram
að leiðir Ólafs og Fram hafi
skilið.
Samkvæmt tilkynningunni þá
vildi Fram ráða þjálfara sem
kæmi að starfi félagsins á víðari
grunni en Ólafur hefði ekki getað
það sökum anna í öðrum störfum.
Þess vegna hafi leiðir skilið.
Ólafur hættur
Það var mikið fjör í leikj-
um Meistaradeildarinnar í gær-
kvöld og óvenju mikið um óvænt
úrslit. Upp úr stendur ótrúlegur
sigur Celtic á Evrópumeisturum
AC Milan og tap Liverpool á
heimavelli gegn Marseille kom
einnig á óvart. Chelsea minnti
aftur á sig með verulega góðum
útisigri gegn Valencia.
Sigur Celtic var dramatískur en
það var Scott McDonald sem skor-
aði markið undir lok leiksins.
„Þetta var frábært kvöld. Okkar
leikmenn unnu leikinn en ekki á
þann hátt sem þeir hefðu helst
kosið enda vorum við að spila við
Evrópumeistarana. Mínir menn
urðu að verjast meir en venjulega
og þegar varnarhlutinn var kom-
inn í lag þá var möguleiki á ýmsu.
Ég tel að þessir leikmenn eigi
mikið hrós skilið,“ sagði Gordon
Strachan, stjóri Celtic, en hann
fagnaði sigurmarkinu hreint ógur-
lega og óttuðust menn að hann
myndi hlaupa hringinn í kringum
völlinn.
„Scott McDonald var að spila
gegn tveim frábærum miðvörðum
og gerði það vel. Hélt boltanum
frábærlega og skilaði honum líka
vel af sér. Frammistaða hans og
annarra leikmanna var mögnuð,“
sagði Strachan.
Stuðningsmenn Liverpool voru
ekki kátir eftir tap gegn Marseille
en mesti móðurinn virðist vera
runninn af Liverpool sem hóf
tímabilið með látum. Sigurmarkið
var glæsilegt en kom eftir mistök
Sissoko sem tapaði boltanum illa.
„Þetta tap hafði ekkert með
skiptikerfi mitt að gera. Það var
fullt af stórum nöfnum á vellinum
í kvöld. Þeir sem spiluðu voru
samt ekki nógu góðir í kvöld,“
sagði Rafael Benitez, stjóri Liver-
pool. „Við gáfum boltann auðveld-
lega frá okkur og bjuggum ekki til
mörg færi. Marseille á samt hrós
skilið fyrir að spila vel. Ég reyndi
að breyta liðinu og hrista upp í
hlutunum en án árangurs. Þetta
eru vonbrigði.“
Chelsea kom á óvart með því að
sigra Valencia á Spáni og liðið reis
loks úr öskustónni eftir dapurt
gengi frá því Mourinho hætti.
„Það var fínn andi í liðinu í kvöld
og vonandi er þetta það sem koma
skal,“ sagði John Terry, fyrirliði
Chelsea.
Skosku liðin hafa minnt rækilega á sig í Meistaradeildinni. Á þriðjudag lagði
Rangers lið Lyon og í gær gerði Celtic sér lítið fyrir og skellti Evrópumeisturum
AC Milan. Liverpool lá heima gegn Marseille og Chelsea reis úr öskustónni.
Fram vann Stjörnuna
31-28 í toppleik N-1 deildar karla í
handbolta í gærkvöld. Leikurinn
var mjög hraður í byrjun, en mark-
menn liðanna, Hlynur Morthens
hjá Stjörnunni og Björgvin Páll
Gústavsson hjá Fram, vörðu vel
og sáu til þess að markaskorun
færi ekki upp úr öllu valdi og stað-
an var jöfn 13-13 í hálfleik.
Í seinni hálfleik var það Fram
sem náði smátt og smátt tökum á
leiknum og seig fram úr og náði á
endanum góðum sigri 31-28 og er
því komið á toppinn í deildinni.
Hjá Fram fór Jóhann Gunnar Ein-
arsson mikinn og skoraði 10 mörk
auk þess sem Björgvin varði vel í
markinu og tók 25 skot.
,,Ég er að spila mjög vel og það
er sama gamla klisjan að vörnin er
að hjálpa mér mikið,” sagði Björg-
vin Páll sem telur að Fram eigi
fínan möguleika á titlinum í ár.
,,Okkur var spáð 5. sæti og það var
gott fyrir okkur, en markmiðið er
að taka titilinn það er engin spurn-
ing,” sagði Björgvin hress í leiks-
lok.
Stjarnan sökk í Mýrinni
N1-deild karla:
N1-deild kvenna: