Fréttablaðið - 06.10.2007, Síða 13
Sex mánaða langri yfirtöku-
baráttu um hollenska bankann
ABN Amro lauk í gær þegar
stjórnendur breska bankans
Barclays greindu frá því að þeim
hefði mistekist að tryggja sér
vilyrði áttatíu prósent hluthafa í
ABN Amro fyrir yfirtökutilboði
sínu í bankann. Við þetta var rutt
úr vegi einu hindruninni fyrir
kaupum Royal Bank of Scotland,
belgíska bankans Fortis og
spænska kollega þeirra Santand-
er á hollenska bankanum, sem
verður stærsta yfirtakan í
evrópskum fjármálaheimi gangi
viðskiptin í gegn.
Helsti þröskuldurinn gegn
yfirtöku Barclays lá í lágu hlut-
falli reiðufjár fyrir hlutabréf í
ABN Amro. Upphaflega hljóðaði
tilboðið, sem lagt var fram í enda
apríl, upp á 67 milljarða evra,
jafnvirði tæpra sex þúsund millj-
arða króna, og skyldi allt kaup-
verðið greiðast í hlutabréfum.
Eftir að tilboð bankahóps Royal
Bank of Scotland leit dagsins jók
Barclays hlutfall reiðufjárins.
Það dugði hins vegar ekki til þar
sem gengi bréfa í breska bank-
anum hefur lækkað í óróleikan-
um á fjármálamörkuðum upp á
síðkastið.
Til samanburðar hljóðar tilboð
bankahópsins upp á 71 milljarð
evra, allt greitt í reiðufé, sem
þykir fýsilegri kostur í augum
hluthafa ABN Amro.
Hindruninni rutt úr vegi
Gistinætur á hótelum í ágúst
síðastliðnum voru 181.500 en voru
163.800 í sama mánuði árið 2006.
Það er fjölgun um 17.700 nætur
eða tæplega ellefu prósent. Þetta
kemur fram í nýbirtum tölum
Hagstofunnar.
Gistinóttum fjölgaði í öllum
landshlutum nema á samanlögðu
svæði Suðurnesja, Vesturlands og
Vestfjarða þar sem fækkun
gistinátta nam einu prósenti og á
Austurlandi þar sem fjöldi
gistinátta stóð í stað milli ára.
Mest var aukningin á höfuðborgar-
svæðinu þar sem gistinóttum
fjölgaði um tæp 15 prósent.
Gistirými á hótelum í ágúst
jókst milli ára. Fjöldi herbergja
jókst um þrettán prósent og fjöldi
rúma um fimmtán prósent.
Ellefu prósenta
fjölgun gistinátta
MANNAUÐUR er samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík, Landsbankans,
Deloitte, Morgunblaðsins og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Landsbankinn er meginstyrktaraðili verkefnisins.
VIÐBURÐIR Í OKTÓBER
Nánari upplýsingar og skráning á mannaudur.hr.is
HÁSKÓLI FJÖLSKYLDUNNAR
Einn laugardagur í mánuði er tileinkaður foreldrum og börnum
þar sem fjölskyldan fær fræðslu í bland við skemmtun.
FRAMTÍÐARMARKMIÐ FJÖLSKYLDUNNAR
13. okt kl. 9:00 – 12:00
Hver eru framtíðarmarkmið þinnar fjölskyldu?
Á námskeiðinu mótar fjölskyldan sína stefnu og að hvaða
sameiginlegu verðmætum hún vill vinna að. Námskeiðið er
ætlað unglingum á aldrinum 13 til 18 ára og foreldrum
þeirra.
HÁDEGISFYRIRLESTRAR
Fyrirlestrar og hádegisverður fyrir þá sem vilja bæta við
þekkingu sína og nýta tímann vel.
SJÁLFHREINSANDI ELDHÚS ÁRIÐ 2030?
– TÆKNI Á 21. ÖLDINNI
12. okt kl.12:00 – 13:30
Yngvi Björnsson, heimsmeistari í gervigreind, útskýrir á
mannamáli hvaða tækifæri felast í notkun gervigreindar á
21. öld og hvaða tækni er verið að þróa sem mun koma
fram í dagsljósið á næstu árum.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR VIÐ SAMSTARFSFÓLK
19. okt kl. 12:00 – 13:30
Fjallað verður um mismunandi nálganir að samningum og
þær áskoranir sem við mætum í samningum við
mismunandi samstarfsfólk.
NÁMSKEIÐ
Námskeið MANNAUÐS eru fjölbreytt og hafa ólíkar þarfir
einstaklinga fyrir betri árangur og lífsgæði að leiðarljósi.
EF ÉG VÆRI RÍK/UR – VERÐBRÉFAMARKAÐURINN
15., 17. og 22. okt kl. 19:30 – 22:00
Viltu fjárfesta á verðbréfamarkaði en vantar ítarlegri
þekkingu á umhverfi markaðarins? Þá er þetta námskeiðið
fyrir þig.
HJALLASTEFNA FYRIR FULLORÐNA
27. okt kl. 13:00 – 18:00
Þátttakendur læra að þekkja sjálfa sig og maka sinn í
gegnum fræðslu og leik þar sem að allar reglur eru brotnar
hvað varðar meðfædd kynjahlutverk.
UPPSPRETTA VIÐSKIPTATÆKIFÆRA
31. okt kl. 16:00 – 19:00
Á námskeiðinu verður fjallað um uppsprettur
viðskiptatækifæra og hvernig greina megi góð tækifæri frá
slæmum.
FYRIRLESTRAR OG NÁMSKEIÐ
FYRIR STJÓRNENDUR
Fyrirtæki sem vilja ná árangri þarfnast öflugra einstaklinga
innanborðs, einstaklinga sem hafa frumkvæði og vilja til að
ná langt. En hvað þurfa fyrirtækin að gera til að standa sig
betur í baráttunni um besta fólkið?
SAMRÆMI VINNU OG EINKALÍFS – ER ÞAÐ TIL?
11. okt kl. 11:30 – 13:00
Ashley Braganza, Prófessor í Cranfield School of
Management og kennari í MBA námi í Háskólanum í
Reykjavík, kynnir nýjar leiðir fyrir fyrirtæki til þess að skapa
aðstæður á vinnustað sem gera starfsfólki kleift að
samþætta fjölskyldulífið með vinnunni svo að allir hagnist.
ÁSKORANIR STJÓRNENDA Á 21. ÖLDINNI
15. og 16. okt kl. 13:00 – 16:00
Á námskeiðinu verður varpað ljósi á nýjustu skrif
sérfræðinga á sviði stjórnunar um áskoranir stjórnenda á
21. öldinni. Fjallað verður um það hvernig breytingar næstu
ára munu kalla á nýjar stjórnunaraðferðir.
Gengi bréfa í bresku sæl-
keraveitingahúsakeðjunni
Clapham House, sem skráð
er á AIM-markaðinn í kaup-
höllinni í Lundúnum, hefur
hækkað talsvert í vikunni
og fór í 323,5 pens á hlut í
gær eftir að frá því var
greint að nokkrir aðilar
hefðu tekið sér stöðu í hluthafa-
hópi keðjunnar.
Kaupþing festi sér 5,1 prósent
hlut í keðjunni í síðustu viku í
nafni eins af viðskiptamönnum
bankans. Breska blaðið Times
hefur eftir heimildum í gær að
líklegt þyki að bankinn hafi
aukið hlutinn í allt að 7,6
prósent í fyrradag og segir
bankann nátengdan Robert
Tchenguiz, stjórnarmanni í
Exista.
Bankinn og Tchenguiz
eiga langa viðskiptasögu en
bankinn hefur í fjölmörg
skipti fjármagnað kaup fasteigna-
mógúlsins Íransættaða í Bret-
landi, meðal annars á kráarkeðjum
svo fátt eitt sé nefnt. Blaðið útilok-
ar hins vegar ekki að ónafngreind-
ur fjárfestir frá Kýpur standi á
bak við viðskiptin.
Kaupþing með hlut
í veitingahúsakeðju
Störfum fjölgaði um 110 þúsund í
Bandaríkjunum í síðasta mánuði.
Þótt þetta sé fjögur þúsund störf-
um minna en fjármálasérfræðing-
ar höfðu gert ráð fyrir er þetta
talsvert meiri aukning en í ágúst.
Þrátt fyrir að atvinnuleysi, sem
nú mælist 4,7 prósent í Banda-
ríkjunum, hafi aukist lítillega á
milli mánaða glöddust fjárfestar
enda ljóst að störfum hafi ekki
fækkað líkt og áður var óttast. Þá
þykja þetta vísbendingar um að
bandarískt efnahagslíf hafi ekki
orðið fyrir jafn miklum skakka-
föllum og óttast var vegna
óróleika á fasteigna- og fjármála-
mörkuðum síðustu vikurnar.
Að sama skapi eru þetta
slæmar fréttir fyrir þá sem
bjuggust við frekari lækkun
stýrivaxta en fréttaveitan
Bloomberg telur aukningu starfa
vestra draga úr líkum þess að
vextirnir lækki á næsta vaxta-
ákvörðunarfundi Bandaríska
seðlabankans í enda mánaðar.
Störfum fjölgar í
Bandaríkjunum