Fréttablaðið - 06.10.2007, Síða 12
[Hlutabréf]
Bakkavör Group hefur keypt
breska matvælafyrirtækið
Welcome Food Ingredients
Ltd. Kaupin voru fjármögn-
uð úr sjóðum Bakkavarar,
en kaupverðið er ekki gefið
upp. Félagið er það fimmta
í röðinni sem Bakkavör
Group kaupir á þessu ári.
Fyrirtækið, sem stofnað
var árið 1994, er með höfuð-
stöðvar í Nottinghamskíri í
Englandi. Það sérhæfir sig í notk-
un ferskra og þurrkaðra hráefna
við framleiðslu bragðefna og
blandna á borð við sósur, deig og
þykkni fyrir matvælaiðnaðinn.
Allir helstu stjórnendur halda
áfram störfum hjá félaginu. „Við
höfum haft það að
markmiði að kaupa
sterk og vel rekin
fyrirtæki sem falla vel
að starfsemi okkar.
Við leggjum því upp
úr því að halda lykil-
stjórnendum þeirra
fyrirtækja sem við
kaupum,“ segir Hildur
Árnadóttir, fjármála-
stjóri Bakkavarar
Group. Hún segir Welcome Food
Ingredients falla vel að starfsemi
Bakkavarar.
Starfsmenn Welcome Food
Ingredients eru um 115 talsins, en
alls starfa um tuttugu þúsund manns
hjá Bakkavör á heimsvísu.
Bakkavör bætir við
fyrirtæki í Bretlandi
PLÚSFERÐIR – Lágmúla 4 – 105 Reykjavík - Sími 535 2100
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Innifalið í verði: Flug og gisting í 3 nætur og morgunverður,
flugvallaskattar og íslensk fararstjórn.
Verð á mann miðað við 2 fullorðna í herbergi á Hotel Catalona Princesa
með morgunverði í 3 nætur. Verðdæmi miðast við brottför 7. desember.
Velta á fasteignamarkaði á höfuð-
borgarsvæðinu hefur aðeins einu
sinni verið meiri en í nýliðnum
september. Þá nam hún nítján
milljörðum króna en í júní á þessu
ári náði hún rúmum nítján millj-
örðum.
Miðað við september í fyrra
jókst veltan á höfuðborgarsvæðinu
um 128 prósent á meðan þinglýstum
kaupsamningum fjölgaði um 90,1
prósent. Í ágúst og september í
fyrra var velta og fjöldi kaupsamn-
inga í lágmarki. Sé aftur á móti
miðað við árið 2005, þegar mikið líf
var á markaðnum, er veltan 48 pró-
sentum meiri í september í ár.
Fjöldi kaupsamninga hefur hins
vegar aðeins aukist um tæp þrjú
prósent á því tímabili.
Til skamms tíma bendir mikil
velta og aukning kaupsamninga á
fasteignamarkaðnum til áfram-
haldandi verðhækkana á fast-
eignamarkaði á næstunni sam-
kvæmt Vegvísi greiningardeildar
Landsbankans. Hins vegar gerir
hún ráð fyrir að aukið framboð
nýrra fasteigna og skert kaupgeta
valdi viðsnúningi í verðþróun fast-
eigna um mitt næsta ár. Þá sé
líklegast að fasteignaverð taki að
síga þannig að hækkun ársins í ár
gangi að mestu til baka.
Lækkunum spáð
Peningaskápurinn ...
Bjarni Ármannsson,
stjórnarformaður Reykja-
vik Energy Invest, og
Hannes Smárason, for-
stjóri FL Group, og fyrrum
stjórnarformaður Geysis
Green Energy, segja skyn-
semina hafa ráðið því að til
varð öflugt fyrirtæki sem
reiðubúið sé til stórra hluta
í orkuiðnaði um heim allan.
„Sameining félaganna er bæði
skynsamleg og rosalega spenn-
andi,“ segir Bjarni Ármannsson,
stjórnarformaður Reykjavik
Energy Invest (REI). Með því
segir hann hægt að nýta til fulln-
ustu þekkingu sem til staðar sé í
báðum félögum, orkuvinnslu og í
fjárfestingum. „Einkaaðilar koma
þarna með áhættufjármagnið og
Orkuveitan fær endurgjald fyrir
þekkingu sína, reynslu og hug-
vit.“
Bjarni og Hannes Smárason for-
stjóri FL Group, sem var stjórnar-
formaður Geysis Green Energy,
kynntu nánar samruna REI og
Geysis á fjárfestakynningu FL
Group í Lundúnum (Capital
Markets Day) á fimmtudag.
Þá segir Hannes Smárason skyn-
semi felast í því að sameina í einu
félagi útrásina í orkugeiranum sem
sé á viðkvæmu stigi. „Með þessu
eykst slagkraftur félagsins.“
Bjarni áréttar aukinheldur að REI
horfi ekki til Íslands heldur til
alþjóðlegra fjárfestinga. „Við erum
þegar með í pípunum fjárfestingar
í fjórum heimsálfum og verulega
metnaðarfull markmið til komandi
ára sem krefjast bæði sérþekkingar
og stuðning allra sem að þessu
koma.“ Undir þetta tekur Hannes
og segir skýr skil á milli REI og
starfsemi orkufyrirtækja á Íslandi.
„Þetta snýst um að fjárfesta í virkj-
unum víðs vegar um heim og
kemur Íslandi ekki við, nema að
því leyti sem snýr að þekkingunni
og baklandinu hvað það snertir.“
Bjarni segir að samstarfið við
Orkuveituna skipti þannig miklu
máli enda erfitt að setja verðmiða
á hversu mikils virði það sé að geta
farið með erlenda gesti og sýnt
þeim Hellisheiðarvirkjun og
Svartsengi. „Það er mikils virði.
Rétt eins og mikils virði er að ríkis-
stjórnin og forsetaembætti styðji
við bakið á þessum verkefnum. En
þá er líka mikils virði að fá hjálp
frá einkageiranum og að menn
standi saman að þessum málun í
stað þess að vinna tvist og bast.“
Bjarni og Hannes segja líka
óraunhæft að setja dæmið þannig
upp að einkafyrirtæki keyptu bara
þjónustu af Orkuveitunni, án þess
að aðkoma hennar væri meiri. „Er
ekki bara eðlilegt fyrir Orkuveituna
að fá eitthvað fyrir þessi verðmæti
sem í henni felast. Um það snerist
stofnun REI á sínum tíma. En auð-
vitað hefði verið lítið mál fyrir
Orkuveituna að sleppa þessu
algjörlega og leyfa okkur hinum að
dansa frjálsum, en þá er líka ljóst
að minna hefði setið eftir,“ segir
Hannes.
Einkageirinn er með
áhættufjármagnið