Fréttablaðið - 06.10.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 06.10.2007, Blaðsíða 8
Bankar hafa að litlu leyti brugðist við umkvörtunum Neyt- endasamtakanna vegna reikninga, sem eru viðskiptavinum óviðkom- andi en eru samt sendir í heima- banka þeirra. Gigtarfélag Íslands sendi til dæmis happdrættisreikninga inn í heimabanka Glitnis fyrr í haust. Reikningurinn hljóðar upp á 2.000 krónur og birtist sem venjulegur reikningur, með gjalddaga og ein- daga. Hann er ekki aðgreindur frá öðrum reikningum, nema hvað að lítil stjarna birtist, eftir að valið hefur verið að greiða eða skoða reikninginn. Sé músarbendillinn færður yfir endilangan skjáinn og á stjörnuna, kemur upp text- inn „valgreiðsla“. Það þýðir væntanlega að viðskiptavin- um sé í sjálfvald sett hvort þeir borga reikninginn eður ei. Jóhannes Gunnarsson, framkvæmdastjóri Neyt- endasamtakanna, segir það miður að bankar hafi enn ekki brugðist við bréfi hans um svona reikninga. Sumir þeirra hafi að vísu bætt sig. „Við höfum tekið eftir og bent á að ýmsir upplifi svona reikninga sem skuld, sérstaklega eldra fólk. Við viljum því að svona reikn- ingar séu settir upp algjör- lega sér og að það komi skýrt fram að þá þurfi ekki að greiða. .“ Óviðkomandi fá enn að senda reikninga í heimabanka fólks Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra afgreiddi á dögunum fyrsta sjálf- virka afsláttarkort Trygginga- stofnunar. Kortið verður sent til sjúkra- tryggðs fólks sem hefur greitt tiltekna fjárhæð fyrir heilbrigðis- þjónustu og þar með öðlast rétt til að endurgreiðslu útlagðs kostnaðar. Með kortinu verður utan- umhald Tryggingastofnunar um endurgreiðslu kostnaðar einfald- ara, skjólstæðingum hennar til hagsbóta. Sjálfvirk afslátt- arkort í notkun Tónlistarframleið- endur unnu mikilvægan sigur í gær þegar bandarískur dómstóll dæmdi konu til að greiða sem svar- ar til tæplega fjórtán milljóna króna fyrir að deila tónlist ólöglega á netinu. Sex útgáfufyrirtæki höfðuðu mál gegn Jammy Thomas fyrir ólöglegt niðurhal á lögum gegnum forritið Kazaa og að deila þeim með öðrum. Var Thomas sögð hafa deilt alls 1.702 lögum. Dómsmálið sneri þó aðeins að 24 lögum. Útgáfufyrirtæki hafa höfðað um 26.000 mál frá árinu 2003 vegna ólöglegs niðurhals. Sátt hefur náðst í mörgum málum. Milljónir í sekt fyrir niðurhal Hvað heitir forstjóri Reykja- vík Energy Investment? Fyrir hvaða fyrrverandi forsætisráðherra syngur Garðar Thor Cortes í Singapúr? Hvaða leikkona á fimmtíu ára leikafmæli um þessar mundir? Yfir 300 þingmenn frá yfir 40 löndum hófu í gær að ráða ráðum sínum á árlegri þingmannasamkomu Atlantshafs- bandalagsins í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Þetta er í fyrsta sinn sem NATO-þingið er haldið á Íslandi. José Lello, forseti þingsins, sagði á blaðamannafundi að efst á baugi þingsins að þessu sinni yrðu verkefni NATO í Afganistan, í öðru lagi áform Bandaríkjamanna um uppbyggingu hluta eldflauga- varnaáætlunar sinnar í tveimur af nýjustu aðildarlöndum bandalags- ins, Póllandi og Tékklandi, og í þriðja lagi – nátengt þessu – samskiptin við Rússland. NATO-þingið stendur yfir í fimm daga. Á dagskrá fyrsta dagsins í gær var aðallega lokaður fundur tengslanefndar þingsins við Rússland, en nú um helgina funda hinar ýmsu fagnefndir þingsins. Á mánudag þingar fastanefnd þess en þinginu lýkur með opnum þingfundi á þriðjudag, þar sem Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, Geir H. Haarde forsætisráðherra, Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, og Sali Berisha, forsætisráðherra Albaníu verða meðal ræðumanna. Umfang NATO-þinghaldsins er nokkru meira en Norðurlandaráðs- þings og öryggisráðstafanir eru miklu strangari. Þetta er því stærsta samkoma sem Alþingi hefur verið gestgjafi að. NATO-þingið hefur aðeins ráðgefandi hlutverk í ákvarðana- tökukerfi NATO. Norður-Atlants- hafsráðið, þar sem ráðherrar úr ríkisstjórnum aðildarríkjanna 26 eiga sæti, er sú stofnun bandalags- ins sem allt ákvarðanavaldið liggur hjá. Ráðherrafundur NATO var í fyrsta sinn haldinn hérlendis vorið 2002. Þingforsetinn Lello bendir á að þótt NATO-þingið hafi ekki formlegt vald til að móta stefnu bandalagsins þá hafi það mikil- vægu hlutverki að gegna bæði sem tengiliður milli NATO-forystunnar og kjósenda í aðildarríkjunum og sem vettvangur fyrir skoðana- skipti bæði milli fulltrúa aðildar- ríkjanna innbyrðis og milli þeirra og þingmanna frá ríkjum utan bandalagsins. Þar er um að ræða ríki sem ýmist sækjast eftir nánum tengslum við bandalagið eða jafnvel inngöngu í það - eins og ríkin á Balkanskaga eða grannþjóðir bandalagsins í Austur- Evrópu og Kákasus – sem og ríki sem mikilvægt er fyrir bandalagið af öðrum ástæðum að eiga góð samskipti við, svo sem Rússland og löndin sem liggja að Miðjarðar- hafinu í austri og suðri. Rætt um Afganistan og eldflaugavarnir Á árlegu þingi NATO-þingsins, sem hófst í Laugardalshöllinni í gær, eru verk- efni NATO í Afganistan, eldflaugavarnir og tengsl bandalagsins við Rússland efst á baugi. Þingið er stærsta samkoma sem Alþingi hefur gerst gestgjafi að. Þegar lokatölur úr talningu atkvæða í úkraínsku þingkosningunum sem fram fóru um síðustu helgi voru birtar í gær, virtist ljóst að flokkarnir sem studdu „appelsínugulu byltinguna“ fengju meirihluta þingsæta og gætu þar með myndað meirihluta- stjórn. Flokkabanda- lagið sem Júlía Tymosjenko fer fyrir fékk 30,71 prósent atkvæða og flokkur Viktors Jústsjenkos 14,15 prósent. Hinn Rússlandsvinsam- legi héraðaflokkur Viktors Janúkovítsj, fráfarandi forsætis- ráðherra, varð stærsti flokkurinn með 34,37 prósent atkvæða, en varð að láta í minni pokann fyrir sameinuðu fylgi „appelsínugulu“ aflanna. Appelsínugulur þingmeirihluti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.