Fréttablaðið - 06.10.2007, Síða 6
Hefurðu verslað á netinu
nýlega?
Er rétt að Orkuveita Reykjavík-
ur taki þátt í fjárfestingum í
orkugeiranum erlendis?
Ákæru- og lögfræði-
svið hefur verið stofnað hjá
embætti lögreglustjóra höfuðborg-
arsvæðisins við hlið almennrar
löggæslu.
Með því verður stutt betur við
löggæsluna og tryggð hröð og
skilvirk meðferð mála þannig að
ljúka megi sem flestum viðfangs-
efnum í beinu framhaldi af
afskiptum lögreglu með sátta-
meðferð eða útgáfu ákæru. Jón
H.B. Snorrason er aðstoðarlög-
reglustjóri og saksóknari
embættisins.
Ákærusviðinu er skipt í þrennt
og verður einn aðstoðarsaksóknari
yfir hverju sviði. Eitt svið fer með
brot gegn almennum hegningar-
lögum, annað með brot gegn sér-
refsilögum og hið þriðja fjallar
um málefni almennrar löggæslu.
Sviðsstjórar eru Karl Ingi Vilbergs-
son, sem fer með hegningarlaga-
brotasvið, Arnþrúður Þórarinsdótt-
ir sem fer með sérrefsilagabrotasvið
og Daði Kristjánsson, sem fer með
svið almennar löggæslu.
Undirdeildir sviðanna eru
fimm. Björgvin Jónsson stýrir
ofbeldisbrotadeild, Sigríður J.
Hjaltested stýrir kynferðisbrota-
deild, Hulda María Stefánsdóttir
stýrir fíkniefnabrotadeild, Jóhann
S. Hauksson stýrir umferðarlaga-
brotadeild og Þorsteinn Davíðs-
son deild almennrar löggæslu.
Hröð og skilvirk málsmeðferð
Flókin fjölskyldutengsl
eru hugsanlega í uppsiglingu hjá
breskri fjölskyldu þar sem par
stefnir á að eignast barn sem er í
raun hálfsystkin mannsins þar
sem sæðisgjafinn er pabbi hans.
Parinu hefur ekki tekist að
eignast börn og sneru þau sér til
föður mannsins þar sem að þau
vilja að barnið verði sem líkast
báðum foreldrunum.
Lögum samkvæmt mega
systur gefa hvorri annarri egg úr
sér en læknarnir könnuðust ekki
við að svona tilvik hefði komið
upp fyrr.
Fréttavefur BBC greinir frá
þessu.
Afi verður faðir
barnabarnsins
Hjörleifur B. Kvaran for-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
samþykkti laun Bjarna Ármanns-
sonar og heimild hans til kaupa á
500 milljóna króna hlut á sérkjör-
um. Frumkvæðið að aðkomu
Bjarna að Reykjavík Energy
Invest (REI) hafði Haukur Leós-
son, stjórnarmaður í félaginu og
stjórnarformaður Orkuveitunn-
ar.
Hluthafafundur sem var hald-
inn í REI áður en Bjarni Ármanns-
son keypti hlut í fyrirtækinu, sam-
þykkti kjör Bjarna. Hluthafi í
fyrirtækinu var þá einn aðili,
Orkuveita Reykjavíkur, og hand-
hafi þess hlutar var starfandi for-
stjóri Orkuveitunnar, Hjörleifur
B. Kvaran.
Í þáverandi stjórn REI voru
Björn Ársæll Pétursson stjórnar-
formaður, Björn Ingi Hrafnsson
og Haukur Leósson. Stjórnarmenn
REI voru áheyrnarfulltrúar á hlut-
hafafundinum.
Haukur Leósson segir að hann
hafi leitað til Bjarna um að taka að
sér starfið.
„Ég hringdi í hann og bað hann
að hitta mig. Ég sagði honum að
okkur vantaði nýjan stjórnarfor-
mann og hann hugsaði málið í
rúma viku og sló svo til.“
Haukur kynnti fyrirtækið fyrir
Bjarna og þeir sömdu um laun
hans. Haukur segir að honum finn-
ist þau mjög sanngjörn.
Borgarstjóri var síðan upplýst-
ur um það sem fór þeim á milli en
Björn Ingi Hrafnsson, annar
stjórnarmaður í REI, var upplýst-
ur um þetta „löngu seinna,“ segir
Haukur.
Um sérkjör nokkurra starfs-
manna Orkuveitunnar segir Hauk-
ur að þeir hafi fengið þau því þeir
hafi átt að fara til starfa hjá REI.
Fleiri starfsmenn áttu þó upp-
haflega að fá að kaupa hlut. Spurð-
ur hvers vegna til dæmis upplýs-
ingafulltrúi Orkuveitunnar, Eiríkur
Hjálmarsson, hafi átt að fá heim-
ild til kaupa, segir Haukur: „[Fyrir-
tækin] voru svo samtvinnuð þang-
að til núna.“
Upplýsingafulltrúinn hafi ein-
faldlega sóst eftir kaupunum,
„enda sjá allir hvað þetta er flott
fyrirtæki“. Hjörleifur B. Kvaran
sóttist einnig eftir því að fá að
kaupa hluti í REI. „En okkur fannst
ekki rétt að stjórnendur Orkuveit-
unnar eða stjórnarmenn REI ættu
hlut í fyrirtækinu, það væru of
náin tengsl,“ segir Haukur.
Haukur segir að fyrsti fundur
nýrrar stjórnar REI verði í næstu
viku. Þegar hafi verið ákveðið að
Bjarni Ármannsson verði stjórn-
arformaður í nýrri stjórn, Orku-
veitan fái tvo stjórnarmenn og
nýir hluthafar, FL-Group og
Atorka, fái tvo. Að sögn Hauks er
ekki búið að ákveða hverjir
verða stjórnarmenn. Ekki náðist
í Hjörleif B. Kvaran í gær.
Forstjóri OR leyfði
kaup Bjarna í REI
Hjörleifur Kvaran ákvað að Bjarni Ármannsson skyldi skipaður stjórnarfor-
maður Reykjavík Energy Invest eftir að Haukur Leósson bauð Bjarna stöðuna
og samdi við hann um kaup og kjör. Hluthafafundur haldinn í næstu viku.