Fréttablaðið - 06.10.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.10.2007, Blaðsíða 2
Páll, er andrúmsloftið raf- magnað vegna þessara frétta? Þrír karlmenn og ein kona hafa verið dæmd fyrir að stela tæplega 300 áfengisflöskum og talsvert af bjór í vörumiðstöð Samskipa. Dómurinn sýknaði fimmta manninn, tollvörð, sem ákærður var í málinu. Brotin áttu sér stað á tímabilinu 2002-2005. Fólkið sem um ræðir starfaði í Vörumiðstöðinni. Lögreglu höfðu borist upplýs- ingar um að starfsmenn þar tækju ófrjálsri hendi áfengi sem flytja ætti í eyðingu hjá Sorpu. Þegar farið var að rannsaka málið urðu lögreglumenn vitni að því að áfengi var borið úr vörugeymslunni og út í bíl, sem síðan var ekið að húsi í Hafnarfirði. Við frekari rannsókn málsins reyndust fjórir starfsmenn hafa tekið verulegt magn af áfengi sem hafði átt að farga, hver um sig þó mismunandi mikið. Fólkið játaði á sig verknað- inn, en neitaði að um þjófnað væri að ræða. Áfengið sem það tók hafi hvorki verið háð eignarrétti né í því falist verðmæti, þar sem búið hefði verið að ákveða af eiganda þess og vörsluhafa að flytja það til förgunar í Sorpu. Tveir mannanna voru dæmdir í fjögurra mánaða fangelsi, en sá þriðji og konan í tveggja mánaða fangelsi. Refsing allra var skilorðs- bundin. Stálu nær 300 áfengisflöskum • Einfaldari skilmálar • Hærri bætur • Lægri eigin áhætta VÍÐTÆKASTA FJÖLSKYLDUTRYGGINGIN Komum á slysadeild Landspítalans vegna ofbeldisáverka hefur fjölgað um 20 prósent á tveimur árum. Á tíu ára tímabili hafa 13.400 einstakl- ingar leitað ásjár vegna slíkra áverka og er fjölgunin 35 prósent á þeim tíma. Áverkar eru oft alvarlegir og um tíu prósent þeirra sem kemur á slysadeild eru lagðir inn á sjúkrahús til frekari aðhlynningar. 543 tilfelli ofbeldis gegn börnum og unglingum voru tilkynnt á fimm ára tímabili. Ófeigur T. Þorgeirsson, yfirlæknir á slysadeild, hélt erindi á afmælisráðstefnu SÁÁ í vikunni þar sem hann fjallaði um ofbeldi í samhengi við áfengis- og vímuefnaneyslu. Í erindi hans kom fram að ungt fólk á í hlut í langflestum tilfellum og eru karlmenn á aldrinum 15 til 24 þolendur í yfir 70 prósentum tilfella. Eins og komið hefur fram í umræðunni þá koma margir á Landspítalann til aðhlynningar vegna ofbeldis á skemmti- og útivistarsvæðum en 33 prósent ofbeldisáverka tengdust slíkum svæðum á árunum 1999 til 2004. Miðbær Reykjavíkur hefur þar sérstak- lega verið í brennidepli. „Á árunum 1999 til 2004 sýna mínar tölur að í 3110 skipti þekkti fórnarlambið ekki ofbeldismann sinn. Það þýðir að árásin var tilefnislaus með öllu, kannski orðaskipti hafi valdið því að árásin var gerð,“ segir Ófeigur. Aðspurður um hvort ofbeldisáverkarnir séu svo alvarlegir að það valdi þolendum varanlegu heilsutjóni segir Ófeigur að líkamlega jafni þolendur sig oftast. „Þessir einstakl- ingar ná oftast fyrri heilsu. Það er að segja líkamlega. Það eru örin á sálinni sem ekki sjást sem eru mun alvarlegri.“ Ófeigur telur að einn af hverjum tíu sem koma til aðhlynningar á slysadeild vegna ofbeldis- áverka þurfi að leggjast inn á sjúkrahús. Það er stefna Landspítalans að tilkynna til barna- verndaryfirvalda þegar alvarleg tilfelli ofbeldis koma upp sem varða börn og unglinga. „Allt sem heitir ofbeldi, áfengi og eiturlyf í tengslum við börn tilkynnum við,“ segir Ófeigur. Í tölum Landspítalans má sjá að tilkynningarnar voru 543 frá 2001 til 2005. Ófeigur segir sjaldgæft að sjá gróft líkamlegt ofbeldi gegn ungum börnum. „Það er frekar að unglingar verði fyrir líkamlegu ofbeldi foreldra sinna. En við lítum einnig á vanrækslu, til dæmis í tengslum við vímuefnaneyslu, sem ofbeldi. Birtingarmyndir ofbeldis eru svo auðvitað óteljandi margar, eins og einelti sem víða viðgengst.“ Fórnarlömbum of- beldis fjölgar sífellt Komum á slysadeild Landspítalans vegna ofbeldisáverka hefur fjölgað um 35 prósent síðan 1998. 13.400 einstaklingar hafa leitað þangað vegna ofbeldis- áverka á tíu árum. 543 ofbeldistilfelli gegn börnum tilkynnt á fimm árum. Rúmlega sjötugur maður fannst meðvitundarlaus í Bláa lóninu í gærmorgun. Lífgunartilraunir hófust um leið og var hann kominn vel til meðvitundar þegar hann kom á bráða- og slysadeild í Fossvogi. Óskað var eftir aðstoð lögregl- unnar á Suðurnesjum um klukkan ellefu. Fimm mínútum síðar voru lögregla og sjúkralið frá Grinda- vík mætt á vettvang. Þremur korterum síðar var maðurinn kominn undir læknishendur á bráðadeild í Fossvogi. Maðurinn er 71 árs og er sænskur ríkis- borgari. Talið er að hann hafi fengið aðsvif. Endurlífgun í Bláa lóninu Til stendur að yfirfara regluverk íslensku stjórnsýslunn- ar til þess að einfalda samskipti almennings og fyrirtækja við hið opinbera, að því er fram kemur í tilkynningu frá forsætisráðuneyt- inu. Öll ráðuneytin hafa lagt fram áætlanir um aðgerðir. Meðal þess sem forsætisráðuneytið ætlar að gera er að setja reglugerð um notkun á þjóðfánanum þannig að leyfilegt verði að nota hann í viðskiptalegum tilgangi án þess að fánanum sé óvirðing gerð. Fjármálaráðuneytið ætlar meðal annars að hefja útbreiðslu rafrænna skilríkja á árinu og stefnir að almennri útbreiðslu þeirra fyrir árslok 2008. Dóms- málaráðuneytið ætlar til dæmis að ráðast í endurskoðun á umferðarlögunum. Regluverkið skorið við trog Konu, sem varð fyrir því á vinnustað sínum að brauðbakkar duttu á höfuð hennar, hafa verið dæmdar tæplega 1,6 milljónir króna í bætur. Konan hlaut fimm prósenta varanlega örorku. Það var Héraðsdómur Reykja- víkur sem dæmdi rekstarfélag skyndibitakeðjunnar sem um ræðir til greiðslu bótanna. Slysið varð árið 2003 á veitingastaðnum Subway í Spönginni í Reykjavík. Konan taldi að aðbúnaður á vinnustaðnum hefði ekki verið við- unandi og rekja mætti slysið til þess. Því hafnaði vinnuveitandinn. Tæpar 1,6 millj- ónir í bætur „Við vorum búin að sjá tvo erni hérna á vappi undanfarna daga en annar var frekar slapplegur. Við vorum síðan að líta eftir fé og hann flaug ekki upp þó að ég gengi að honum,“ segir Hildibrandur Bjarnason, bóndi í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi, sem handsamaði ungan örn í gær. Hildibrandur segir örninn hafa verið spakan og var hann fangaður án mikilla vandkvæða og settur í hús. „Hann var ljúfur og góður og þegar hann var orðinn þurr þáði hann nýjan fisk að éta. Hann leit ekki við kjötinu sem við buðum honum,“ segir Hildibrandur. Starfsmenn Náttúrustofu Vesturlands voru látnir vita af erninum og var hann síðar fluttur í Húsdýragarðinn í Reykjavík. Yfir 3.000 manns var bjargað eftir að hafa lokast inni í gullnámu í Suður-Afríku á miðvikudag þegar þrýstilofts- leiðsla sprakk í lyftugöngum og eyðilagði lyftuna. Um 2.700 námumönnum var bjargað á fimmtudag og 500 í gær. Sumir voru lokaðir inni í 40 klukkustundir. Slysið varð tilefni ásakana um að öryggismálum væri ábótavant í námum landsins, sem er heimsins stærsti útflytjandi gulls. Í fyrra fórust 199 verkamenn í námum Suður-Afríku, flestir af völdum grjóthruns. Öllum bjargað Forstjóri Eimskips og fleiri tóku vel á móti Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, við komuna til hafnarborgarinnar Qingdao í Kína í gær. Til stendur að Ólafur verði ásamt Dorrit Moussaieff eiginkonu sinni viðstaddur opnun Eimskips á stærstu frystigeymslu í heimi sem staðsett er í borginni. Um 350 Íslendingar eru nú í Kína af þessu tilefni. Ólafur Ragnar hefur verið í Kína frá því í byrjun vikunnar, átt fund með forseta Kína og var auk þess viðstaddur opnun heimsleika Special Olympics. Frystigeymsla opnuð í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.