Fréttablaðið - 06.10.2007, Side 1
HÖNNUN
Mublur með mynsturHEIMILIÐ
Vatn róar hugannINNLIT
Hlýlegt heimili með sál
hús&heimiliLAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2007
Gæða sængur og heilsukoddar
Landssöfnun Kiwanis
4.-7. október 2007
Lykill að lífi
„Mig langar að gera íslensku óperuna að meira
spennandi leikhúsi en hún hefur oft verið.“
Hinn kunni breski
leikstjóri Peter Greenaway kemur
til landsins í dag og tekur á móti
heiðursverðlaunum Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðarinnar í Reykja-
vík. Greenaway heldur fyrirlestur
og svarar spurningum í dag kl.
17.30 í stofu 101 í Odda í Háskóla
Íslands. Tekur hann til umfjöllun-
ar verk sitt „The Tulse Luper
Suitcases“ sem hann hefur unnið
síðastliðin ár og sýnir brot úr
nýjasta verki sínu, Nætur-
vörðunum, sem byggir á einu
frægasta málverki Rembrandts.
Greenaway staldrar stutt við og
verður hér aðeins dagpart. Hann
þáði boð sitt seint og sagðist
líklega munu verða kominn undir
græna torfu að ári svo að best
væri að mæta. -
Greenaway
heiðraður í dag
Yfir hundrað
umsóknir bárust um starf dag-
skrárkynnis hjá Sjónvarpinu en
umsóknarfrestur rann út á
fimmtudag. „Þetta voru nákvæm-
lega 103 umsóknir,“ segir Jónína
Lýðsdóttir fulltrúi útvarpsstjóra.
„Þar af eru 18 umsækjendur
karlmenn.“ Jónína segir óljóst
hversu margir verði ráðnir. Hún er
ekki hissa á hversu margir sýndu
starfinu áhuga enda hafi það verið
vinsælt í gegnum tíðina.
Margar íslenskar konur hafa
stigið sín fyrstu skref í sjónvarpi
sem þulur, til dæmis Sigríður
Arnardóttir og Ellý Ármannsdóttir.
-
103 sóttu um
„Það er ekki gott að vera
á gangi eða á hjóli í myrkri og fá
grein í andlitið,“ segir Sigurður
Geirsson, yfirverkefnisstjóri hjá
framkvæmdasviði Reykjavíkur-
borgar.
Starfsmenn borgarinnar hafa að
undanförnu leitað uppi trjágreinar
sem ná of langt út fyrir garða og
kunna að vera vegfarendum hættu-
legar og borgarstarfsmönnum til
ama. „Það sem af er þessu ári
höfum við gert athugasemdir á
1.718 stöðum í borginni og beðið
um að greinar verði sagaðar og
klipptar. Það er mun meira en í
fyrra,“ segir Sigurður en hann
telur að veðurblíðan í sumar hafi
orðið til þess að gróður óx meira
en venja er.
Helstu ástæðuna fyrir þessum
fyrirskipunum segir hann vera að
borgarstarfsmenn vilji ekki eiga á
hættu að skemma vélar og tæki
þegar götur og gangstéttar eru
þrifin.
Sigurður segist ekki vita til þess
að nokkur hafi orðið óánægður
með athugasemdirnar. „Alls ekki,
ég hef fengið um hundrað símtöl í
þessari viku og eftir að maður
hefur útskýrt ástæðurnar fyrir
fólki er það sátt.“
„Auðvitað hefði verið
lítið mál fyrir Orkuveituna að sleppa
þessu algjörlega og leyfa okkur
hinum að dansa frjálsum, en þá er
líka ljóst að minna hefði setið eftir,“
segir Hannes Smárason, forstjóri
FL Group og fyrrum stjórnar-
formaður Geysis Green Energy, um
sameiningu GGE og Reikjavik
Energy Invest.
„Þessum mönnum [Hannesi
Smárasyni og Bjarna Ármannssyni]
hafa verið gefnir peningar, rann-
sóknarupplýsingar, sérfræðiþekk-
ing og allt annað sem OR hafði á sínu
borði,“ segir Svandís Svavarsdóttir,
borgarfulltrúi Vinstri grænna. Hún
segir augljóst að fulltrúar einkageir-
ans stýri atburðarásinni við samein-
inguna.
Tekist var á um sameininguna og
aðdragandann að henni innan borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins
í gær, og funduðu borgarfulltrúar
flokksins með formanni hans og
varaformanni í gærmorgun.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sagði að á fundinum hefði verið
rætt um ýmis mál, þar á meðal sam-
einingu REI og GGE. Hún sagði að
engin eftirmál yrðu af fundinum.
Þegar hefur verið ákveðið að
Bjarni Ármannsson verði stjórnar-
formaður REI. Auk þess verða í
stjórninni einn fulltrúi FL Group
og einn frá Atorku. Orkuveita
Reykjavíkur fær tvo fulltrúa í
stjórn, og verða þeir því í minni-
hluta í stjórn fyrirtækisins.
„Það hvílir skylda á okkur
borgarfulltrúum að gæta jafnræðis
í störfum og þess vegna er það
ótækt að sumum starfsmönnum sé
boðið að kaupa hlut í REI á kjörum
sem bjóðast ekki öllum,“ sagði
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um
rétt starfsmanna til að kaupa í sam-
einuðu fyrirtæki.
Orkuveitan hagnast
Forstjóri FL Group segir hagnað Orkuveitunnar í útrás aukast með samstarfi við
fjárfesta. Stjórnarformönnum REI og GGE gefnir peningar, segir fulltrúi VG.
Ótækt að sumum bjóðist að kaupa en ekki öllum, segir fulltrúi Sjálfstæðisflokks.