Fréttablaðið - 06.10.2007, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 06.10.2007, Blaðsíða 30
N ú í vikunni ítrekaði Nouri Al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, kröfu sína um að starfsmönn- um bandaríska öryggisfyrirtækisins Blackwater verði vísað úr landi. Þetta sagði hann fyrst stuttu eftir 16. sept- ember síðastliðinn þegar á annan tug manna lágu í valnum á götum Bagdad eftir að bandarísku öryggisverðirnir gripu til vopna. Maliki sakar starfsmenn Black- water um að hafa nokkuð oft beitt skotvopnum sínum af alltof miklu gáleysi. Eigandi fyrirtækisins og stofn- andi, Erik Prince, varði sína menn eftir bestu getu þegar hann var kallaður fyrir bandaríska þing- nefnd nú í vikunni. Hann sagði það „sorglegt“ að saklausir borgarar hafi látið lífið, en sagðist ekki sjá neitt sem bendi til þess að öryggis- verðir fyrirtækisins hafi brugðist við með óeðlilegum hætti. Starfsmenn Blackwater í Írak hafa hins vegar ítrekað verið ásak- aðir um að vera alltof byssuglaðir. Þeir eru sagðir skjóta að fyrra bragði á saklausa borgara án þess að hafa nokkra minnstu ástæðu til að gruna að hætta sé á ferðum. Starfsfólk eftirlitsnefndar Banda- ríkjaþings staðfesti margar þess- ar ásakanir í skýrslu, sem lögð var fyrir nefndina nú í vikunni þegar málefni Blackwater komu þar til umfjöllunar. Í skýrslunni kemur fram, og er þar vitnað í upplýsingar sem fengnar eru beint frá Blackwater, að frá og með árinu 2005 hafi starfsmenn fyrirtækisins beitt skotvopnum í 195 skipti, eða einu sinni til tvisvar í viku að meðaltali. Í meira en 80 prósentum þess- ara tilvika skutu liðsmenn Black- water að fyrra bragði. Oftast skutu þeir úr bifreið á ferð og námu ekki staðar til að kanna hvort dauðsfall hafi hlotist af. Engu að síður staðfestir fyrirtækið sjálft að skot úr byssum starfs- manna þess hafi kostað sextán manns lífið. Býsna hátt hlutfall starfsmanna Blackwater hefur auk þess á síð- ustu árum verið rekið úr starfi vegna drykkjuskapar, ósæmilegrar hegðunar, ofbeldishneigðar og ann- arra agabrota, eða um 120 manns sem er rúmlega sjöundi hver starfsmaður. Gagnrýni Íraka hefur þó ekki ein- ungis beinst að vafasömum starfs- háttum Blackwater, heldur ekki síður að þeirri staðreynd að erlendir öryggisverktakar í Írak hafa til þessa notið friðhelgi í land- inu. Það má ekki sækja þá þar til saka fyrir glæpi sem þeir fremja í starfi. Viðbrögðin við þessari gagnrýni eru meðal annars þau að nú í vik- unni samþykkti fulltrúadeild Bandaríkjaþings frumvarp þar sem þessi friðhelgi er afnumin. Öldungadeild þingsins á þó eftir að samþykkja sambærilegt frum- varp áður en hægt verður að senda það til George W. Bush forseta til staðfestingar eða synjunar. Í gær setti Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ennfremur strangari reglur um eftirlit með erlendum öryggisverk- tökum í Írak. Framvegis verða til dæmis öryggisverðir á vegum ríkisins látnir fylgjast með ferðum einkaverktakanna, auk þess sem myndavélum verður komið fyrir í bifreiðum þeirra. Erik Prince, eigandi Blackwater, er tæplega fertugur fyrrverandi hermaður sem stofnaði fyrirtækið árið 1997. Fyrstu árin bauð Black- water opinberum starfsmönnum upp á þjálfun í meðferð skotvopna en eftir 11. september 2001 var starfsemin víkkuð mjög út. Auk þess að sinna almennri öryggis- vörslu segist fyrirtækið á vefsíðu sinni meðal annars veita faglausn- ir á sviði hernaðar, löggæslu, öryggisvörslu og friðargæslu. Blackwater er eitt þriggja fyrir- tækja í Írak sem sinna öryggis- gæslu fyrir starfsmenn banda- ríska utanríkisráðuneytisins þar í landi. Á vegum Blackwater starfa um 850 manns fyrir ráðuneytið, flestir þeirra Bandaríkjamenn. Blackwater komst líklega fyrst í fréttirnar fyrir alvöru vorið 2004 þegar fjórir starfsmenn þess voru sendir til bæjarins Falluljah skammt vestur af Bagdad. Setið var fyrir þeim og þeir drepnir, en atvik- ið varð til þess að bandaríski herinn gerði nokkru síðar árás á Fallujah og lagði bæinn nánast í rúst. Sagðir vera alltof byssuglaðir Bandaríska öryggisfyrirtækið Blackwater hefur sætt harðri gagnrýni fyrir framgöngu starfsmanna sinna í Írak. Guðsteinn Bjarnason komst að því að sitthvað virðist vera hæft í þeirri gagnrýni, þótt eigandi fyrirtækisins verji sína menn af kappi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.